Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 18.04.2011, Síða 6
6
Frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar
Árlega veitir Vegagerðin styrk til rannsóknaverkefna.
Styrkirnir eru fjármagnaðir af svonefndu tilraunafé, sem er
nú 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar. Velflestum
verkefnum lýkur með því að skrifaðar eru skýrslur og eru
þær settar á heimasíðu Vegagerðarinnar öllum opnar til
skoðunar. Hér á eftir er gerð örstutt grein fyrir efni nokkurra
af þeim skýrslum sem komið hafa út, en nánari upplýsingar
má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar (www.vegagerdin.
is), undir „Upplýsingar og útgáfa / Rannsóknaskýrslur“.
Samanburður á einásabrotstyrk og
punktálagsstyrk borkjarna frá vegganga- og
virkjunarsvæðum september 2009
Rannsóknin var gerð til að finna fylgnistuðul milli
einásabrotstyrks og punktálagsstyrks fyrir mismunandi
berggerðir. Niðurstöður benda til, þó frávik mælinga sé
mikið, að fylgni milli þessara þátta sé háð berggerð og
styrk bergsins. Sett er fram líking fyrir sambandið.
Alvarleg umferðarslys
á höfðuborgarsvæðinu september 2009
Rannsóknanefnd umferðarslysa greindi um 70 umferðarslys
á höfuðborgarsvæðinu árið 2008. Af þessum 70 slysum
voru 25 árekstrar bifreiða og sjö af hverjum tíu þeirra voru á
gatnamótum. Algengasta orsök var talin að ökumenn sýndu
ekki nægilega aðgát við akstur. Alls hlutu 18 gangandi
vegfarendur meiðsli í slysum á höfðuborgarsvæðinu árið
2008. Flestir hinna slösuðu voru 55 ára eða eldri. Helming
slysanna mátti rekja til aðgæsluleysis ökumanna og helming
til að gangandi vegfarendur gengu inn á akbraut fyrir bíl.
Fjórtán alvarleg bifhjólaslys urðu og í átta af þeim missti
ökumaður stjórn á hjólinu og féll í götuna. Í skýrslunni
koma fram tillögur til úrbóta.
Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu
mikil meiðsl og banaslys (2008)
Tunneling inacidic, altered and
sedimentary rock in Iceland –
Búðarhálsvirkjun september 2009
Jarðfræði Íslands er sérstök borið saman við jarðfræði
heims ins. Aðstæður til jarðgangagerðar á Íslandi eru oft
erfið ar, sérstaklega þegar göng innihalda fjölbreytt jarð
lög í stafni, grunnvatn, sprungur og innskot. Markmið
verkefnisins var að kanna aðstæður til jarðgangagerðar í
súru, ummynduðu og setbergi. Með aðstoð reiknilíkans
var styrkingaþörf ganganna í Búðarhálsi skoðuð, en þar er
að finna súrt berg sem sjaldgæft er í jarðgangagerð á Ísland.
Helstu niðurstöður sýndu að þversnið standast álag miðað við
hönnun á styrkingum, en þó þyrfti að rannsaka ákveðin atriði
betur t.d. láréttar spennur á svæðinu.
Háannatímalíkan – Framtíðarspá september 2009
Tilgangur verkefnisins var að þróa umferðalíkan fyrir
háannatíma, í framhaldi af þróun nýs umferðarlíkans höfuð
borgarsvæðisins. Háannatímaumferð er sú umferð sem nánast
öll hönnun innanbæjar miðar við. Niðurstöður verkefnisins
voru að umferðarspár háannatímalíkans eru af svipuðum
gæðum og umferðarspá sólahringslíkans. Einnig kemur fram
að hægt væri að bæta gæði spáa til dæmis með ítarlegri
ferðavenjukönnun. Þá er nefnt að gríðarlega mikilvægt sé að
fá upplýsingar um starfafjölda í hverjum reit, sem notaður er í
líkaninu en til þess eru nokkrar aðferðir mögulegar.
Spá morgunn, 2024