Reykjavík - 19.12.2015, Blaðsíða 12

Reykjavík - 19.12.2015, Blaðsíða 12
Jólatilboðsverð kr. 109.990,- Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál og svunta Fullt verð kr. 137.489,- Vitamix TNC er stórkostlegur. Mylur alla ávexti, grænmeti, klaka og nánast hvað sem er. Býr til heita súpu og ís. Til í  órum litum, svörtum, hvítum rauðum og stáli. Besti vinurinn í eldhúsinu Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is GAFLARALEIKHÚSIÐ Það er gaman í Gaaraleikhúsinu á nýju ári Miðasala - 565 5900 - midi.is-gaaraleikhusid.is Hvítt - Töfraheimur litanna Frumsýning Sunnudagur 17. janúar kl 16.00 Heimsfræg verðlaunasýning fyrir yngstu börnin Góði dátinn Hasek Frumsýning Laugardagur 5. mars, 2016 kl. 20.00 Nýtt sprellörugt verk eftir Karl Ágúst Úlfsson 19. Desember 2015 Ekki til nein rétt uppskrift að fullkomnum jólum Ég hef verið að hugsa það undan-farið hvað það er langt frá því að allir eigi gleðileg jól. Þegar maður er svona mikið jólabarn eins og ég, enda fædd á jólum, þá gerir maður stundum ráð fyrir því að öllum öðrum finnist þetta einn besti tími ársins. En það er alls ekki þannig. Fyrir marga er þetta nefnilega einn erfiðasti tími ársins. Margir eiga um sárt að binda Margt spilar inn í að fólk geti ekki átt gleðileg jól. Fjárhagsáhyggjur gera þennan tíma t.d. afar erfiðan hjá mörgum. Þá líður þeim sem kljást við þunglyndi oft illa á þessum árstíma og svo eru það allir þeir sem hafa misst ástvini á árinu og halda nú jól án þeirra. Þetta fólk á um sárt að binda. Við hin sem eigum þess kost að halda gleðileg jól þurfum að passa upp á allt þetta fólk og sýna samhug í verki. Jólin eru hátíð kærleikans og það er einmitt á þessum árstíma sem það besta brýst fram í fólki. Ótrúlegustu einstak- lingar verða meyrir og sýna kærleikann í verki – sem er auðvitað alveg hreint frábært. En þótt við segjum að enginn eigi að vera einn um jólin þá má ekki heldur troða félagsskap upp á þá sem það alls ekki vilja. Sumum líður bara þannig að þeir vilja fá að vera einir og það þarf í sjálfu sér ekki að vera það versta. Reyndu að hafa þetta eins og er best fyrir þig Allir verða að fá að halda jólin eins og þeim hentar. Það er engin rétt upp- skrift til að fullkomnum jólum því sitt sýnist hverjum um það. Og svo koma jólin líka oft á óvart og í minningunni eru það einmitt gjarnan jólin þar sem eitthvað fór úrskeiðis sem við munum best eftir og hugsum til með hlýhug. Ekki gera eitthvað um og fyrir jólin af því þér finnst að þú eigir að gera það – því það er ekki til þess fallið að láta þér líða vel. Þótt hún Gunna vinkona þín baki fimm sortir af smákökum, Anna frænka sendi 50 jólakort og Palli frændi höggvi sitt eigið jólatré þá þarft þú ekki að gera neitt af þessu. Allt snýst þetta fyrst og fremst um kærleikann og að þér líði vel með það sem þú gerir. Jólin eru ekki kapphlaup og það er ekki gott að nenna ekki jólunum af því þér finnst kröfurnar of miklar. Höldum okkar eigin jól … en ekki jól eins og aðrir vilja. Því eitt er alveg öruggt og það er að jólin koma hvort sem við erum búin að þrífa allt hátt og lágt, gera konfekt og sultu eða skreyta matar- borðið óaðfinnanlega. Njótum þess að vera með þeim sem okkur þykir vænt um og gætum að öllum þeim sem eiga erfitt á þessum tíma. Megi þið öll finna frið og gleði á jólum. Kærleikskveðja, Jóna Ósk Pétursdóttir 12 REYKJAVÍK VIKUBLA Ð VI KU BL AÐREYKJAVÍK Auglýsingasíminn er 578 1190 KOKTEILL.IS Jóna Ósk Pétursdóttir jona@kokteill.is Fiskur um jól og áramót Fyrir mörgum er skatan ómis-sandi á Þorláksmessu. Við ræddum við fisksalana í Fisk- búðinni Hafinu, sem er í Skipholti, Spönginni og Hlíðarsmára. Þeir sögðu skötuna komna nú þegar í hús „og hún verður hér fram að jólum. Hnoðmörin og hamsatólgin er líka á sínum stað og rúgbrauðið líka“. Okkur á Reykjavík vikublaði lék forvitni á að vita hvernig fiskneyslu borgarbúa sé háttað um jólin, en að sögn fisksalanna í Hafinu er grafinn og reyktur lax vinsæll á þessum árstíma, líka síld og humar. „Margir halda í gamlar hefðir á þessum árstíma og belgja sig út af kjöti en það er nú samt alveg hellingur af fólki sem er farið að breyta til og fá sér fisk á jólunum sem er ekki síðri veislumatur. Svo losnar maður við allan bjúg og brjóstsviða ef maður er bara í fisknum.“ Mynd: Markús Örn Antonsson.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.