Akureyri - 16.07.2015, Page 2
2 5. árgangur 27. tölublað 16. júlí 2015
Hjóla niður kirkjutröppurnar
Stóra hjólreiðahelgin verður
haldin á Akureyri dagana 17. og 18.
júlí Í svokölluðu Gangamóti verður
hjólað frá vestara opi Strákaganga
á Siglufirði, í gegnum tvenn Héð-
insfjarðargöng og loks í gegnum
Múlagöng. Á leiðinni er hjólað í
gegnum bæjarkjarna Siglufjarðar,
Ólafsfjarðar og Dalvíkur og lýkur
keppni við Hof á Akureyri.
Í miðbæ Akureyrar fer fram svo-
kallað „Townhill“ en það er innan-
bæjar útgáfa af „Downhill“ þar
sem keppendur hjóla niður í móti
frá neðri hluta Brekkunnar á Akur-
eyri, eftir göngustígum og í gegnum
garða, niður kirkjutröppurnar með
endastöð fyrir framan Hótel Kea.
Þessi hluti keppninnar er sagður
„einstaklega áhorfavendavænn“. Í
fyrra fylgdust hundruð manna með
keppninni frá Göngugötunni og
Kaupvangsstræti.
Undanfarnar vikur hafa svo
fjölmargir sjálfboðaliðar innan
raða HFA (Hjólreiðafélags Ak-
ureyrar) eytt nóttu sem degi við
að leggja og smíða heimsklassa
Enduro fjallahjólabraut sem tengir
saman brautirnar í Hlíðarfjalli og
Kjarnaskógi. Þessi leið verður að
15 km. keppnisbraut um helgina og
eru allir helstu fjallahjólarar lands-
ins þegar skráðir til leik og aðeins
örfá sæti laus þar sem takmarkað-
ur fjöldi er í fjallahjólakeppnina.
Auk þessa verða fleiri viðburðir
á stóru hjólreiðahelginni sem nú er
haldin í annað sinn. a
Heimsviðburður á Húsavík
Þegar fyrsta siglingin var farin á
Skjálfanda síðastliðinn sunnudag
í fyrsta rafknúna hvalaskoðunar-
bátnum, Ópal, höfðu nokkrir far-
þega á orði hvort það væri þversögn
að eina vikuna fagnaði forsætis-
ráðherra landsins viljayfirlýsingu
um kínverskt álver á Norðvestur-
landi en þá næstu fagnaði hann
vistvænu skrefi hjá Norðursiglingu,
sem sumir vísindamenn telja al-
gjöra byltingu. Með Ópal er nefni-
lega ekki aðeins lagst gegn mengun
og skammtímahagsmunum stór-
iðju. Sérstök tækni í skipinu gerir
því kleift að tappa af rafmagni á
rafbíla að lokinni hverri ferð, raf-
magni sem verður til á siglingunni.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra var um borð og
mærði hann stórhug heimamanna
sem vor forsætisráðherra þakklát-
ir að þiggja boð og vera viðstaddur
tímamótin.
Blaðamaður Akureyrar viku-
blaðs getur vottað að það var ný
og göfug reynsla að sigla hljóð-
laust og mengunarlaust um hafið.
Í ræðu sem Árni Sigurbjarnar-
son hjá Norðursiglingu flutti við
athöfn þegar hinu vistvæna skrefi
var fagnað, sagði hann að markmið
Norðursiglingar væri einmitt ekki
að ráðast inn í náttúruna heldur
aðlagast henni. Gefur að skilja að
minni truflun er fyrir sjávarlíf-
ríkið að sigla um á hljóðlátan og
vistvænan hátt en með mengandi
vélarskellum. Þegar saman fara
segl og raforka getur Ópal sprett úr
spori. Fengu blaðamenn nasaþefinn
af því þegar gúmmíbátur með 200
hestafla bensínvél hafði vart roð
sið skútunni sem sigldi tignarleg í
kyrrð og ró um Skjálfanda. Margt
bendir til að vernjulegir fiskibátar
gætu tileinkað sér sömu tækni.
