Reykjanes - 17.12.2015, Síða 14
23Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011
Öflugir High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.
Er bíllinn tilbúinn fyrir ferðalagið?
MANITOU MLT 625- 75 H
Nett fjölnotatæki
Lyftigeta: 2.500 kg
Lyftihæð: 5.900 mm
4-hjóladrifinn
4-hjólastýrður
75 hö, Kubota,
Hlaðinn aukabúnaði td., loftkælt ökumannshús,
skófla, gafflar, útvarp.
STAÐGREIÐSLUVERÐ KR. 8.200.000 + VSK
2x10
Þór
Á landsmóti hestamanna á
Vindheimamelum síðastliðin
laugardag afhenti Hrossarækt.is
styrk til Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna, (SKB).
Styrkurinn er afrakstur söfnunar
á vegum Hrossaræktar.is þar
sem boðnir voru upp folatollar á
Stóðhestaveislu í Ölfushöll sl.vetur
og happdrættismiðar seldir í kjöl-
farið.
Hrossaræktendur tóku málefninu
mjög vel og rúmlega 50 stóðhests-
eigendur gáfu folatolla sem nýttir
voru í uppboðið og happdrættið.
Hestamenn tóku málefninu ekki
síður vel og útkoman var veglegur
styrkur upp á kr. 2.015.000 sem
afhentur var á stærstu hátíð hesta-
manna á Íslandi í dag.
Hrossarækt.is er fyrirtæki sem á
og rekur stóðhestavefinn stodhestar.
com. Að auki stendur Hrossarækt.
is fyrir stóðhestasýningum norð-
an og sunnan heiða og gefur út
Stóðhestabók. Í vetur kviknaði sú
hugmynd hjá aðstandendum vefs-
ins að standa fyrir söfnun til handa
góðu málefni og leita þar liðsinnis
hrossaræktenda í landinu. Fyrir val-
inu varð að styrkja Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna sem hefur
um árabil stutt krabbameinsjúk börn
og fjölskyldur þeirra.
Viðstaddir afhendinguna voru
m.a. Hinrik Bragason frá Hestvit
ásamt stóðhestinum Héðni frá Feti
og Helgi Eggertsson með Stála frá
Kjarri, en þeir voru meðal þeirra sem
lögðu sitt til fjáröflunarinnar.
Við styrknum tók fjölskylda
hestafólks sem þekkir vel til starfs
félagsins en eldri sonur þeirra var
skjólstæðingu félagsins á sínum
tíma en hefur nú náð fullum bata.
Þau Rannveig Árnadóttir, Brynjar
Jón Stefánsson og Brynjar Jón
yngri tóku við styrknum fyrir
hönd Styrktarfélagsins, en fyrir
hönd Hrossaræktar.is afhenti ung
hestakona Nadía Sif Gunnarsdóttir
styrkinn.
Hulda G. Geirsdóttir, fjölmiðla-
fulltrúi Hrossaræktar.is sagði það
mikla ánægju að geta styrkt þetta
góða málefni og vildi þakka þeim
fjölmörgu hrossaræktendum sem
gáfu folatolla til söfnunarinnar sem
og hestamönnum sem voru duglegir
að styrkja málefnið.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna fékk styrk frá Hrossarækt.is
Frá afhendingu styrksins. Frá vinstri, Brynjar Jón Stefánsson, Rannveig Árnadóttir, Hinrik Bragason með Héðinn
frá Feti, Hulda G. Geirsdóttir, Guðmundur Björgvinsson, Magnús Benediktsson, Björn Kristjánsson og Snorri
Kristjánsson frá Hrossarækt.is og Helgi Eggertsson með Stála frá Kjarri. Fyrir framan standa Brynjar Jón yngri og
Nadía Sif Gunnarsdóttir með ávísunina á milli sín. Mynd / Gígja Einars
STAÐGREIÐSLUVERÐ KR. 8.200.000 + VSK
th!! Útvegum varahluti í flestar gerðir véla og tækja – á góðu verði!!
