Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Qupperneq 7
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 7
YFIRHEYRSLA: BIRKIR JON JONSSON
EG ER EKKISPILAFIKILL
Aðalatriðið er að ég hef engin lög brotið með spilamennsku
minni, segir Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknar-
flokksins, sem hefur sætt gagnrýni fyrir að taka þátt í fjár-
hættuspili. Hann segir furðulegt hvernig leigja megi sali undir
sums konar spilamennsku eins og bingó en ekki aðra. Hann
segist hafa gaman af spilum en ekki haldinn fíkn.
SIGURÐUR MIKAEL JONSSON
blaöamcidur skrifar:
Birkir Jón Jónsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins, komst
í sviðsljósið eftir að hann viður-
kenndi að hafa unnið í fjárhættu-
spili. Enn hitnaði undir Birki Jóni
þegar því var haldið fram í Síðdegis-
útvarpi Rásar 2 á dögunum að hann
hefði verið viðstaddur þegar lög-
regla gerði innrás í spilavíti við Suð-
urgötu 27 árið 2002. Mikil umræða
varð um meinta spilafíkn Birkis
Jóns og þung orð látin falla. DV tók
Birki Jón í yfirheyrslu.
■ Varst þú viðstaddur þegar lög-
regluna bar að garði til að upprœta
spilavíti að Suðurgötu 27 árið 2002?
m „Nei, ég var ekki á þessum stað
þegar lögreglan mætti enda þótt ég
hafi á þessum tíma, þá um 22 ára
aldurinn, litið nokkxum sinnum
þarna við í góðra vina hópi."
■ Þú segist hafa spilað 21 á þessum
stað, er það löglegt en ekki póker?
m „Lögmæti tuttuguogeins eða pó-
kers er einfalt enda þótt fyrirkomu-
lagið sé ekkert sérstaklega rökrétt:
Það brýtur ekki í bága við lög að
leggja undir í spilum - en í sumum
tilfeúum, en öðrum ekki, er ólög-
legt að leigja húsnæði eða hafa með
öðrum hætti tekjur af því að útvega
aðstöðu fyrir spil upp á peninga. Eg
geri ráð fyrir að þar séu póker og tut-
tuguogeinn í sama flokki, en spila-
kassar virðast vera í flokki með til
dæmis salarkynnum undir bingó og
fleiri spil þar sem hinir heppnustu
„hirða pottinn".
■ Nú greindi Síðdegisútvarp Rásar2
frá því að austur-evrópskar fylgdar-
dömur hefðu verið á svæðinu. Varst
þú var við það og var eitthvað mis-
jafnt í gangi í þessum spilasal um-
fram póker og bjórdrykkju?
m „Ég var, eins og komið hefur fram,
ekki á staðnum og varð aldrei var við
neitt „misjafnt". Eg sá aldrei neinar
fylgdarkonur á staðnum, hvorki ís-
lenskar né útlenskar."
■ Þú segist aðeiris hafa spilað póker
tvisvar upp á peningá þar tilgerðum
stöðum og leggirþað ekki í vana þinn.
En þú hlýtur að hafa staðið eitthvað í
þessu fyrstþú komst inn í mótiðgegn-
um þetta sérstaka boðskerfi sem tal-
að var um, verið í innsta hring?
m „Um þessar mundir fagnar póker
mikJum vinsældum. Menn taka í
spil í heimahúsum og margir fylgj-
ast með útsendingum frá pókermót-
um á íslensku sjónvarpsstöðvunum.
Ég hef spilað póker í vina- og kunn-
ingjahópi í örfá skipti rétt eins og
ég spfla bridds við ýmis tækifæri og
aUs kyns önnur spU bæði innan og
utan fjölskyldunnar þegar skemmti-
leg tækifæri gefast. Ég hef liins vegar
haldið mig frá því sem hér er kallað
„þar til gerðum stöðum", en þó með
nýlegri undantekningu sem augljós-
lega hefur vakið mikla athygli."
■ Hverju svarar þú ásökunum og
bollaleggingum undanfama daga
um að þú eigir við spilafíkn að
stríða?
■ „Vangaveltur um slíkt eiga ekki
við nein rök að styðjast. Ég hef hins
vegar gaman af því að spila á spil -
rétt eins og öðrum finnst gaman að
spila golf, dansa, borða góðan mat
eða dreypa á góðu víni með góðum
mat. Sem betur fer nær þorri fólks
að njóta áhugamála sinna og lysti-
semda án þess að verða fíklar. Eg er
í þeim hópi hvað öU mín áhugamál
varðar."
■ Telur þú sjálfur þig eiga við vanda-
mál að stríða?
m „Nei."
■ Nú segir Júlíus Þór Júlíusson, for-
maður Samtaka áhugafólks um
spilajikn, þetta athcefi fyrir neðan
allar hellur í viðtali á visir.is. Telur
þú þig vera að upphefja fjárhœttuspil
með því að stíga Jjram og viðurkenna
þátttöku þína í mótinu?
m „Nei, en ég er sannfærður um að
við eigum að ræða opinskátt um lög-
mæti ólíkra fjárhættuspUa og sam-
ræma leikreglumar."
