Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 18.04.2011, Qupperneq 1
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 5. tbl. 19. árg. nr. 561 18. apríl 2011
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Oddi
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
eða með tölvupósti til:
vai@vegagerdin.is
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka .
Útgáfa er óregluleg og nokkrar vikur geta liðið milli tölublaða.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur, fjölmiðlar og
áhugafólk. Áskrift er endurgjaldslaus.
5. tbl. /11
Morgunverðarfundur um almenningssamgöngur 13. apríl sl. Pallborðsumræður. Frá vinstri: Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra,
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi í Reykjavík og formaður samgönguráðs, Ásgerður Halldórsdóttir
bæjarstjóri Seltjarnarness og formaður stjórnar SSH (Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu), Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri
Hveragerðis og Reynir Jónsson framkvæmdastjóri Strætó BS.
Innanríkisráðherra Ögmundur Jónasson kynnti á morgun
verðar fundi um almenningssamgöngur að samgönguráð legði
til að ríkið setti tíu milljarða króna á tíu árum í tilraunverkefni
á mót framlagi sveitarfélaga. Þannig rynni einn milljarður
króna frá ríkinu árlega til verkefnisins sem yrði síðan
endurmetið á tveggja ára fresti.
Um er að ræða almenningssamgöngur í þéttbýli. Ríkið hefur
lítið sem ekkert komið að þeim þætti en hinsvegar hefur verið
veittur styrkur til almenningssamgangna á landsbyggðinni,
til ferja, vegna sérleyfa og til flugs eða sem nemur um 10
prósentum af fé til vegamála. Tillagan gengur út á að stór
framkvæmd um í annarri vegagerð á höfuðborgarsvæðinu
verði frestað.
Fundurinn var haldinn 13. apríl og var mjög vel sóttur af
ríflega 100 manns.
Ögmundur sagði að tilraunaverkefnið, ef af yrði, sneri að
Tíu milljarðar á 10 árum til almenningssamgangna frá ríkinu
samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og alls suðvesturhorns
landsins. Hann hefði trú á því að þetta myndi ganga en
tilgangurinn væri að gera almenningssamgöngur greiðari,
hagkvæmari og sjálfbærari.
Starfshópur innan samgönguráðs hefur unnið að þessum
tillögum sem eru um grunnnet almenningssamgangna og
hjólreiða, þannig að þar sé að finna svipað grunnnet og
varðandi vegi, hafnir og flugvelli. Fram kom í máli Þorsteins
Rúnars Hermannssonar samgönguverkfræðings að grunnetið
á suðvesturhorni landsins ætti að tengja saman sveitarfélög
á höfuðborgarsvæðinu og borgarhverfi með 10 þúsund íbúa
eða meira. Netið yrði samtengt öðrum samgöngumátum, flugi
og höfnum og tengdist einnig almenningssamgöngum við
Árborg, Akranes og Reykjanesbæ.
Hann nefndi einnig að til að efla almenningssamgöngur þarf
hvort tveggja fjármuni og úthald, skammtímahugsun skilaði
Þessi frétt birtist á vegagerdin.is 13.04.2011