Reykjavík - 19.12.2015, Side 14

Reykjavík - 19.12.2015, Side 14
14 19. Desember 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð P IP A R \ TB W A • S ÍA • 1 5 58 5 0 DESEMBERTILBOÐ Á VETRARKORTUM Sími: 4115555 og 5303002 Opið alla virka daga kl. 9–13 og 13:30–17. Fullkomin jólagjöf fyrir fjölskylduna, vini og vandamenn! Vetrarkort í Bláfjöll og Skálafell eru komin í sölu og fást í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5 og Mohawks, Kringlunni. Pantaðu og fáðu sent í síma 5303002 eða á midar@skidasvaedi.is. Vetrarkort í Bláfjöll og Skálafell Söngskólinn í Reykjavík Í byrjun janúar verða inntökupróf í örfá skólapláss sem losna: 11. janúar byrja 7 vikna söngnámskeið: SÖNGNÁMSKEIÐ • Unglingadeild yngri 11-13 ára • Unglingadeild eldri 14 -15 ára • Almenn tónlistardeild Grunn-/ Mið-/ Framhaldsnám • Háskóladeild Einsöngs-/ Söngkennaranám • fyrir áhugafólk á öllum aldri • kennt utan venjulegs vinnutíma • raddbeiting / túlkun / tónfræði Nánari upplýsingar : songskolinn@songskolinn.is • www.songskolinn.is SÖNGNÁM Skrifstofa skólans verður opin frá 5. janúar 2016 MENNING Ættfræðiþjónustan í Skerjafirði ORG - ættfræðiþjónustan ehf. er íslenskt fyrirtæki sem sér-hæfir sig í ættrakningum og söfnun allra þeirra ættfræðigagna sem Íslendinga varðar og þar með eru talin gögn um Vestur-Íslendinga. Þá er átt við allt það fólk sem þetta land byggir og hefur byggt, forfeður þess erlendis og afkomendur erlendis og allt fólk er því tengist og unnt er að afla upplýsinga um. ORG-ættfræðiþjónustan býður einstaklingum upp á ættrakningar gegn vægu gjaldi. Framkvæmdastjóri og að- aleigandi ORG-ættfræðiþjónustunnar er Oddur Helgason, ættfræðingur og fyrrverandi sjómaður. Hátíðarhljómar við áramót Á gamlársdag verður boðið upp á hátíðartónlist fyrir þrjá trompeta, orgel og pákur í Hallgrímskirkju. Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson, Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari og Eggert Pálsson pákuleikari flytja glæsi- leg hátíðarverk, meðal annars eftir Vivaldi, Purcell, Bach og Albinoni. Áramótastemningin hefst með há- tíðarhljómum þeirra félaga. Aðgangs- eyrir 3500 kr., en félagar í Listvinafélagi Hallgrímskirkju fá helmingsafslátt. Jólatónleikar kammersveitar Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur verða haldnir í Ás-kirkju á morgun, sunnudaginn 20. desember og hefjast klukkan 17: 00. Á efnisskránni er meðal annars Branden- borgarkonsert nr. 5 eftir Johann Sebast- ian Bach. Sveitin fær að þessu sinni til liðs við sig ungan sembal- og orgelleik- ara frá Vínarborg, Jeremy Joseph. Aðrir einleikara verða Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari. Miðasala á Miði.is. Ingólfur Arnarson nam sem kunnugt er land í reykjavík, en hjá Ættfræði- þjónustunni eru ættir Íslendinga meira að segja raktar aftur fyrir landnám. björn steinar sólbergsson orgelleikari.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.