Reykjavík - 19.12.2015, Qupperneq 16

Reykjavík - 19.12.2015, Qupperneq 16
SÍÐUmúla 9 · SÍmi 530 2900lágmúla 8 · SÍmi 530 2800 · ormsson.is FYRIR HEIMILIN Í LANDINU Samsung valið, enn á ný, besta sjónvarpið í Evrópu 65” Samsung JS9505 990.000.- Samsung 9,7” spjaldtölva fylgir með hverju seldu SUHD tæki. 24/25 Bestu sjónvörpin skv. Neytendablaðinu 24.09.15 og IRCT. t l i . . I 65” Samsung JU7005 489.900.- 399.900.- 65” Samsung JU6075 65” Samsung JS9005 749.900.- 65” Samsung JU7505 499.900.- Auglýsingar: 578 1190 & auglysingar@fotspor.is Ritstjórn: 897 7040 & bjornjon@pressan.is VI KU BL AÐREYKJAVÍK 19. Desember 2015 • 34. tölublað 6. árgangur BAKSÍÐAN Elísabet Gísladóttir framkvæmdastjóri Lýðheilsusetursins Ljósbrots VI KU BL AÐREYKJAVÍK Auglýsingasíminn er 578 1190 Tryggir öruggan bakstur R O YAL Margir kannast við að gátlistinn lengist þegar jólin nálgast. Við teljum okkur trú um að þurfa að klára hann svo jólin verði fullkomin. Þrífa allt, baka, þræða á milli búða, mæta í jólaboð, fara á jólasýningar o.s.frv. Margt er ómissandi og ánægjulegt í jólaundirbúningnum og liður í að komast í jólaskap með fjölskyldu og vinum. En stundum getur tilstandið orðið það mikið að það vex okkur yfir höfuð og okkur finnst við ekki ráða við aðstæður. Við förum að hafa áhyggjur af öllu sem við eigum eftir að gera sem við komumst ekki yfir með góðu móti. Það getur valdið streitu, kvíða, vansæld og svefnleysi sem síðan getur haft slæm áhrif á heilsuna. Ef við erum meðvituð um hvernig okkur líður þá eru meiri líkur á að við endurskoðum hvað það er sem við teljum okkur þurfa að gera til að upplifa ánægju af jólaundirbúningnum. Hvað er mikilvægt og hverju má sleppa? Vel valdar gjafir, sem sprengja ekki vísareikninginn, gefnar með gleði og kærleika eru mikils virði. Samvera eða samtal skila dýrmætum minningum. Jólailmurinn af hangikjötinu, greninu eða kökuilmurinn, ef við höfum tíma til að baka, gefa jólastemmingu. Tiltekt og skreytingar ættu líka að vera fyrst og fremst ánægjulegar. Hægt er að gera margt fallegt án þess að ofgera neinu, til dæmis kveikja á kertum. Við leyfum okkur meira í mat og drykk um jólin en hófsemi er öllum góð. Jólin koma þó svo að við höfum ekki klárað listann. Því er mikilvæg- ast að við njótum líðandi stundar í aðdraganda jólanna. Hugsum um fjölskyldu og vini, náungann og til þeirra sem minna mega sín. Með já- kvæðum hugsunum til mannkyns alls og jarðarinnar finnum við fyrir sam- kennd. Þegar kirkjuklukkurnar hringja inn jólin getum við upplifað hvernig andartakið verður heilagt, vitandi að kærleikur og friður jólanna er innra með okkur. Hin fullkomnu jól.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.