Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Page 4
4 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
„Mér finnst ég hafa verið ærlegur stjórnmálamaður,u segir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Hann ætlar að sitja áfram í borgarstjórn sem
oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Hann
segir að það hafi aldrei komið til greina að hætta í borgar-
stjórn þrátt fyrir fjölmiðlaumræðu síðustu vikna.
Blaðamaður DV hitti Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson og Guðrúnu Krist-
jánsdóttur, konu hans, í eftirmið-
daginn í gær, er þau voru á leiðinni
út úr bænum í góða veðrinu. Vil-
hjálmur er þreytulegur en einbeitt-
ur á svipinn og stutt í brosið. Brosið
er Vilhjálmi eiginlegt - jafnvel núna
- eftir að hann hefur verið miðdepill
fjölmiðlaumræðu um störf hans og
framtíð í borgarstjórn, nokkuð sem
hann og fjölskylda hans hafa upplif-
að sem einelti af hálfu fjölmiðla.
Borgarstjórinn fyrrverandi, eða
„gamli, góði Villi" eins og hann var
kaUaður síðasdiðið sumar þegar allt
lék í lyndi og 60 prósent borgarbúa
voru ánægð með störf hans, hefur
á skömmum tíma kynnst sterkari
meðbyr og miskunnarlausari mót-
byr en dæmi eru um meðal íslenskra
stj órnmálamanna.
Samstaða en óvissa um
borgarstjóra
f síðustu viku benti allt til þess að
Vilhjálmur léti alfarið undan harðri
fjölmiölagagnrýni og drægi sig end-
anlega í hlé frá orrahríð stjórn-
mála og fjölmiðla. Nú hafa hann og
borgarstjórnarflokkurinn hins veg-
ar komist að sameiginlegri niður-
stöðu: Á fundi borgarstjórnarflokks-
ins sem var haldinn í gærmorgun
var ákveðið að Vilhjálmur gegndi
áfram starfi oddvita sjálfstæðis-
manna í Reykjavík enda hefur hann
til þess óskoraðan stuðning borgar-
stjórnarflokksins. Ákvörðun um það
hver verður borgarstjóri flokksins
eftir rúmt ár verður hins vegar tek-
in sameiginlega af borgarstjórnar-
flokknum þegar nær dregur.
En ríkir ekki enn sama óvissan,
Vilhjálmur? Það er enn á huldu hver
verður næsti borgarstjóri.
„Ég veit ekki til þess að borg-
arstjórnarflokkar eða meirihlut-
ar í borgarstjórn hafi nokkurn tíma
ákveðið það með meira en árs fyr-
irvara hver eigi að taka við borg-
arstjóraembætti. Við þurfum ekki
annað en líta um öxl hér í Reykja-
vík til að átta okkur á því að rúmt
ár er langur tími í pólitík og stjórn-
málamenn verða að sjálfsögðu að
ráða því hvenær er rétt að taka stór-
ar ákvarðanir sem þessa. Fjölmiðl-
ar hafa svolftið verið að spiía upp á
þá stemmingu, að Reykvíldngar sofi
varla því þeir viti ekki hver verður
borgarstjóri eftir rúmt ár. Ég held
að þeir sofi ágætlega. Ég geri það að
minnsta kosti."
Fjölmiðlar ráði ekki ferðinni
En hvers vegna þessi niðurstaða,
Vilhjálmur, að allt sé opið með það
hver verður borgarstjóri? Er þetta
háttvís leið til að ýta þér til hliðar?
„Nei, engan veginn. Þetta er ekki
síst mín ákvörðun. Undanfarna daga
og vikur hef ég óneitanlega staðið í
miklu fjölmiðlafárviðri. Ég legg hins
vegar áherslu á að borgarstjórnar-
flokkurinn taki þessa ákvörðun í
sameiningu, með hagsmuni flokks-
ins og borgarbúa að leiðarljósi, og
að fjölmiðlafárið um mig hafi ekki
óeðíileg áhrif á þá niðurstöðu."
Ýmsir gerðu ráð fyrir því llok síð-
ustu viku að þú myndir stíga alfarið
til hliðar. Kom það til álita?
„Nei. Það kom aldrei til greina
að ég hætti sem borgarfulltrúi. Ég
var alla tíð staðráðinn í því að láta
ekki mjög neikvæða og afar einhæfa
umfjöllun fjölmiðla segja mér fyrir
verkum í þessum efnum.
