Reykjavík - 19.12.2015, Side 16
SÍÐUmúla 9 · SÍmi 530 2900lágmúla 8 · SÍmi 530 2800 · ormsson.is
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
Samsung valið,
enn á ný, besta
sjónvarpið í Evrópu
65” Samsung JS9505
990.000.-
Samsung 9,7” spjaldtölva fylgir með hverju seldu SUHD tæki.
24/25
Bestu sjónvörpin
skv. Neytendablaðinu 24.09.15 og IRCT. t l i . . I
65” Samsung JU7005
489.900.-
399.900.-
65” Samsung JU6075
65” Samsung JS9005
749.900.-
65” Samsung JU7505
499.900.-
Auglýsingar: 578 1190 & auglysingar@fotspor.is Ritstjórn: 897 7040 & bjornjon@pressan.is
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
19. Desember 2015 • 34. tölublað 6. árgangur
BAKSÍÐAN
Elísabet Gísladóttir
framkvæmdastjóri
Lýðheilsusetursins Ljósbrots
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
Auglýsingasíminn
er 578 1190
Tryggir
öruggan bakstur
R O YAL
Margir kannast við að gátlistinn lengist þegar jólin nálgast. Við
teljum okkur trú um að þurfa að klára
hann svo jólin verði fullkomin. Þrífa
allt, baka, þræða á milli búða, mæta
í jólaboð, fara á jólasýningar o.s.frv.
Margt er ómissandi og ánægjulegt í
jólaundirbúningnum og liður í að
komast í jólaskap með fjölskyldu og
vinum. En stundum getur tilstandið
orðið það mikið að það vex okkur yfir
höfuð og okkur finnst við ekki ráða við
aðstæður. Við förum að hafa áhyggjur
af öllu sem við eigum eftir að gera sem
við komumst ekki yfir með góðu móti.
Það getur valdið streitu, kvíða, vansæld
og svefnleysi sem síðan getur haft slæm
áhrif á heilsuna.
Ef við erum meðvituð um hvernig
okkur líður þá eru meiri líkur á að við
endurskoðum hvað það er sem við
teljum okkur þurfa að gera til að upplifa
ánægju af jólaundirbúningnum. Hvað
er mikilvægt og hverju má sleppa?
Vel valdar gjafir, sem sprengja ekki
vísareikninginn, gefnar með gleði og
kærleika eru mikils virði. Samvera eða
samtal skila dýrmætum minningum.
Jólailmurinn af hangikjötinu, greninu
eða kökuilmurinn, ef við höfum tíma
til að baka, gefa jólastemmingu. Tiltekt
og skreytingar ættu líka að vera fyrst
og fremst ánægjulegar. Hægt er að gera
margt fallegt án þess að ofgera neinu,
til dæmis kveikja á kertum. Við leyfum
okkur meira í mat og drykk um jólin
en hófsemi er öllum góð.
Jólin koma þó svo að við höfum
ekki klárað listann. Því er mikilvæg-
ast að við njótum líðandi stundar í
aðdraganda jólanna. Hugsum um
fjölskyldu og vini, náungann og til
þeirra sem minna mega sín. Með já-
kvæðum hugsunum til mannkyns alls
og jarðarinnar finnum við fyrir sam-
kennd. Þegar kirkjuklukkurnar hringja
inn jólin getum við upplifað hvernig
andartakið verður heilagt, vitandi að
kærleikur og friður jólanna er innra
með okkur. Hin fullkomnu jól.