Nokkrir erlendir vísindamenn
hafa unnið að verkefninu sem
hófst að frumkvæði Norðursigl-
ingarmanna árið 2011. Í ræðum
sumra koma fram sú ábyrgð sem
maðurinn hefur gagnvart nátt-
úrunni og komandi kynslóðum.
Hlýnun heimsins er tengd stór-
auknu magni koltvísýrings en á
sama tíma hafa stjórnvöld á Ís-
landi uppi mikilar áætlanir um
stóriðju hér og þar. Biðkostum
virkjana skal ýtt í nýtingu, loft-
mengunarvandinn er talaður niður.
Í ræðu Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar forsætisráðherra lofaði
hann framtak Norðursilgingar en
fór ekki einu orði um þá viðsjá sem
fram undan er vegna ósjálfbærrar
hegðunar hins mengandi mann-
kyns. Starfsmenn Norðursiglingar
ræddu eigin ábyrgð aftur á móti í
mörgum orðum við blaðamann og
vekur athygli hve mikið hefur ver-
ið lagt undir. Heildarkostnaður við
Ópal slagar bí 200 milljónir króna
en hann hefur fallið á ýmsa aðila,
70% fjárins eru einkafé en 30%
opinbert fé.
Brynhildur Pétursdóttir, þing-
maður Norðlendinga fyrir Bjarta
framtíð, var meðal boðsgesta í
fyrstu siglingu Ópal. Spurð hvort
þversögn sé fólgin í því að eina
vikuna taki forætisráðherra og
fyrsti þingmaður NA-kjördæmis í
hendur Kínverja sem vilja byggja
álver á Norðvesturlandi en þá
næstu mæri hann vistvæn skref
í hvalaskoðun, segir þingmaður-
inn: „Ég veit ekki hvort ég myndi
endilega stilla þessu upp sem
álver gegn einhverju öðru. For-
sætisráðherra myndi væntanlega
halda því fram að álframleiðsla
á Íslandi sé umhverfisvænni en
víða annars staðar og það er al-
veg rétt. Spurningin er hins vegar
hvort við höfum nokkurn áhuga
á enn einu álverinu. Ég held að
það verði aldrei af þessum fram-
kvæmdum á Norðvesturlandi,
einfaldlega vegna þess að þjóðin
er farin að krefjast þess, eðlilega,
að fá hærra verð fyrir orkuna og
það er óábyrgt að setja öll eggin í
sömu körfuna. Annars finnst mér
þessi umræða um mengandi verk-
smiðjur á Íslandi mjög áhugaverð.
Við höfum sterkar skoðanir á þess-
um málum og ég geri ekki lítið úr
því en erum á sama tíma mikið
neysluhyggjuþjóð sem kaupir alls
kyns varning framleiddan í meng-
andi verksmiðjum í öðrum löndum,
aðallega í Asíu. Ég myndi vilja að
við hefðum líka áhyggjur af þeirri
mengun sem lífstíllinn okkar veld-
ur. Þegar umhverfismál eru annars
vegar finnst mér að öll jörðin eigi
að vera undir. Þar getum við ekki
skorast undan ábyrgð.“
FJÖLÞJÓÐLEGT ÞRÓUNARSTARF
Til að skýra betur hina tæknilegu
hlið sem fagnað var á Húsavík
sl. sunnudag má segja að nýr
skrúfubúnaður hafi verið þróað-
ur sérstaklega fyrir Opal og hefur
þá sérstöðu að hægt er að hlaða
rafgeyma skipsins undir seglum.
Að jafnaði verða rafgeymarnir
hlaðnir þegar skipið kemur til
hafnar með umhverfisvænni orku
af orkukerfi landsins. Í hvala-
skoðunarferðum mun rafmót-
orinn knýja skrúfubúnaðinn en
þegar skipið siglir fyrir seglum
er hægt að breyta skurði skrúfu-
blaðanna og nýta búnaðinn til
að hlaða rafmagni inn á geyma
skipsins. Þetta er í fyrsta skipti
sem slík tækni er nýtt um borð í
skipi og hefur hún vakið mikla
athygli þar sem hún hefur verið
kynnt erlendis. Í framhaldi af
fyrstu hvalaskoðunarferð Opal
um Skjálfanda er gert ráð fyrir að
skipið fari í leiðangur til austur-
strandar Grænlands.
