Akureyri - 13.05.2015, Blaðsíða 10

Akureyri - 13.05.2015, Blaðsíða 10
10 5. árgangur 18. tölublað 13. maí 2015 ÖFLUG FORVÖRN GEGN BEINÞYNNINGU www.hafkalk.is Kalkþörungar með D3, K2 og C vítamínum ásamt viðbótar magnesíum og mangan ALLAR VÖRUR HAFKALKS ERU ÁN AUKEFNA OG ERFÐABREYTTRA INNIHALDSEFNA (GMO FREE) Ragnhildarvaka með Dúó Stemmu Dúó Stemma heldur tónleika á Galtalæk á laugardaginn 16. maí kl 13:30 til styrktar Parkinsons- félagi Akureyrar og nágrennis. Í Dúó Stemma eru Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari. Tónleikarnir eru á þjóðlegum nót- um, m.a. verk eftir Snorra Sigfús Birgisson, “ Fimm lög frá Gaut- löndum”, sem byggist á þjóðlögum sem afasystir Herdísar, Hólmfríð- ur Pétursdóttir (1889 -1974), söng inn á segulband sumarið 1969. Þá munu þau leika eigin útsetningar á ýmis óhefðbundin heimatilbúin hljóðfæri. Frítt er inn, en tekið við frjálsum framlögum, sem renna til Parkin- sonsfélags Akureyrar og nágrenn- is. Tónleikarnir eru til minningar um hjónin Jón Sigurgeirsson og Ragnhildi Jónsdóttur sem bjuggu í Spítalaveginum, en Herdís Anna er dóttir þeirra. Þau Dísa og Steef héldu áður tónleika í stofunni okk- ar við mikla hrifningu fyrir tveimur árum. a AÐSEND GREIN FRÍÐA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR Skemmtilegra með jákvæðu hugarfari Síðustu daga og vikur hafa ung- lingar á Akureyri verið að sækja um störf hjá Vinnuskólanum. Ung- lingavinnan samanstendur af allskyns störfum t.d. garðyrkju- störfum þar sem verið er að reita arfa, hreinsa beð og margt fleira. Einnig er í boði vinna á leikskóla. Unglingavinnan er í boði fyrir aldurinn 14- 16 ára og stendur yfir á sumrin. Margir krakkar fara í unglingavinnuna en fara þangað með enga löngun til að vera þar og jákvæðnin skil- in eftir heima. Þetta hugarfar er í mörgum tilfellum byggt upp á sögusögnum annarra krakka eða fyrirfram mót- uðum hugmyndum unglinganna sjálfra sem ekki allar byggja á raun- veruleikanum og eru margar nei- kvæðar. Sumum finnst hallærislegt að reita upp arfa og passa börn fimm daga vikunnar. En auðvitað er þetta leiðinlegt ef þú mætir á stað- inn og hugsar einungis um það hvað þig langar að vera allt annars staðar. Þú ert þarna með unglingum á svip- uðum aldri og þú og ef þeir eru ekki einmitt í þínum vinahópi þá er um að gera að kynnast nýju fólki. Þetta eru aðeins sex vikur og það er þín ákvörðun hvort þú ætlar að hafa gaman að þessu eða ekki. Þarna eru flokkstjórar sem eru alltaf til staðar fyrir þig ef þú þarft á að halda. Mestur hluti vinnutímans fer í rakstur, beða-, njóla- og gang- stéttahreinsun. Ég sé ekki mikinn sjarma við garðyrkju. Að reita upp arfa er ekki draumur allra unglinga en þarna ertu með vinum þínum um sumar og þá er alltaf hægt að gera gott úr hlutunum og hafa fjör. Þú færð líka borgað fyrir þetta. Launin mættu nú alveg vera hærri en við getum verið þakk- lát fyrir að fá einhver laun. Hjá mörgum er þetta fyrsta reynsla af launaðri vinnu og þannig er þetta góð byrjun. Auk þess sem það er voðalega lítið af öðrum atvinnutilboð- um að hafa fyrir unga krakka. Ég myndi telja það frábær- an kost að geta fengið vinnu úti á sumrin þrátt fyrir að það sé ekki alltaf sól og logn. Þá verður þú að hugsa þannig að veðrið sé vinur þinn og að það sé alltaf hægt að hafa gaman hvort sem það er í rign- ingu, roki eða sól og blíðu. Þar sem veðrið á Íslandi getur breyst með hverri mínútunni sem líður eiga flestir góð föt sem henta við flest veðurskilyrði. Unglingavinnan er frábær byrj- un á starfsferli. Einhversstaðar verður þú að byrja að byggja upp reynslu til að eiga möguleika á enn betri störfum. Það er eins með þetta og margt annað að jákvætt hugar- far skiptir miklu máli. Þegar uppi er staðið áttu ein- hvern pening og eflaust búin(n) að eignast marga góða vini. a Fríða Kristín Jónsdóttir Frá og með mánudeginum 18. maí nk. verður opnað fyrir pantanir á orlofshúsi félagsins nr. 9 á Illugastöðum í Fnjóskadal. Leiga hefst föstudaginn 5. júní. Þeir sem ekki hafa fengið leigt í sumarhúsinu sl. 3 ár sitja fyrir til mánudagsins 25. maí og er eingöngu hægt að panta leigu þessa fyrstu viku á skrifstofu félagsins. Húsið er leigt viku í senn og ber að greiða vikuleiguna við pöntun á húsinu. Félagar eru hvattir til að nýta sér félagavefinn sem er á heimasíðu félagsins, www.sjoey.is eftir 25. maí. Þar er hægt að panta, greiða og prenta út samninginn sem gildir fyrir þá viku sem pöntuð er. Einnig er hægt að koma á skrifstofu félagsins og panta og greiða þar fyrir vikuna. Þá viljum við minna félagsmenn á orlofsíbúðir félagsins í Kópavogi. Þær eru til útleigu með venjubundnum hætti allt árið og er eins með þær að hægt er að panta vikuleigu og greiða fyrir í gegn um félagavefinn. Lyklar af þeim eru síða afhentir á skrifstofu félagsins. Einnig minnum við félagsmenn á að útilegukortið og veiðikortið sem eru til sölu á skrifstofu félagsins á sanngjörnu verði. Þá minnum við einnig á orlofsstyrkina. Allar nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu félagsins að Skipagötu 14, og í síma 455-1050. Auglýsing um orlofshús, orlofsíbúðir, styrki og fl.  

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.