Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
A
Tveirturnar
Stjórnarandstöðuþingmenn-
irnir yrðu aðeins þrettán talsins
ef kosið væri nú samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Sjálfstæðisflokkur nýtur
stuðnings fjörutíu prósenta
landsmanna óg fengi 27 þing-
menn samkvæmt könnuninni, 35
prósent myndu kjósa Samfýlk-
inguna og tryggja henni 23 þing-
menn. Vinstri-græn fengju 14
prósent atkvæða og 9 þingmenn
en sex prósenta fylgi myndi skila
Framsóknarflokknum fjórum
þingmönnum. Loks myndu
ffjálslyndir þurrkast út, flokkur-
inn mælist með tæpra fjögurra
prósenta fylgi.
Útlendingarvilja
skjóta hreindýr
Alls bárust 3.137 umsóknir um
hreindýraveiðileyfi til Umhverfis-
stofirunar en frestur til umsókna
rann út á miðnætti þann 15.
febrúar. Af þeim umsóknum sem
bárust reyndust 99 ógildar sökum
skorts á réttindum. Þá eru fimm-
tíu gildar umsóknir frá erlendum
veiðimönnum sem sýna þessum
veiðum meiri áhuga með hverju
árinu. Dregið var úr umsóknum á
laugardaginn í húsnæði Þekking-
arnets Austurlands, ÞNA, á Egils-
stöðum.
Brást illa við
rukkuninni
32 ára karlmaður, Örn Úlriks-
son, var fyrir helgi dæmdur í 30
daga fangelsi fyrir lfkamsáras.
Atvikið átti sér stað þann 28. júlí
2006 fyrir utan Hverfisgötu 86.
öm sló annan mann í andlit-
ið með billjardkjuða en sverari
endinn lenti í höfði fómarlambs-
ins, Höggið var þungt og kjuðinn
bromaði þvert þegar hann skall á
höfðinu.
Fórnarlambið sagðist í skýrslu-
töku hafa ætíað að rukka félaga
Arnar um skuld en hann hafi
bmgðist illa við. Hann hafi fengið
öm til að lúskra á honum. Höggið
kom á vinstri augabrún með þeim
afleiðingum að sauma þurfti ell-
efu spor í andlit mannsins.
Áréttað
Vegna greinar í helgarblaði
DV um píramídakerfi, fjársvik
og ýmsar leiðir til að hagnast
auðveldlega skal áréttað að
greinin fjallaði hvort tveggja
um lögleg fyrirbæri og ólög-
leg. Ekki stóð til að gefa í skyn
að fyrirbæri á borð við mark-
aðssetningu Herbalife stang-
aðist á við lög. Einfaldlega
var bent á margvíslega þrepa-
skipta markaðssetningu þar
sem sumir hafa grætt og aðrir
setið uppi með tap.
Niöurstaða Breiðavíkurnefndarinnar liggur fyrir. Þar er frásögn Breiðavíkurdrengj-
anna af illri meðferð og kynferðislegu ofbeldi staðfest. Víglundur Þór Víglundsson,
stjórnarmaður Breiðavíkursamtakanna, segir beinagrindurnar loksins komnar út úr
skápnum. í sama streng tekur formaður samtakanna, Konráð Ragnarsson.
Breiðavíkurnefndin Skýrsla Breiðavíkurnefndarinnar var kynnt á
föstudaginn en þar var ill meðferð á vistmönnum heimilisins staðfest.
VÍTISVISTIN L0KS
VIÐURKENND
„Það hefur mikill
tilfínningahiti verið
í gangi undanfarna
daga"
VALUR GRETTISSON 1
blaöamadur skrifar: valunadv.is P
„Það er alveg dásamlegt að ofbeldið
skuli nú vera viðurkennt af stjórn-
völdum," segir Víglundur Þór Víg-
lundsson, stjórnarmaður Breiða-
víkursamtakanna og fyrrverandi
vistmaður á Breiðavík. Hann segir
síðastíiðna viku hafa verið afar tauga-
trekkjandi fyrir fyrrverandi vistmenn
heimilisins meðan beðið var eftir
skýrslu forætisráðuneytis um heim-
ilið sem var birt á föstudag.
Niðurstaða skýrslunnar er ský-
laus; vistmenn voru beittir ofbeldi,
bæði af starfsmönnum sem og öðr-
um vistmönnum. Nú er kvalafullt ár
Breiðavíkurdrengjanna liðið. Nið-
urstaðan er ljós - forsætisráðherra
hyggst smíða frumvarp um skaða-
bótaskyldu gagnvart drengjunum.
Beinagrindur úr skápnum
Það var í febrúar í fyrra sem
DV flutti fréttir af vítisvist
Breiðavíkurdrengjanna.
Þar var varpað Ijósi
hina hryllilegu með-
ferð sem þeir fengu.
á
Þar á meðal var viðtal við Helga Dav-
íðsson sem lýsti forstöðumanninum,
Þórhalli Hálfdánarsyni, sem sadista.
Nú er Þórhallur látinn en ör þeirra
sem þar dvöldu eru langt í frá gróin.
f kjölfar umfjöllunar DV fylgdu fleiri
fjölmiðlar eftir og úr varð að skýrsl-
an um Breiðavík var unnin. Niður-
staða hennar er fyrst og fremst viður-
kenning á því sem mennirnir gengu
í gegnum. Það er það sem Víglundi
þykir best. Beinagrindurnar eru
komnar út úr skápnum.
