Akureyri - 13.05.2015, Side 13

Akureyri - 13.05.2015, Side 13
13. maí 2015 18. tölublað 5. árgangur 13 okkur gagnrýnislausum augum og ábyrgðin sem því fylgir er gríðarleg. Rennur tónlist í blóði barnanna? Umhverfið þeirra er hlaðið tónlist og mér finnst mjög mikilvægt að svo sé. Við höfum óhikað tekið þau með okkur á ýmiskonar við- burði og mig langar að þau alist upp í umhverfi þar sem þau fá að kynnast allskonar tónlist. Þau elska að syngja og dansa og strák- urinn okkar 7 ára hefur stundað tónlistarnám frá 4 ára aldri. Það er hinsvegar aldrei að vita hvað svo verður, kannski verða þau búin að fá nóg af tónlistariðkun foreldra sinna og snúa sér að ein- hverju allt öðru í framtíðinni, en ég veit að þau munu búa að því alla æfa að hafa hlustað mikið á tónlist. Er ekki beinlínis hneyksli að börn geti átt von á að híma árum saman á biðlista áður en þau fá inni í Tón- listarskólanum á Akureyri? Það er mjög leitt að heyra af því að nemendur þurfi að bíða lengi eftir því að geta hafið tónlistar- nám og í fullkomnum heimi væri frábært ef öll börn fengju tæki- færi til þess að kynnast því að stunda nám í tónlist, að það væri hreinlega partur af námskránni í grunnskólum að nemendum væri boðið að stunda nám í tónlist. Ég er viss um að forsvarsmenn Tón- listarskkólans myndu vilja veita öllum aðgang að námi, en fjár- magnið er af skornum skammti. Stundum er bent á að auka þurfi hópkennslu til þess að koma fleirum að, en ég held að slík kennsla skili sér ekki jafn vel og einkakennslan. Ég held að það sé mikilvægt að við gerum þeim nemendum sem fá tækifæri til þess að stunda nám í tónlistar- skóla grein fyrir því að því fylgir ákveðin ábyrgð og sú ábyrgð snýst um að sinna náminu. Ég á ekki við að við tónlistarkennarar þurfi að hafa það að markiði sínu að gera atvinnu tónlistarmenn úr öllum nemendum, heldur að nem- endurnir hafi áhuga fyrir því sem þeir eru að læra og meti það að fá til þess tækifæri, því eins og við vitum bíða margir á kanntinum eftir því að fá tækifæri til þess að komast að. Taug barnanna, skólastarfs og at- vinnulífs mætti vera sterkari þegar kemur að tónlistinni ekki satt? Skólatónleikar eru mjög mikil- vægur partur af fræðslu. Fyrstu árin eftir að ég settist að á Ak- ureyri heimsótti Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands grunnskóla á svæðinu og hélt metnaðarfulla og skemmtilega skólatónleika fyrir nemendur. Þessu starfi hefur hins- vegar ekki verið sinnt síðustu ár og þykir mér það mjög miður. Að mínu mati er þetta eitt mikilvæg- asta hlutverk hljómsveitarinnar. Ég fór því af stað með verkefni eftir áramótin ásamt vini mín- um Eyþóri Inga, organista Ak- ureyrarkirkju, þar sem að við settum saman prógram, sóttum um styrki og heimsóttum marga grunnskóla á Eyjafjarðarsvæðinu. Viðtökurnar voru frábærar og við fundum fyrir því hversu mikil- vægt er að börn öðlist reynslu og innsýn inn í klassíska tónlist. Oft er talað um að aðsókn á klass- íska tónleika sé ekki nógu góð, en hvernig getum við ætlast til þess að komandi kynslóðir sæki slíka tónleika, ef við höfum ekki sinnt þessu mikilvæga uppeldisstarfi. Þú talaðir áðan um ákvörðun þína að stökkva en hrökkva ekki. Hverju breytir það fyrir þig að fá nú