Akureyri - 13.05.2015, Blaðsíða 8

Akureyri - 13.05.2015, Blaðsíða 8
8 5. árgangur 18. tölublað 13. maí 2015 Óskað er eftir upplýsingum um bakgrunn og reynslu umsækjenda, sem og hugmyndum um það hvernig umsækjandi hyggst nýta húsið til eflingar ferðaþjónustu, menningar- og félagslífs Félagsheimilið Húnaver er byggt árið 1957 og er 601 m2 að grunnfleti, ásamt 88 m2 íbúð. Félagsheimilið skiptist í anddyri með miðasölu, forsal, snyrtingar, fatageymslu og fundarherbergi. Þá er eldhús með uppþvottavél, bakara ofni og öðrum helstu eldhústækjum og áhöldum. Samkomusalur er í húsinu. Jafnframt er leyfi fyrir allt að 56 manns í svefn- pokagistingu. Félagsheimilið Húnaver er staðsett á mótum Svartárdals og Langadals þar sem þjóðvegur 1 liggur upp Vatnsskarð. Í Húnaveri hefur verið rekin verslun, veitingasalur og svefnpokapláss. Við Húnaver eru mjög góð tjaldstæði með rafmagni, snyrtingum og sturtuaðstöðu. Ásamt þessu fylgir Húnaveri fjárhús/hesthús alls 184 m2 og hlaða sem er 127 m2. Umsóknarfrestur er til 30. maí næstkomandi. Skila skal umsóknum á skrifstofu Húnavatnshrepps, Húnavöllum 541 Blönduós, eða með að senda umsókn í tölvupósti á netfangið einar@hunavatnshreppur.is. Nánari upplýsingar: Einar Krisján Jónsson sveitarstjóri í síma 452 4661 og 842 5800 eða formaður hússtjórnar Pétur Pétursson í síma 452 4349 og 821 4349. Áskilinn er réttur til að taka hvaða umsókn sem er eða hafna öllum. Húnavatnshreppur og Hússtjórn Húnavers Húnavatnshreppur hunavatnshreppur.is Félagsheimilið Húnaver Hússtjórn Húnavers og Húnavatnshreppur óska efir húsverði eða umsókn frá aðilum sem vilja taka að sér rekstur félagsheimilisins Húnavers. Siljan veitt á Akureyri Siljan var veitt í fyrradag en um ræðir viðurkenningu Barnabóka- seturs fyrir myndbandakeppni ungmenna í grunnskólum lands- ins þar sem myndböndin tengjast efni tiltekinna íslenskra bóka sem gefnar voru út 2012-2014. Efstu þrjú sætin í keppninni fengu verð- launafé í eigin vasa og skólasafn sigurvegaranna hlaut rausnarlega fjárhæð til bókakaupa. Sigurvegarar Siljunnar á Norð- urlandi árið 2015 eru Jón Páll Norð- fjörð og Adam Ingi Viðarsson sem koma úr Glerárskóla. Þeir gerðu myndband um Brosbókina eftir Jónu Valborgu Árnadóttur. Segir í umsögn dómnefndar: „Myndbandið er vel gert og kemst boðskapur bókarinn- ar til skila á hugmyndaríkan hátt um leið og bókin er gerð áhugaverð. Myndbandið er einnig skemmti- legt, nemendur ná að fanga andann í bókinni og sú hugmynd að gera stiklu er prýðisgóð. Það er augljóst að mikil vinna átti sér stað við gerð stiklunnar og ber það þeim nemend- um sem komu að verkinu gott vitni.“ Í öðru sæti urðu Egill Andra- son og Arndís Eva Erlingsdóttir, Brekkuskóla. Þau gerðu mynd- band um Hafnfirðingabrandarann. Þriðju verðlaun hlutu Kolbrún Svafa, Henning , Katrín Nicola, Sigrún Edda, Katrín Ásta og Helga Hrund, Grímseyjarskóla sem gerðu myndbönd um Martröð 22 í flokkn- um Gæsahúð fyrir eldri eftir Helga Jónsson Ólafsfirðing, búsettan nú á Akureyri. Brynhildur Þórarinsdóttir, rit- höfundur og lektor við Háskólann á Akureyri, segir fyrir hönd Barna- bókaseturs að Siljan sé mynd- bandasamkeppni fyrir nemendur í 5.-10. bekk í grunnskólum við Eyjafjörð. Markmiðið með Siljunni sé að fá börn og unglinga til að lesa meira og tjá sig um bækurnar sem þau lesa; virkja unga lesend- ur til að breiða út lestraráhuga. „Skemmtileg myndbönd eftir unga lesendur vekja athygli og minna á hversu gaman er að lesa. Ánægja af lestri er einmitt lykill að góðum lesskilningi.