Skíthræddir við
niðurstöðuna
„Við vor-
um alveg skít-
hræddir við
útkomuna,
sumir hafa
meira að það
segja iokað
sig inni
alla
Viglundur Þor Viglundsson Stjórnarmaöur
Breiðavíkursamtakanna og fyrrverandi vistmaður
helmilisins segir niðurstöðuna dásamlega.
vikuna vegna kvíða," segir Víg-
lundur um taugastríð Breiðavík-
urdrengjanna undanfarna daga.
Sjálfur segir Víglundur að hann
hafi haft verulegar áhyggjur af nið-
urstöðunum. Astæðan er sú að
hann óttaðist um sálarheill þeirra
sem verst fóru út úr vistinni á
heimilinu.
„Það hefur mikill tilfinningahiti
verið í gangi undanfarna daga," seg-
ir Vtglundur og má heyra að þungu
fargi er létt af honum sjálfum.
Leyndarmálið afhjúpað
„Þetta er náttúrulega það sem
við höfum alltaf sagt, skýrslan
er staðfesting á því," segir Kon-
ráð Ragnarsson, formaður
í Breiðavíkursamtakanna, um
skýrsluna sem nefhdin skil-
aði af sér. Sjálfum þykir Konráði
mestu skipta að hið ljóta leynd-
armál sem Breiðavík var sé nú
endanlega upplýst. Hann seg-
ir skýrsluna góða enn sem kom-
ið er, en hann var ekki búinn að lesa
hana alla þegar blaðamaður hafði
samband við hann. Að sögn Konráðs
er skýrslan athyglisverð lesning, þá
helst vegna nýrra upplýsinga sem
finna má í henni.
Breiðavík Veran þar hefur skilið eftir
djúp ör í sálum manna. Vítisvistin loks
viðurkennd.
Ráðfæra sig við lögfræðing
„Það er líka ágætt að sjá að það
sem þessir menn gerðu okkur var
líka ólöglegt þá, eins og í dag, þetta
verður ekki útskýrt með rökum um
tíðaranda," segir Konráð en eftirlit-
sleysi með heimilinu, sem og fram-
koma starfsmanna, var bönnuð bæði
samkvæmt stjórnsýslulögum sem og
almennum hegningarlögum.
Konráð segir næsta mál á dagskrá
að funda með nefndinni sem vann
skýrsluna. Svo mun lögffæðingur
fara yfir málin og í kjölfarið verður
ákvörðun tekin um næstu skref.
„Þetta er fyrst og fremst mjög
ánægjulegur áfangasigur," segir Kon-
ráð um skýrsluna.
Ritstjórn DV og Kastljósið fengu rannsóknarblaðamennskuverðlaunin 2007:
Verðlaunin afhent Blaðamannaverðlaun ársins voru veitt í fimmta sinn.
Ritstjórn DV og þau Þóra Tómas-
dóttir og Sigmar Guðmundsson
deildu með sér verðlaununum fyrir
bestu rannsóknarblaðamennsku á
síðasta ári. Verðlaunin voru afhent
á laugardag þar sem veitt voru verð-
laun fyrir það sem þótti skara fram úr
í störfrim fjölmiðla á síðasta ári.
Kristján Már Unnarsson, frétta-
maður á Stöð 2, fékk blaðamanna-
verðlaunin 2007 fyrir upplýsandi
fréttir um hversdagslíf á landsbyggð-
inni og þær þjóðfélagsbreytingar
sem eru að verða á íslensku samfé-
lagi. Taldi dómnefnd að hann hefði
með þessum hætti stuðlað að sterk-
ari samfélagsvitund landsmanna
allra.
DV opnaði umfjöllunina um illa
meðferð piltanna sem voru sendir
til Breiðavíkur og fjallaði í framhald-
inu um hvernig farið var með börn
á fleiri uppeldisheimilum sem yfir-
völd sendu þau á. Kastljósið fjallaði
um hvernig farið var með piltana í
Breiðavík. f umsögn dómnefndar
segir að miðlarnir tveir hafi svipt hul-
unni af viðkvæmu leyndarmáli.
Þeir átta fulltrúar DV sem hlutu
verðlaunin ákváðu að láta verð-
launaféð, 75 þúsund krónur, renna
til Breiðavíkursamtakanna.
Jóhannes Kr. Kristjánsson og
Kristinn Hrafrtsson fengu verðlaun-
in fýrir bestu umfjöllun ársins 2007
fyrir umfjöllun sína í Kompási um
byssur á svörtum markaði á íslandi,
ástandið í frak og um heilablóðfall
og heilablæðingu.
Blaðaljósmyndaraverðlaunin
voru einnig afhent á laugardag. Egg-
ert Jóhannesson fékk tvenn verðlaun
fyrir mynd sína af Gunnari I. Birgis-
syni, í afmæli bæjarstjórans í Kópa-
vogi. Hún var hvort tveggja valin
mýnd ársins og skoplegasta myndin.
Júlíus Sigurjónsson, ljósmyndari á
Morgunblaðinu, átti fréttamynd árs-
ins. Aðrir ljósmyndarar sem fengu
verðlaun eru þeir Brynjar Gunnars-
son, Eyþór Árnason, Hörður Sveins-
son, Kristinn Magnússon, Valgarður
Gíslason og Vilhelm Gunnarsson
brynjolfur@dv.is