með skömmu millibili listamannalaun, fyrst frá ríkinu og nú frá bænum? Þetta breytir öllu fyrir mig. Ég get framkvæmt verkefni og hug- myndir sem ég hef gengið með lengi og látið drauma mína ræt- ast. Starfslaunin veita einnig mikla hvatningu í að helga mig listsköpun. Hefurðu hitt einhvern sem kallar þig og aðra opinbert launaða lista- menn afætur – hér í miðju brjálæði nýfrjálshyggjunnar, Íslandi, þar sem furðu margir virðast trúa að allt skuli ráðast af markaðslausn- um? Ég hef ekki fundið fyrir mikilli gagnrýni en þó einhverri og jafn- vel frá fólki sem stendur mér ná- lægt. Ég held að fólk geri sér oft ekki grein fyrir því að á bak við umsókn um úthlutun slíkra launa er mikil skipulags- og hugmynda- vinna þar sem verkefni viðkom- andi eru útlistuð með nákvæmum hætti. Síðan þarf eftirfylgnin að vera góð, þar sem listamenn þurfa að skila skýrslum um framvindu verkefna sinna sem þeir hafa ein- sett sér að framkvæma. Ég er þess fullviss að gróskan og framþró- unin í íslensku tónlistarlífi, væri ekki svona mikil og við ættum ekki jafn mikið af framúrskar- andi listafólki eins og raun ber vitni ef ekki væri um starfslaun sem þessi að ræða. Ég er hins- vegar algjörlega á því að fólk eigi ekki að geta verið í einhverskon- ar áskrift að slíkum launum eins og stundum er talað er um, en ég þekki heldur engin slík dæmi. Hvort skiptir hinn veraldlegi eða andlegi ávinningur af listamanna- launum þig meira máli? Hvatningin hlýtur að vera mikilvæg – en ein og sér greiðir hún ekki hitaveitureikn- inginn eða plokkfiskinn að kvöldi dags? Án efa skiptir andlegi ávinningur- inn mig meira máli. Það er samt ómetanlegt að fá tækifæri til þess að koma af stað ýmsum verkefn- um og hugmyndum sem ég hefði aldrei getað framkvæmt án þessa stuðnings. Ertu kona sem þrífst betur í fá- menni en margmenni? Mér finnst gaman að velta þessu fyrir mér. Mér leið mjög vel í fá- menninu á Húsavík og sæki oft þangað í kyrrðina hjá mömmu og pabba. Hinsvegar elska ég líka borgirnar tvær sem ég bjó í í Bretlandi, London og Cardiff, og sæki líka mikið í að heimsækja þær. Niðurstaðan er því líklega sú að ég þrífst ágætlega bæði í fjölmenni og fámenni. Ertu e.t.v. svolítið mögnuð blanda af introvert og extrovert? Ég hef ekki velt þessu fyrir mér áður, en hugsa að það sé rétt hjá þér. Sem tónlistarkona er ég auðvitað oft innan um mikið af fólki og þarf að vera ófeimin við að spjalla og tjá mig. Hinsvegar kerfst undirbúningur og æfingar þess að maður getur verið mikið einn með sjálfum sér. Ég kann mjög vel við það líka. Ég hugsa að ég hafi verið meiri introvert sem barn, en þá leitaði ég mikið í að vera ein með fiðluna í stað- inn fyrir að eiga samskipti við önnur börn. Þetta hefur hinsvegar breyst með aldrinum, kannski sérstaklega eftir að ég kynntist Hjalta, ætli hann hafi ekki ýtt undir extrovertinn í mér. Hver er þín besta stund í lífinu það sem af er? Besta stund lífs míns var rétt eft- ir fæðingu dóttur minnar, Huldu Margrétar, þegar Jói sonur minn kom og sá hana í fyrsta sinn. Þessi stund er algjörlega ógleymanleg. Gleðin og stoltið sem færðist yfir andlit hans þegar að hann sá systur sína í fyrsta sinn og að hafa þau bæði í fanginu á mér með Hjalta mér við