Akureyri - 16.07.2015, Qupperneq 13

Akureyri - 16.07.2015, Qupperneq 13
16. júlí 2015 27. tölublað 5. árgangur 13 áhugi unglinga höfuðborgarsvæð- isins á því að búa þar áfram í fram- tíðinni, úr 53% árið 2003 í 36% árið 2015. Áhugi landsbyggðarunglinga á því að flytja á höfuðborgarsvæðið er tiltölulega lítill og hefur heldur farið minnkandi. Þannig vildu 18% þeirra helst búa á höfuðborgar- svæðinu árið 2003 en 15% árið 2015. Væntingar ungling- anna til framtíðarbúsetu á höfuðborgarsvæðinu hafa þróast með svip- uðum hætti og óskirnar. Árið 2003 töldu þrír af hverjum fjórum ung- lingum á höfuðborgar- svæðinu líklegast að þeir myndu búa þar áfram í framtíðinni en rétt rúmur helmingur árið 2015. Með sama hætti taldi þriðj- ungur landsbyggðarung- linga árið 2003 líklegast að þeir myndu búa á höf- uðborgarsvæðinu í fram- tíðinni en fjórðungur árið 2015. „Þessar niðurstöður eru áhugaverðar í ljósi þess að sam- tök sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu gera ráð fyrir því að íbú- um höfuðborgarsvæðisins fjölgi um 70 þúsund á næstu 25 árum“, segir Þóroddur. „Miðað við miðspá Hag- stofunnar verður náttuleg fjölgun á höfuðborgarsvæðinu um 50 þúsund og því virðast þessir aðilar gert ráð fyrir 20 þúsund íbúa fjölgun vegna aðflutnings. Það er tvöfalt meiri aðflutningur en þróun síðustu 25 ára gefa tilefni til að búast við. Þessar niðurstöður gefa hins vegar vísbendingu um aukinn vilja ungs fólks til að flytja frá höfuðborgar- svæðinu til útlanda en heldur minnkandi aðflutning innanlands. Samkvæmt þessu þarf gríðarmik- inn aðflutning erlendis frá til að spár um 70 þúsund íbúa fjölgun á höfuðborgarsvæðinu gangi eftir“. FRÁ LANDSBYGGÐ- UM TIL ÚTLANDA Hlutfall landsbyggðarunglinga sem vilja helst búa áfram í lands- byggðunum lækkaði umtalsvert úr 55% árið 2003 í 39% árið 2015. Þetta er þó nokkuð misjafnt eftir landshlutum. Til dæmis vildu 62% unglinga á Norðurlandi utan Akur- eyrar helst búa í landsbyggðunum árið 2003 en 52% árið 2015. Athygli vekur að nánast enginn munur er á hlutfalli þeirra unglinga sem helst vildu búa í landsbyggðunum og þeirra sem telja slíka búsetu líkleg- asta í framtíðinni. Þóroddur bendir á að þessar niðurstöður geri ekki greinarmun á búsetu í heimabyggð og annars staðar í landsbyggðunum. Á síð- ustu áratugum hafi umtalsverð þéttbýlisvæðing átt sér stað utan höfuðborgarsvæðisins og stærri bæir vaxið meðan fólki hefur fækkað í minni sjávarbyggðum og til sveita. Hugsanlegt sé að sumir unglingar í fá- mennari byggðarlögum horfi þannig til búsetu í stærri byggðarkjörnum í nálægð við heimabyggð sína. Þetta þurfi að skoða nánar. Minnkandi áhugi á búsetu í landsbyggðun- um endurspeglast eink- um í auknum áhuga á búsetu erlendis, úr 27% árið 2003 í 46% árið 2015. Sem fyrr segir hef- ur hlutfall landsbyggðar- unglinga sem helst vilja búa á höfuðborgarsvæð- inu lækkað um þrjú prósentustig og hlutfall þeirra sem búast við því hefur lækkað um sex prósentu- stig. Þeir eru því þrefalt líklegri til að vilja búa erlendis en á höfuð- borgarsvæðinu. Þóroddur telur þessar niður- stöður vera til marks um aukna alþjóðlega strauma um land allt. „Stundum hefur því verið haldið fram að fólksflutningar innanlands séu einkum milli Reykjavíkur og landsbyggðanna en flutningar milli landa séu milli Reykjavíkur og annarra landa. Myndin er þó tals- vert flóknari og hefur breyst talsvert á síðustu árum. Flutningsjöfnuður landsbyggðanna gagnvart höfuð- borgarsvæðinu hefur lagast mikið og flutningsjöfnuður höfuðborgar- svæðisins gagnvart útlöndum er svipaður og í öðrum landshlutum.