■ Júlíus gefur til kynna ísama viðtali
að hann hafi í gegnum tíðina talað
margoft við þig meðal annars sem
formann fjárlaganefhdar, og reynt
að sœkja styrk fyrir starf samtaka
„Ég ersannfærður
um að við eigum að
ræða opinskátt um
lögmæti ólíkra fjár-
hættuspila og sam-
ræma leikreglurnar."
sinna en segir sig hafa mætt grjót-
vegg. Hajði þín eigin spilamennska
.og persónulega skoðun á fjárhœttu-
spilum áhrifá ákvarðanatöku íþess-
um málefnum?
m „Nei, að sjálfsögðu læt ég persónu-
leg áhugamál mín eða viðfangsefni
ekki hafa áhrif á þau störf sem mér
er trúað fyrir á pólitískum vettvangi.
Ákvarðanatökur á borð við þær sem
nefndar eru í spumingunni em
ekki teknar af mér einum en auð-
vitað hef ég, eins og svo margir aðr-
ir í álíka stöðu, þurft að taka afstöðu
sem hugnast ekki alltaf þeim sem tU
hins opinbera leita eftír stuðningi.
Forvarnir, eftírUt og meðferðarúr-
ræði eiga hins vegar stöðugt að vera
tíl umfjöllunar og endurskoðunar á
vettvangi Afþingis."
■ En þú hlýtur að skilja viðbrögð
fólks gagnvart því að þingmaður
spili póker, sem afflestum er álitinn
ólöglegur? Er það í lagi afþví hann
er tæknilega séð ekki ólöglegur
nema menn hafi afþví atvinnu eða
hýsi mót? Spilar siðferðileg skylda
sem gerð er til þingmanna ekkert
hlutverk þegar kemur að málum
sem þessum?
m „Jú, siðferðileg skylda þingmanna
skiptir aUtaf máU. En það skiptir Ulca
máli að hafa kjark tíl þess að spyma
við fótum þegar tíl dæmis fjölmiðl-
ar setja sig í þær steUingar að þing-
menn megi ekki eins og annað fóUc
eiga sér einlcalíf. Aðalatriði málsins
er auðvitað að ég hef engin lög brot-
ið með spilamennsku minni og ég
er staðráðinn í að fara í hvívetna að
þeim lögum sem í landinu gilda eins
og flestir aðrir landsmenn. Ég seldi
hins vegar eldd sjálfsagðan rétt minn
til þess að Ufa Ufinu eins og mig lang-
aði tíl þótt ég sæktist eftír umboði tíl
þess að láta gott af mér leiða á Alþingi
Islendinga."
■ Munt þú berjast fyrir því að póker
verði lögleiddur á íslandi?
m „Ég hef ekki leitt hugann neitt sér-
staklega að því. En ég sé augljósa
þörf fyrir að umræðunni um hvað sé
leyfilegt og hvað ekki við spilaborð-
ið verði haldið áfram og ég mun hik-
laust reyna að leggja þar orð í belg."
■ Sagan segir að þú hafir eins og
hundruð annarra Islendinga farið
illa út úr kaupum þínum í deCODE
og samsæriskenningar verið uppi
umaðþú sért að reyna að vinna upp
tap þitt með fjárhœttuspilum. Er eitt-
hvaðtilíþessu?
m „Ég er viss um að aUir lesendur
þessa viðtals em sammála um að
þessari spumingu eigi ég einfald-
lega ekki að svara. Kjaftasögum um
persónulega hagi fólks verður vænt-
anlega aldrei komið endanlega fyrir
kattamef en mér finnst að fjölmiðlar
eigi að sjá sóma sinn í því að forðast
bæði það að kveikja slflcar sögur og
kynda undir þeim. Ég get hins veg-
ar sagt að ég er mjög sáttur við það
hvernig mér hefur tekist að stíga mín
fyrstu skref í að koma mér undir eig-
ið þak og standa fjárhagslega í fæt-
uma. En þrátt fyrir þingsetu mína
kýs ég að eiga einkalíf mitt og fjár-
hagslegar aðstæður í eins miklum
friði og frekast er unnt."
Allt ,tem þú þarft á rúmid.
Náttföt á hana.
Silki • Daniadk • Bómullar.tatín • Sœngur í úrvali • Rúmteppi
Hjá okkur fáiðþiðocengur, rúmfatnaðog fleira fyrirfermingarbarnið.
Vcnð.tœngurfataver.tlun, gceði í GUeoibœ
Verið var Aofnað árið 1961 og befur verið leiðanði igœðum alla tið víðan. Al/t ,<ern þú þarft á riuriið.
Glauribœ, Álfbeimum 74, 104Reykjavík • Súni 552 0978