14 17. Desember 2015
Kaffihúsið Garðskálinn
Kaffihúsið Garðskálinn hefur nú opnað á neðri hæð Gerðarsafns. Í Garðskálanum
er boðið upp á hágæða súpu með
nýbökuðu súrdeigsbrauði og smurt
brauð með hátíðarívafi í hádeginu.
Þar fást nýbakaðar kökur og kaffi auk
jólakræsinga sem eru tilvalnar til gjafa.
Hjónin Ægir Friðriksson og Íris
Ágústsdóttir standa að rekstri Garð-
skálans. Íris er innanhúshönnuður
sem hefur sett svip sinn staðinn og
Ægir margverðlaunaður matreiðslu-
meistari sem hefur meðal annars verið
yfirkokkur á Kaffi Flóru og Hótel
Reykjavík Natura.
Garðskálinn er opin alla daga nema
mánudaga kl. 11: 30-17: 00.
Vilja breyta
reglum
Ráðherrar vinnumála á Norður-löndum hafa lagt sameiginlega
yfirlýsingu fyrir framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins þar sem segir
að ákaflega mikilvægt sé að breyta
reglum um atvinnuleysisbætur
þannig að þær endurspegli mun á
launa- og lífskjörum í mismunandi
ESB/EES-löndum. „Nauðsynlegt er
að almenningur í löndum okkar
upplifi að reglur ESB séu sann-
gjarnar og réttlátar og grafi ekki
undan velferðarkerfum Norð-
urlanda, „segir Jørn Neergaard
Larsen, vinnumálaráðherra Dan-
merkur.
Fjárhagsáæltun Sand-
gerðisbæjar 2016-2019
Áhersla á fjölskylduvænt samfélag,
góða þjónustu og ábyrgan rekstur
Á fundi bæjarstjórnar Sand-gerðisbæjar sem haldinn var 2. desember var afgreidd fjár-
hagsáætlun til næstu fjögurra ára. Við
afgreiðslu áæltunarinnar var eftirfar-
andi bókað:
„Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar
fyrir tímabilið 2016-2019 er unnin
með hliðsjón af 10 ára langtímaáælun
2012 til 2022. Fjárhagsáætlunin stenst
ákvæði sveitarstjórnarlaga um rekstr-
arjöfnuð og skuldaviðmið en áætlað
er að þessi viðmið náist á árinu 2019.
Eins og undanfarin ár hefur ríkt
góð samstaða innan bæjarstjórnar
við vinnslu fjárhagsáætlunar og þau
markmið sem sett hafa verið. Áætl-
unin ber þess merki að mikil áhersla
er lögð á að stuðla að fjölskylduvænu
samfélagi, má í því sambandi nefna að
í fyrsta sinn munu námsgögn verða
foreldrum nemenda grunnskólans að
kostnaðarlausu, áfram verður veittur
hvatastyrkur að fjárhæð 30 þúsund kr.
á barn á á aldrinum 4 til 18 ára aldurs
til íþrótta- og frístundastarfs, þá verður
að nýju tekin upp kennsla á móðurmáli
barna af erlendum uppruna. Niður-
greiðsla til dagforeldra hækkar í 40
þúsund kr. á mánuði miðað við fulla
vistun.
Gert er ráð fyrir að rekstrartekjur
Sandgerðisbæjar á árinu 2016 nemi
1.763 mkr. en rekstrarútgjöld nemi
1.622 mkr. án fjármagnsliða. Með
fjármagnsliðum er rekstrarniðurstaðan
neikvæð um tæpar 75 mkr.
Stærsti útgjaldaliðurinn í rekstri
Sandgerðisbæjar er fræðslu- og uppeld-
ismál en í þann málaflokk fer um 48%
af tekjum sveitarfélagsins, næst á eftir
eru æskulýðs- og íþróttamál með 12%
útgjaldanna og 9% til félagsþjónustu.