hlið var eitt- hvað alveg einstakt. En versta? Það erfiðasta sem ég hef tekist á við var þegar ég lenti í bílslysi í Cardiff vorið 2004. Ég held ég hafi aldrei verið eins hrædd og einmanna á ævinni og aldrei fundið jafn vel hversu litla stjórn á lífinu við í raun og veru höf- um. En þó þetta sé það erfiðasta sem ég hef lent í fylgir því líka ákveðin gleði, því ég slapp ótrú- lega vel og lærði mikið um sjálfa mig á þessum tíma. Ég glímdi við áfallastreituröskun í tals- verðan tíma á eftir, en með hjálp minna nánustu náði ég að sigr- ast á hræðslunni sem bjó innra með mér og varð miklu sterkari einstaklingur fyrir vikið með aðra sýn á lífið. Munt þú fá tækifæri til að spila í stúdíóhljómsveit Hofs sem m.a. hefur unnið tónlist fyrir Walt Dis- ney og Atla Örvarssonar á vegum Menningarfélags Akureyrar? Ég hef spilað í þeim verkefnum sem nú þegar hafa verið tekin upp og vona svo sannarlega að ég fái tækifæri til þess áfram. Svona verkefni eru frábær fyrir hljómsveitina og tónlistarfólk á svæðinu. Þetta leiðir að sér fleiri atvinnutækifæri fyrir tónlistar- fólk á svæðinu og innsýn inn í annarskonar vinnu. Hverju þarf að breyta hér í bænum til að gera góðan stað enn betri? Ég væri alveg til í millilandaflug og að það væri ódýrara að fljúga innanlands. Ég væri líka til í að bæjarbúar væru óhræddari við að sækja tónlistar- viðburði þar sem þeir vita ekki al- veg að hverju þeir ganga, að þeir væru opnari fyrir nýrri og framsæk- inni tónlist. Mig dreymir líka um að samstarf milli ólíkra listgreina aukist enn frekar. Undanfarið hef ég sótt í samstarf og samtal við myndlist- arfólk og fólk sem starfar í Gilinu. Úr því eru að spretta spennandi samstarfsverkefni og ég fæ mik- inn innblástur úr samtali mínu við þessa aðila. Hver eru helstu markmið þín fram undan núna – hvar mun áherslan einkum liggja? Ég er þessa dagana að klára vögguljóðaplötu sem ætluð er ungum börnum og stefni að því að hún komi út á næstu vikum. Ég gef hana út sjálf og því er heilmikil vinna framundan við að koma henni í sölu og kynna. Ég er svo búin að setja upp metnaðarfullt plan fyrir árið og mun ég leggja mig alla fram um að ná þeim markmiðum sem ég hef sett mér. Ég er að semja tón- verk fyrir fiðlu og kór, þar sem fiðlan er í einleikshlutverki, en í verkinu reyni ég að sameina klassíska tónlist og raftónlist með hjálp tækninnar. Ég og Hjalti erum í rólegheitunum að vinna að nýrri plötu saman og stefnum við á að hún komi út á næsta ári. Áherslurnar eru svolítið breyttar frá síðustu plötu og mun þónokk- uð af frumsömdu efni vera á nýju plötunni. Ég stefni einnig á tón- leikaferð með breskum píanóleik- ara hér heima og á Bretlandi á árinu. Undanfarin ár hef ég kennt námskeið hjá Fjölmennt og er á stefnuskránni að semja tónlist sem hentar þeim sem námskeiðin sækja sérstaklega vel og flytja á List án Landamæra 2016. Það er frábært að öll þessi verkefni séu að verða að veruleika. Meðganga þeirra margra er löng og mér finnst draumar mínir til margra ára vera að rætast. MYNDIR Völundur Jónsson Besta stund lífs míns var rétt eftir fæðingu dóttur minnar, Huldu margrétar, þegar Jói sonur minn kom og sá hana í fyrsta sinn.

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.