Það hefði í raun orðið ólýðræðis-
leg niðurstaða og háskaleg skilaboð
til fjölmiðla og almennings. Ábyrg
gagnrýni málefnalegra fjölmiðla er
lýðræðinu mikilvæg. En fjölmiðlar
eiga ekki að segja stjórnmálamönn-
um fyrir verkum. Það gerir samviska
þeirra - og kjósendur á endanum."
Ertu ekkert smeykur við þá af-
stöðu að menn telji þig eetla að þrá-
ast við, hvað sem tautar og raular?
„Nei. Það hefur aldrei hvarfað
að mér „að þráast við, hvað sem
tautar og raular". Ég hef aldrei haft
í hyggju að skaða flokkinn minn eða
hugsjónir okkar eða sitja í trássi við
meirihlutaafstöðu borgarstjórnar-
flokksins. Ég hef hins vegar borgar-
stjórnarflokkinn og formann flokks-
ins að baki mér þó fjölmiðlar séu
stöðugt að gefa annað í skyn. í krafti
þess hef ég tekið þessa ákvörðun."
Frægur Kastljósþáttur
Nú hefurþú gert mistök og viður-
kennt það. Hefur ekki hvarflað að þér
að mistökin séu afþeim toga að þér
beri siðferðileg skylda til að stíga til
hliðar?
„Nei. Þau eru ekld af þeim toga.
Þau eru ekki siðferðileg í þeim skiln-
ingi að ég hafi vísvitandi brotið lög
eða breytt gegn betri vitund. Það er
reginmunur á margvfslegum yfir-
sjónum ófúllkominna manna - og
ég er í hópi þeirra - og siðferðilegum
brestum sem felast í óheilindum.
Ég veit það best sjálfúr að það
hefur aldrei verið ætlun mín að gefa
rangar eða villandi upplýsingar um
aðkomu mína að REI-málinu. f fræg-
um Kastljósþætti sem mikið hefur
verið vitnað til varð mér það á - und-
ir miklu álagi - að segjast hafa bor-
ið tiltekið álitamál undir borgarlög-
mann þegar ég hafði í rauninni borið
það undir fyrrverandi borgarlög-
mann. Sá aðili var borgarlögmaður í
tólf ár og ég átti nána samvinnu við
hann um langt árabil. Þetta leiðrétti
ég skilmerkilega við fyrsta tækifæri.
f sama Kastljósþætti varð stjóm-
anda þáttarins það á að segja mig
tvísaga í fyrri Kastljósþáttum. Það var
röng ásökun enda leiðrétt í Kastljós-
þætti daginn eftir. Það hvarflar hins
vegar hvorki að mér né öðrum að
þáttarstjórnandinn hafi að yfirlögðu
ráði ætlað að koma höggi á mig með
röngum ásökunum. Þetta vom ein-
faldlega mannleg mistök í hita leiks-
ins.
Og fyrst við erum að ræða um
mistök má vel halda því til haga að
á tólf daga tímabili hafa fréttamenn
ríkisfjölmiðla þurft að leiðrétta þrjár
rangfærslur sínar um mig og beðist
velvirðingar."
Mannleg mistök eða óskeikull
leiðtogi?
En hafa valdamiklir stjórnmála-
menn efni á alvarlegum mistökum?
„Það fer eftir því hvers eðlis mis-
tökin em. Stjórnmálamenn ættu
ekki að komast upp með óheilindi.
Það á enginn að gera. En við emm öll
mannleg og ófullkomin í þeim skiln-
ingi að við tökum stundum ákvarð-
anir sem ekki em þær heppilegustu
með hliðsjón af markmiðum okkar.
Stjórnmálamenn em þar engin und-
antekning. Okkur hættir stundum til
að þrá hinn óskeikula leiðtoga sem
alltaf tekur hárréttar ákvarðanir og
Situr áfram „Ég hef aldrei haft í hyggju að skaða
flokkinn minn eða hugsjónir okkar eða sitja í trássi við
meirihlutaafstöðu borgarstjórnarflokksins. Ég hef hins
vegar borgarstjórnarflokkinn og formann flókksins að
baki mér þó fjölmiðlar séu stöðugt að gefa annað í
skyn. (krafti þess hef égtekið þessa ákvörðun."