“ -BÞ Endurvakið Listasumar leggur ríka áherslu á ferskleika og frumsköpun Margir munu eflaust fagna því að Listasumar verður endurvakið á Akureyri í ár. Akureyri vikublað spurði Guðrúnu Þórsdóttur verk- efnisstjóra nokkurra spurninga en opnun Listasumar fer fram 12. Júní næstkomandi. Hvað þýðir það fyrir bæinn í ör- stuttu máli að Listasumar hafi ver- ið endurvakið? „Listasumar á Akureyri er far- vegur og vettvangur fyrir listafólk á Akureyri til að koma list sinni á framfæri. Listasumar var fyrst sett á laggirnar fyrir 20 árum síðan, en þá kraumaði listin út um allt og þörf var fyrir farveg til að koma henni á framfæri. Enn er listalífið öflugt á Akureyri og því ennþá þörf fyrir Listasumar. Listasumar á Akureyri er regn- hlíf fyrir lista og menningarstarf- semi á Akureyri yfir sumarið og með því er aðgengi almennings að viðburðum gert einfaldara. Bæj- arbúar og ferðamenn geta nálgast upplýsingar um viðburði á einum stað þ.e. í prentaðri dagskrá og einnig á vef Listsumars, á íslensku og ensku. Með endurvakningu Listasumars á Akureyri skapast einnig aukin tækifæri á samvinnu listafólks sín á milli og við stofnan- ir og fyrirtæki. Þeir fjármunir sem settir voru í verkefnið í ár eru ágætis byrjun en meira fé þarf að koma til á næstu árum þar sem ætlunin er að virki- lega styrkja sköpunarstarfið sjálft.“ Hefur þessi ákvörðun skapað ánægju meðal listamanna? „Já, tvímælalaust. Listamenn sjá tækifæri í þessu og eru þegar farnir að skipuleggja viðburði. Við erum þess fullviss að þetta muni efla lista- og menningarlífið í bænum.“ Getur hver sem er troðið upp undir merkjum Listasumars eða er fagleg eða listræn sýning – fer mat fram á gæðum viðburða? „Ég, sem verkefnastýra Lista- sumars ásamt Hlyni Hallssyni safn- stjóra Listasafnsins erum þau sem förum yfir viðburðina en það er engin ritstýring í gangi. Við leggjum áherslu á ferskleika og frumsköpun og hafa þeir viðburðir forgang sem uppfylla þau skilyrði.“ Fá listamenn sem koma fram á vegum Listasumars einhverja ver- aldlega umbun fyrir? „Listasumar á Akureyri er ekki hugsað sem kaupandi að list heldur farvegur fyrir lista- og menningar- starf og í gegnum það skapast tæki- færi og sýnileiki fyrir það öfluga listastarf sem þegar er í gangi hér á Akureyri.“ Þyrftu tekjumöguleikari lista- manna að vera meiri en raun ber vitni? Eru það e.t.v. vafasöm skila- boð út í samfélagið að þeir vinni oft frítt? „Listamenn eru ekki óvanir því að „vinna frítt“ eins og þú orðar það. Ef við skoðum söfnin sem dæmi þá fá listamenn sjaldan þóknun fyrir að sýna þar, en ef listamaðurinn selur list sína þá fær hann þá peninga. Sama má segja um Listasumar, því ef um er að ræða aðgangseyri að viðburðum þá fær listamaðurinn hann. Hins vegar væri alveg eðli- legt að listafólk fengi meira borgað fyrir vinnu sína.“ Eru einhverjir viðburðir fram undan sem þú mælir sérstaklega með? „Á opnunarhelginni, 12. júní, verður margt í gangi: Ymur tón- listarhátíð verður með kraumandi raftónlist í 24 tíma, Mireya Samper er að opna sýningu á Listasafninu og svo tengjumst við Þjóðlistahá- tiðinni Vöku sem er metnaðarfullt verkefni sem hægt er að fræðast nánar um á vefnum thjodlist.is Listamenn munu mála Listagil- ið í fallegum litum og tónum, hug- myndin er að enginn umferð verði í Gilinu í júní mánuði og þannig er hægt að varðveita málverkið,“ segir Guðrún Þórsdóttir, verkefnastýra hjá Listasumari Akureyrarbæjar 2015. -BÞ mikil ánægja meðal listamanna með upprisu Listasumars, að sögn verkefnisstýru, Guðrúnar Þórsdóttur. Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur og lektor við Ha: markmiðið með Siljunni að fá börn og unglinga til að lesa meira og tjá sig um bækurnar sem þau lesa. Auglýsingasíminn er 578-1190

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.