Reykjavík - 19.12.2015, Blaðsíða 2

Reykjavík - 19.12.2015, Blaðsíða 2
2 19. Desember 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Nýtt fyrirtæki á gömlum grunni Starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur var skipt upp með lagaboði í byrjun árs 2014. Með því urðu til tvö ný dótturfélög; Orka náttúrunnar og Veitur. Þar með lauk aðskilnaði samkeppnis- og sérleyfishluta rekstrarins. Móð- urfélagið, Orkuveita Reykjavíkur, dregur sig með þessu í hlé sem málsvari þjónustunnar gagnvart viðskiptavinum. Rekstrarleg ábyrgð samstæðunnar helst þó óbreytt og móðurfélagið mun áfram svara fyrir hana í heild. Veitur verða til Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna og á og rekur þrjár virkjanir; Nesjavalla- virkjun, Hellisheiðarvirkjun og Anda- kílsárvirkjun. Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, segir að þó að fyrirtækið hafi verið til í tæp tvö ár, síðan 1. janúar 2014, sé það að koma fram núna í fyrsta sinn undir nýjum merkjum. „Samkeppnisreksturinn felst í því að framleiða rafmagn og selja það, sem er í höndum ON, en sérleyfis- reksturinn felst í því að afhenda auð- lindirnar. Hann er nú höndum Veitna,“ segir hún. „Veitur einbeita sér alfarið að því að veita heitu og köldu vatni og rafmagni til heimila, fyrirtækja og stofnana, auk þess að reka fráveitu.“ Inga Dóra hefur unnið hjá fyrir- tækinu og forverum þess í tæp 20 ár. Hún byrjaði hjá Hitaveitu Reykjavíkur árið 1996, þá nýkomin frá Svíþjóð þar sem hún lagði stund á verkfræðinám. „Ég hef alltaf haft áhuga á landupp- lýsingum og kerfunum sem fylgja því,“ segir hún. „Ég byrjaði á að þróa landupplýsingakerfi fyrir Hitaveituna og á þessum 19 árum hefur starf mitt þróast í það sem það er í dag.“ Umfangsmikið lagnakerfi Lagnakerfi Veitna eru gríðarlega stór og umfangsmikil og ná til 20 sveitar- félaga á Suður- og Vesturlandi. Ef allar lagnirnar væru lagðar saman mundi kerfið ná alla leið til Shanghai í Kína – eða um 9000 kílómetra leið. Inga Dóra segir að nafnið á fyrir- tækinu hafi skapað töluvert flækju- stig eftir uppskiptinguna 2014. „Við vorum Orkuveitan, en vorum samt líka Veitur. Bæði út á við og inn á við,“ segir hún. „Starfsmenn koma nú fram undir merkjum Veitna og vinna fyrir Veitur.“ Helsta breytingin verður fyrst og fremst ásýnd gagnvart viðskiptavinunum sem eru búsettir í 20 sveitarfélögum. Ef það brestur heitavatnslögn í götunni, rafmagn fer af húsinu eða svör vantar við spurn- ingum vegna reikninga, var vaninn að leita til Orkuveitu Reykjavíkur. Nú leita viðskiptavinir til Veitna. Fimmtán þúsund tonn á klukkutíma Jólaveður og lægðir síðustu vikna hafa varla farið framhjá nokkrum. Þegar kólna fer í veðri eykst álagið á hita- veitukerfi Veitna, enda þarf töluvert meira magn af vatni til að hita upp heimili landsmanna þá en yfir sumar- mánuðina. Inga Dóra segir að kerfið sé hannað til að þola mikið álag og eðlilega sérhannað fyrir íslenskar að- stæður. „Það er mest álag hjá hitaveitu- kerfinu þegar það fer að kólna í veðri. Heitavatnsnotkunin nær þrefaldast miðað við sumrin,“ segir hún. Þegar tíðin er köldust, þá fer rennslið úr 10 þúsund tonnum á klukkutíma í 15 þúsund. Og nær allt heita vatnið fer í húshitun. Vilja Miklu- braut í stokk Á fundi borgarstjórnar á þriðju-daginn var lögðu sjálfstæðis-menn fram tillögu þess efnis að kannaðir yrðu til hlítar möguleikar á að leggja Miklubraut í stokk í gegnum Hlíðar, en þar með mætti draga úr loft- mengun og hávaða frá umferð á þessu svæði. Í tillögunni er einnig á það bent að með því að leggja Miklubraut í stokk gætu skapast möguleikar á því að þétta byggð þar sem götustæðið er nú við Miklatún, þannig