Gert er ráð fyrir að varið verði 54
mkr. í fjárfestingar og framkvæmdir
og tæpum 50 mkr. til viðhaldsfram-
kvæmda.
Gjaldskrár taka breytingum í takt við
vísitölu neysluverðs og launa og hækka
að jafnaði um 4,5%.
Verðbólga og breytingar á kjara-
samningum eru óvissuþættir sem
geta haft áhrif á fjárhagsáætlunina en
útgjöld vegna launa eru 44% af heildar-
tekjum.
Lögð er rík áhersla á gegnsæi og að-
hald í rekstri bæjarfélagsins og áfram
munu langtímamarkmið um bættan
rekstur og lækkun skulda höfð að
leiðarljósi.
Bæjarstjórn þakkar bæjarstjóra sem
og öðrum starfsmönnum Sandgerðis-
bæjar góða vinnu við gerð fjárhagsá-
ætlunar 2016-2019.
Styrkur Sandgerðisbæjar felst í þeim
mannauð sem starfar hjá bæjarfélaginu
Allir fái
framfærslu
Þingflokkur Pírata hefur lagt fram þingsályktunartillögu þar sem
félags- og húsnæðismálaráðherra er
falið að þróa tillögu að kerfi utan um
skilyrðislausa grunnframfærslu eða
svokölluð borgaralaun.
Verðlaunahafar Hvatn-
ingarverðlaun ÖBÍ 2015
Þann 3. desember s.l. á alþjóða-degi fatlaðra, veitti Öryrkja-bandalag Íslands Hvatningar-
verðlaun sín í níunda sinn að þessu
sinni hlutu eftirtaldir verðlaunin:
Í flokki
einstaklinga:
• Brynjar Karl Birgisson, fyrir Lego-
-verkefnið „Titanic“ og söguna
„Minn einhverfi stórhugur“.
Í flokki
fyrirtækja/stofnana:
• Sjónarhóll, fyrir ráðgjöf og dyggan
stuðning við réttindabaráttu foreldra
barna með sérþarfir.
Í flokki
umfjöllunar/kynningar:
• Snædís Rán Hjartardóttir, fyrir bar-
áttu sína við stjórnvöld vegna synj-
unar á túlkaþjónustu.
Verndari verðlaunanna er Forseti
Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson.
Hönnuður verðlauna er Þórunn Árna-
dóttir, vöruhönnuður.
Smá ítarefni:
Brynjar Karl hóf Titanic verkefnið þegar
hann var 10 ára gamall og tók það 11
mánuði. Skipið er gert úr 56.000 Lego
kubbum. Í kjölfarið samdi hann söguna
„Minn einhverfi stórhugur“. Hagnaður
af sölu bókarinnar hefur farið í ver-
kefnið „Mín einhverfa saga“ sem er
vinnustofa fyrir börn á einhverfurófi.
Heimasíða hans, http: //www. brynjar-
karl.com/#!media/mainPage
Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir
foreldra barna með sérþarfir. Ráðgjöf á
vegum Sjónarhóls er veitt endurgjalds-
laust á landsvísu. Ráðgjafar Sjónarhóls
eru til stuðnings foreldrum í baráttu
fyrir bættri þjónustu við börnin. http:
//www. serstokborn.is/
Snædís Rán sýndi mikinn kjark þegar
hún fór í dómsmál vegna skorts á túlka-
þjónustu. Hún vann það mál fyrir hér-
aðsdómi. Snædís Rán hefur verið mikið
í fjölmiðlum vegna baráttu sinnar fyrir
réttindum fatlaðs fólks.
https: //is-is. facebook.
com/people/Sn%C3%A-
6d%C3%ADs-R%C3%A1n-Hjart-
ard%C3%B3ttir/100000369849129