“ SÉRSTAÐA AKUREYRAR Líkt og annars staðar á landinu hefur hlutfall unglinga á Akureyri sem vilja helst búa erlendis vaxið á síðustu árum, úr 31% árið 2003 í 54% árið 2015. Þetta hlutfall er því nánast það sama og á höfuðborgar- svæðinu. Hlutfall unglinga á Akur- eyri sem telja líklegast að þeir muni búa erlendis í framtíðinni tvöfald- aðist jafnframt úr 20% árið 2003 í 40% árið 2015. Áhugi akureyrskra unglinga á búsetu á höfuðborgarsvæðinu er talsvert minni en í landsbyggð- unum almennt, og minnkaði um helming milli 2003 og 2015. Þannig vildu 11% þeirra helst búa á höf- uðborgarsvæðinu árið 2003 en 5% árið 2015. Með sama hætti lækkaði hlutfall þeirra sem taldi líklegast að þeir myndu búa á höfuðborgar- svæðinu í framtíðinni úr 20% árið 2004 í 11% árið 2015. Þóroddur telur þessar niður- stöður benda til þess að unglingar á Akureyri líti framtíð sína svipuð- um augum og unglingar á höfuð- borgarsvæðinu. Sífellt stærra hlut- fall þeirra hefur áhuga á búsetu erlendis. Hins vegar sé munurinn á smáborginni Akureyri og smá- borginni Reykjavík ekki slíkur að höfuðborgarsvæðið hafi mikið að- dráttarafl fyrir unglinga á Akur- eyri, jafnvel þótt einn af hverjum tíu þeirra búist við að enda þar. Að sögn Þórodds endurspegla þessar niðurstöður styrk Akureyr- ar innanlands og mikilvægi þess að huga að stöðu hennar í alþjóð- legu samhengi. „Það myndi um- talsvert ójafnvægi felast í því að ungt fólk á Akureyri sækti einkum til Reykjavíkur meðan jafnaldrar þeirra í Reykjavík sæktu einkum til útlanda. Líkt og aðrar lands- byggðir hefur Akureyri jákvæðan flutningsjöfnuð gagnvart útlönd- um en neikvæðan flutningsjöfnuð gagnvart Reykjavík. Vitaskuld felst mikil áskorun í því að helmingur ungu kynslóðarinnar vilji helst búa erlendis en Akureyri er ágætlega í stakk búin til að takast á við þá áskorun“. a Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Sportlíf, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is og Heimkaup Uppruni allrar fæðu Ofurfæða úr hafinu MARINE PHYTOPLANKTON auk Spirulina og Chlorella • Ein hreinasta næring sem fyrirfinnst á jörðinni • Oft kallað “Gimsteinn hafsins” • Framleiðir meira en 50% af súrefni jarðar • Grunnfæða hafsins • Margfaldar orku líkamans • Jafnar pH gildi líkamans • DNA eldsneyti • Skarpari heilastarfsemi og betra minni Marine Phytoplankton er sjávar svifþörungur sem lifað hefur í höfum um alla jörð í milljarða ára. Svifþörungurinn ferðast um hafið, framleiðir meira en 50% af súrefni jarðar og býr þar með til aðstæður fyrir nánast allt líf á jörðinni. Þar sem svifþörunginn er að finna þrífst alltaf líf. Búsetuóskir unglinga í landsbyggðunum Búsetuóskir og væntingar unglinga á Akureyri Þóroddur Bjarnason prófessor: „Vitaskuld felst mikil áskorun í því að helmingur ungu kynslóðarinnar vilji helst búa erlendis en Akureyri er ágætlega í stakk búin til að takast á við þá áskorun“. Völundur 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% Helst Líklegast 3% 4% 5% 4% 5% 11% 34% 42% 54% 40% 55% 46% 27% 39% 18% 15%Önnur lönd Höfuðborgarsvæði Annað innanlands 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% 2003 2007 2011 2015 Búsetuóskir unglinga á höfuðborgarsvæðinu 53% 53% 36% 36% 11% 10% Önnur lönd Höfuðborgarsvæði Annað innanlands 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0%

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.