að Hlíðarnar yrðu aftur að einu hverfi. Talningar sýni að um 70% umferðar eigi ekki erindi um íbúðargötur Hlíðanna. Tillögunni var vísað til borgarráðs. Ekki lengur heitur matur Ekki er lengur boðið upp á heitan mat um helgar fyrir aldraða í Eir- borgum í Grafarvogi. Um 200 manns hafa mótmælt ákvörðuninni. Jólafrí borgarstjórnar verður ekki framlengt Borgarstjórn Reykjavíkur heldur tvo fundi í mánuði. Á borg-arstjórnarfundi nú í vikunni kom tillaga frá meirihlutanum um að fella niður fyrri fundinn í janúar (5. janúar) og lengja þannig jólafrí borgarfulltrúa. Borgarfulltrúar Sam- fylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata, Vinstri grænna og Framsóknarflokks- ins og flugvallarvina (samtals 11 at- kvæði) greiddu atkvæði með því að fella niður fundinn. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins (samtals 4 at- kvæði) greiddu hins vegar atkvæði gegn tillögunni. Samþykkja þarf slíkar tillögur mótatkvæðalaust og verður fundurinn því haldinn 5. janúar. Við afgreiðslu málsins gerði Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi sjálfstæðis- manna, grein fyrir tillögunni og sagði meðal annars: „Borgarstjórn er opinn vettvangur þar sem málefni Reykja- víkurborgar eru rædd í heyranda hljóði. Að undanförnu hefur gætt sí- vaxandi tilhneigingar hjá núverandi borgarstjórnarmeirihluta að draga úr vægi borgarstjórnarfunda, t.d. með því að vísa fjölmörgum tillögum, sem þar eru fluttar af borgarfulltrúum, til borgarráðs þar sem þeim er ráðið til lykta á lokuðum fundum. Tillaga borgarstjórnarmeirihlutans um að fella niður fyrri fund borgarstjórnar í janúar og lengja þannig jólafrí borg- arfulltrúa, er af sama meiði. Ljóst er að mörg mikilvæg mál liggja fyrir borgarstjórn í upphafi nýs árs, ekki síst varðandi það hvernig tekist verði á við bága fjárhagsstöðu borgarinnar, t.d. með því hvernig 1.780 milljóna króna óútfærðri hagræðingarkröfu verði mætt og 500 milljóna óútfærðri tekjuaukningu að auki samkvæmt ný- samþykktri fjárhagsáætlun. Sjaldan eða aldrei hefur því verið ríkara tilefni til að borgarfulltrúar vinni vinnuna sína og noti reglulega fundi borgar- stjórnar til að starfa að fjármálum borgarinnar og öðrum mikilvægum málum en stingi ekki höfðinu í sand- inn og framlengi eigið jólafrí.“ Hugmyndir um lagningu miklubrautar í stokk eru ekki nýjar af nálinni. Þessi hugmyndateikning er frá því fyrir nokkrum árum. Inga Dóra Hrólfsdóttir, fram- kvæmdastjóri Veitna. Kirkjuheimsókn nemenda og kennara Góð hefð er fyrir því í Rima-skóla í Grafarvogi að nem-endur og kennarar heimsæki Grafarvogskirkju á aðventu og eigi þar góða stund saman. Krakkarnir fylltu alla kirkjubekki og sungu saman upp- áhalds jólalögin sín sem Rakel María Axelsdóttir tónmenntakennari skólans hefur æft með þeim og látið óma um ganga og stofur skólans í desember. Margir nemendur fluttu söng- og tónlistaratriði í kirkjunni og fengu frá- bærar viðtökur skólafélaga sinna með góðri þögn og innilegu klappi í lok atriða. Sr. Vigfús Þór Árnason sóknar- prestur tók á móti Rimaskólakrökkum og þakkaði þeim fyrir glæsileg atriði og prúða framkomu. Dagskránni stjórn- aði skólastjórinn Helgi Árnason sem sagði í samtali við Reykjavík vikublað „að gott skipulag og góð dagskrá í kirkjunni gerði heimsóknina svo há- tíðlega og notalega eins og reyndin hefur verið hvert ár. Geislar vetrarsólar streymdu inn í kirkjuna þennan vetr- armorgun og allir nemendur Rima- skóla gengu í jólaskapi heim á leið frá kirkjunni“. Nemendur og kennarar rimaskóla fylltu kirkjubekki Grafarvogskirkju og komu sér í þægilegt jólaskap Kjartan magnússon.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.