Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Qupperneq 12
12 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008
Sport
BIKARÚRSLIT KVENNA
Grindavík - Haukar 77-67
Stig UMFG:Tiffany Roberson 24, Joanna
Skiba 22, Petrúnella Skúladóttir 17, Jovan
Lilja Stefánsdóttir 6, Ólöf Helga Pálsdóttir
6, Ingibjörg Jakobssdóttir 2, Berglind
Magnúsdóttir2.
Stig Hauka: Kiera Hardy 19, Kristrún
Sigurjónsdóttir 15, Guðbjörg Sverrisdóttir
9, Ragna Margrét Brynjardóttir8,Telma
Björk Fjalarsdóttir 4, Bára Hálfdánardót-
tir 2.
BIKARÚRSLIT KARLA
Fjölnir - Snæfell 109-85
Stig Fjölnis: Anthony Drejaj 26, Níels
Dungal 17, Sean Knitter 12, Pete Strobl 8,
Tryggvi Pálsson 11, Kristinn Jónasson 5,
Hjalti Vilhjálmsson 5, Valur Sigurðsson 5,
Helgi Þorláksson 2.
Stig Snaefells: Sigurður Þorvaldsson 30,
Justin Shouse 27, Slóbodan Subasic 24,
Hlynur Bæringsson 8, Jón 0. Jónsson 7,
Anders Kattholm 6, Ingvaldur Hafsteins-
son 2, Sveinn Daviðsson 2, Árni Ásgeirs-
son 2, