Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Page 10
10 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 UmræSa OV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hrelnn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Asmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins á stafrænu formi og (gagnabönkum án endurgjalds. öll viötöl blaðsins eru hljóðrituö. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 7040. SANDKORN ■ Svosemkunnugterhlautrit- stjórn DV verðlaun fyrir rann- sóknarblaðmennsku á laugar- daginn vegna umfjöllunar um Breiða- víkurbörnin. Það mátti sjá á Fréttablað- inu í gær að ekkivoru mennþará bæsáttirvið að fá engin verðlaun fremur en Morgunblaðið. Blaðið fjallaði ekki einu orði um blaðamanna- verðlaunin en á forsíðu var sagt frá því að tveir af ljósmyndurum blaðsins, Villielm Gunnarsson og Valgarður Gíslason, hefðu fengið verðlaun Blaðaljósmyndarafé- lagsins. ■ Geir H. Haarde forsætisráð- herra fór á kostum við opnum sýningar Blaðaljósmyndarafélags íslands í Gerðarsafni á sunnudag. Við opnun- arræðu hans mátti í bak- grunni sjá myndafhon- um að kyssa Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt- iu-, formann Samfylkingar, við upphaf stjóm- arsamstarfsins. Geir glotti þegar hann sagði að myndin segði ekld alla söguna. Salurinn hló en þá bætti Geir því við að kona hans, Inga Jóna Þórðardóttir, hefði ver- ið inni í Þingvallabænum. ■ Ljósmynd ársins átti ljós- myndarinn Eggcrt Jóhannesson sem myndar gjarnan fyrir Séð og heyrt. Myndin er af Gunn- ari I. Birgissyni, bæjarstjóra í Kópavogi, með grímu fyrir and- litinu. Af einhverjum ástæðum hafði þessi myndþó aldrei birst opinber- lega fyrr en á sýningunni í Gerðarsafni þar sem bæjarstjórinn sjálfur var mættur til að njóta athyglinn- ar. En það brá mörgum þegar verðlaunamyndin birtist á bak- síðu Moggans sem fór í prentun tveimur tímum áður en verð- launin vom kynnt. ■ Að baki er átakahelgin þeg- ar Vilhjálmur I>. Vilhjálms- son, leiðtogi sjálfstæðismanna, sveigði Sjálfstæðis- flokkinn til hlýðni við sig. Sagtvar frá áJcvörðun hans á dv.is fyrir hádegi á föstudag og fréttastofa Stöðvar 2 birti sjö tímum síðar frétt sem var sú sama. Stcin- grímur S. Ólafsson fréttastjóri og Lára Ómarsdóttir fféttamaður sáu ekki ástæðu til að geta frum- heimildar. DV barst að þessu tilefrii bréf þar sem lagt var til að þau yrðu tilnefnd til verðlauna í rannsóknarblaðamennsku fyrir góða eftirfylgni við dv.is. Til varnar Vilhjálmi LEIÐARI REYNIR TRAUSTASON RITSTJORISKRIFAR. ISlóóng valdabarátta innanflokks hcföi kostad inun hieiriJ'órnir. Vilhjálmur Þ. Vilhjáimsson, leiðtogi Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík, hefur staðið af sér eitt mesta stórviðri sem stjórnmálamaður á íslandi hef- ur álpast inn í. Hann hefur unn- ið fullan sigur á andstæðingum sínum innan Sjálfstæðisflokksins sem vildu koma honum úr embætti. Sú niðurstaða sem varð í gær er stórsigur fyrir Vilhjálm sem sveigt hefur flokk- inn til hlýðni við sig. í leiðurum DV hefur ver- ið hvatt til þess að Vilhjálmur hverfi frá völd- um og Hanna Birna Kristjánsdóttir taki við embætti hans. Um þá leið gat borgarstjórnar- ílokkurinn ekki komið sér saman. Sjálfur hef- ur Vilhjálmur einsett sér að sitja áfram og ná aftur trausti borgarbúa og það er nú á hans valdi. Borgarfulltrúar eiga ekki aðra kosti en þá að fylkja sér að baki leiðtoga sínum. í sjálfu sér er það ekki afleitur kostur. Blóðug valda- barátta innanflokks hefði kostað mun meiri fórnir. Vilhjálmur Þ. er að flestra mati gull af manni og fráleitt að halda því fram að hann hafi orðið uppvís að spillingu. Hann nýt- ur vinsælda meðal borgarbúa en mistök hans voru þau að þenja of mikið þann ramma sem embætti hans er ætlað að starfa inn- an. Vilhjálmur var kærulaus í REI-málinu og vissi lítið hvað þar var að gerast. Hann fór stundum fram úr sjálfum sér og gleymdi að hafa nauðsynlegt samráð við samstarfsfólk sitt. Uppreisn