Akureyri - 16.07.2015, Blaðsíða 12

Akureyri - 16.07.2015, Blaðsíða 12
12 5. árgangur 27. tölublað 16. júlí 2015 Þessar niðurstöður eru áhugaverðar í ljósi þess að samtök sveitarfélaga á höfuð­ borgarsvæðinu gera ráð fyrir því að íbúum höfuð borgar­ svæðisins fjölgi um 70 þús­ und á næstu 25 árum. Helmingur íslenskra ung- linga vill helst búa erlendis Samkvæmt nýrri rannsókn Há- skólans á Akureyri vilja mun fleiri íslenskir unglingar en áður búa erlendis í framtíðinni og mun fleiri búast við því að svo verði raunin. Að sama skapi fækkar þeim sem vilja helst búa á höfuðborgarsvæð- inu eða í landsbyggðunum. Rannsóknin er hluti evrópsku ESPAD rannsóknarinnar og nær til allra íslenskra unglinga í 10. bekk grunnskóla. Hún er lögð fyrir á 4 ára fresti og er svarhlutfall í hverri fyrirlögn um á bilinu 85–92%. Yfir- gnæfandi meirihluti íslenskra ung- linga tekur því þátt í rannsókninni eða hátt í fjögur þúsund unglingar í hvert sinn. „Búsetuóskir unglinga gefa vísbendingu um stemminguna í unglingasamfélaginu og að nokkru leyti í samfélaginu í heild“, segir Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akur- eyri og stjórnandi rannsóknarinn- ar. „Svör sextán ára unglinga eru vitaskuld ekki áreiðanlegur mæli- kvarði á ákvarðanir hvers og eins í framtíðinni. Sumir hætta við að flytja og aðrir flytja þótt þeir hafi ekki ætlað sér það á unglingsárum. Í sumum tilvikum snúa brottfluttir til baka en innlent og erlent að- komufólk fyllir líka í skörðin. Hins vegar hafa íslenskar rannsóknir sýnt að búsetufyrirætlanir ung- linga hafa býsna gott forspárgildi fyrir þróun einstakra byggðarlaga yfir lengri tíma.“ Þóroddur bendir á að ung- lingarnir búist ekki endilega við því að búsetuóskir þeirra gangi eftir. Á síðustu áratugum hefur þannig til dæmis verið tilhneiging til þess að fleiri unglingar telji líklegt að þeir muni búa á höfuðborgarsvæðinu en myndu helst vilja búa þar. Hins vegar hafi fleiri helst viljað búa er- lendis en búast við því að geta það. Önnur lönd heilla Samkvæmt niðurstöðum rann- sóknarinnar vilja sífellt fleiri ís- lenskir unglingar helst búa erlend- is. Fyrir hrun árin 2003 og 2007 vildi um þriðjungur íslenskra ung- linga helst búa erlendis en réttur helmingur þeirra árið 2015. Þessi hlutföll eru lítið eitt hærri á höfuð- borgarsvæðinu en utan þess. Hlutfall þeirra sem telja lík- legast að þeir muni búa erlendis í framtíðinni er nokkru lægra en hefur þróast með svipuðum hætti og óskirnar. Fyrir landið í heild hef- ur þetta hlutfall tvöfaldast úr 18% árið 2003 í 37% árið 2015. Munur á slíkum væntingum unglinga á höfuðborgarsvæðinu og utan þess hefur einnig farið minnkandi og var aðeins um fjögur prósentustig árið 2015. Þóroddur segir mikilvægt að taka þessa viðhorfsbreytingu alvar- lega en telur ekki sérstaka ástæðu til að óttast aðdráttarafl annarra landa. „Heimurinn er gríðarlega stór og fjölbreyttur og það ætti ekki að vera sérstakt markmið að unga fólkið búi alltaf á sömu torfunni. Það á jafnt við um einstök byggðar- lög og landið í heild. Það er jákvætt að unglingar séu fullir sjálfstrausts og sjái allan heiminn sem vænlegan búsetukost. Það er hins vegar okkar sem eldri erum að skapa hér sam- félag sem gott er að flytja til, hvort fólk á hér rætur eða ekki. Í þessari alþjóðlegu samkeppni er fjölbreytni búsetukosta í stærri og smærri byggðarlögum lykilatriði þannig að sem flestir vilji snúa heim aftur með nýja þekkingu og reynslu, og ekki síður til að fólk með rætur í öðrum byggðarlögum eða öðrum löndum geti fundið hér framtíðarheimili, hvort sem það kemur hingað á eigin vegum eða til dæmis með maka á heimleið.“ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ DALAR Í heild hefur hlutfall íslenskra ung- linga sem vilja helst búa á höfuð- borgarsvæðinu lækkað úr 38% árin 2003 og 2007 í 27% árið 2015. Meginorsök þess er minnkandi Búsetuóskir íslenskra unglinga 38% 50% 32% 27% 30% 24% Önnur lönd Höfuðborgarsvæði Annað innanlands 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% 2003 2007 2011 2015

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.