FLOTI NORÐURSIGL-
INGAR RAFVÆDDUR
Árni Sigurbjarnason einn af
stofnendum Norðursiglingar segir
að það skref sem nú sé stigið sé í
samræmi við stefnu Norðursigl-
ingar að vera leiðandi í umhverfi-
svænni ferðaþjónustu við strend-
ur Íslands og Austur–Grænlands.
„Stefna Norðursiglingar er að lág-
marka útblástur gróðurhúsaloft-
tegunda frá starfsemi fyrirtækisins
um leið og farþegar okkar eiga að
njóta fræðslu um umhverfisvernd
og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Ef
verkefnið gengur vel stefnum við
að því að breyta öðrum skipum
Norðursiglingar einnig í rafskip
þannig að hægt verði að nálgast
hvalina með lágmarks ónæði og
gera hvalaskoðunina enn umhverfi-
svænni,“ segir Árni Sigurbjarnar-
son.
Jonas Granath, fram-
kvæmdastjóri hjá Caterpillar
Propulsion í Svíþjóð, segir að það
hafi vissulega verið áskorun að
þróa skrúfubúnað fyrir seglskip
sem sé um leið túrbína sem hleður
rafmagni á geyma skipsins. „Tak-
markið var að ná hámarksnýtni
úr lágmarks orku svo hægt væri
að kynna til sögunnar „Hið raun-
verulega umhverfisvæna skip“ án
koltvísýringslosunar. Markmið
Norðursiglingar eru umhverfi-
svæn og fela í sér raunverulega
nýsköpun. Þau munu án efa færa
íslenska ferðaþjónustu í óbyggðum
á nýtt stig. Hvalaskoðunarsigling
án nokkurrar mengunar, í algjörri
þögn og í mikilli nálægð við þessi
villtu dýr hlýtur að vera einstæð
reynsla. Við erum stoltir að hafa átt
þátt í að gera hana mögulega,“ segir
Jonas Granath.
Jón Björn Skúlason fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku
segir: „Ég tel þetta einn stærsta
viðburð í nýtingu vistvænnar orku
sem átt hefur sér stað hér á landi í
langan tíma.“ Stærstu hluthafar Ís-
lenskrar NýOrku eru íslenska rík-
ið, Orkuveita Reykjavíkur, Lands-
virkjun og HS Orka.
Einn erlendu sérfræðingana
sagði í samtali við Akureyri viku-
blað. „Hér er á ferðinni heimssögu-
legur viðburður, það er ekkert plat.
Nú verður farið með þekkinguna
sem skapast hefur hér út um allan
heim, í þeim tilgangi að snúa við af
braut ósjálfbærni og í raun eyði-
leggingar. Húsvíkingar mega vera
stoltir af deginum í dag.“ a
Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsið,
Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is og Heimkaup
Eyðimerkur brennsla
Þyngdarstjórnun – Brennsla
CARALLUMA
FIMBRIATA
• Fitubrennsla og þyngdartap
• Breyting á fitufrumum í
vöðvafrumur
• Hungur og þorsti
• Orka og úthald
Notað af veiðimönnum í
eyðimörkinni fyrir meiri
orku og til að seðja hungur
Caralluma er safaríkur kaktus
sem vex villtur í eyðimörkum
Indlands og Afríku. Kaktusinn
er með eindæmum seðjandi.
Í mörg hundruð ár hefur það
verið hefð innfæddra að safna
saman caralluma í matarforða
og taka með í langar
veiðiferðir í eyðimörkina til að
seðja hungur og þorsta.
Þær eru brattar tröppurnar
við Akureyrarkirkju.
FRÉTTASKÝRING
Björn Þorláksson
Ópal til hægri með um 80 farþega um borð. Bylting í vistvænum samgöngum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson klórar sér í kollinum yfir nýju tækninni, nýkominn um
borð í Ópal!