sexmenninganna gegn honum var skiljanleg í ljósi þess að ruglað var saman hagsmunum opinbers fyrirtækis og einkafyrir- tækis. Þar liggja mistök hans. En það er ástæða til að verja Vilhjálm. Hann er saklaus maður pólitískt séð uns sekt hans sannast. Seinasta uppákoman var vegna þess að hann sagði ósatt í spjallþætti um aðkomu borgarlögmanns. Það er ekki ástæða til af- sagnar. Það má ekki gleymast að Vilhjálmur er grandvar og sjálfsagt að gefa honum nýtt tæki- færi, fyrst flokkurinn þorir. Vandinn er hins vegar að sú vetrarlægð í pólitísku lífi Vilhjálms sem nú hefur gengið yfir er aðeins sú fyrsta af nokkrum. Næsta stórviðri verður þegar álit umboðsmanns Alþingis á REI-málinu kemur fram. Þá þarf Vilhjálmur aftur að verjast. Það kann svo að fara að Sjálfstæðisflokkurinn stórtapi á ákvörðun oddvitans en við þvi er ekkert að gera. Flokkurinn hefur lagt á djúpið og það er engin leið til baka. Teningunum er kastað. ER ÞETTA ENGIN FRÉTT? að fréttamaðurinn fyrrverandi er nú orðinn blaðafulltrúi Vegagerð- arinnar, þeirrar hinnar sömu og ber alla vega hluta ábyrgðarinn- ar á mörg hundruð milljón króna framúrkeyrslu. Spurning er hvort viðhorfið hafi breyst svo svakalega að nú vakni alltaf sama spurningin ef óþægilegir hlutir gerast: Þetta er engin frétt, er það? Vérkefni fréttamannsins eru gjörólíkverkefnum al- mannatengilsins. Frétta- manninum er ætlað að leita sann- leikans, grafa upp það sem falið er en á erindi við almenning, segja satt og rétt frá, greina frá stað- reyndum málsins, sjá hvort orð- um fylgja efndir, hvort menn segi sannleikann eða skjóti sér á bak við orðskrúð, skila kjarnann frá hisminu, setja hlutina í sitt eðlilega samhengi, athuga hverjar forsend- urnar eru og hverjar afleiðingarn- ar verða. Verkefni fréttamannsins er margþætt. Verkefni almanna- tengilsins verður oft fyrst og fremst að gæta þess að umbjóðandi hans líti vel út. Á þessu er grundvallar- munur. SVARTHÖFDI Jónas Kristjánsson, ritstjóri til áratuga og einn reyndasti og fróðasti maðurinn um fjölmiðla, sagði einu sinni að í hvert skipti sem fjölmiðlamaður réði sig til starfa í almannatengslum batnaði siðferðisvitundin íbáðum stéttum. Hugsunin hefur væntanlega verið sú að aðeins íjölmiðlamennirnir með slökustu siðferðisvitundina færu úr því að segja fréttir í að gerast mál- svarar hagsmunaaðila. Samt væri siðferðisvitund þeirra betri en þeirra sem fóru beint í almannatengslin en komu ekki við á fjölmiðlum. En nú að allt öðru. Þær eru merkilegar greinarnar sem G. Pétur Matthíasson hefur stundum skrifað um Grímseyjar- ferjuna. Það er ekki annað að skilja en að þessum fyrrverandi frétta- manni Sjónvarps finnist áhugi fjölmiðla á þessu máli furðulegur, jafnvel annarlegur. Þannig skrif- aði hann nýlega blaðagrein um fréttir af seinkunum og aukakostn- aði vegna síðustu viðgerðarinnar á Grímseyjarferjunni frægu. Þar fannst honum mikið gert úr litlu máli og tók til að jafnvel þótt lok viðgerðarinnar yrðu síðar en til stóð væri það ekki seinkun í raun og veru því verkdagarnir væru jafnmargir og að var stefnt, vegna skorts á efnum dreifðust þeir bara á lengri tíma en áður. En það er samt sennilega engin töf. Skrýtið. En svo er auðvitað á það að líta DÓMSTÓLL GÖTUNNAR Á HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR AÐ VERÐA BORGARSTJÓRI? „Það er erfitt að segja. Jú, ætli það sé ekki bara ágaett." Pálmi Magnússon, 23 ára gröfumaður „Ég er að verða ofboðslega þreytt á þessari vitleysu. Maður þarf að geta treyst þessu fólki en staöan er ekki þannig í dag." Björg Ólafsdóttir, 24 ára póstbifreiðarstjóri „Nei, ekki Hanna Birna. Ég held að þegar svona er komið aetti að leita út fyrir borgarstjórnarflokkinn. Það hefur verið gert með góðum árangri sums staðar." Eyþór Sigfússon, 37 ára verkfraeðingur „Ég er á báðum áttum. Alla vega er ég ekki hrifinn af Ólafi F. Magnússyni." Brynjar Kári Eiríksson, 16 ára nemi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.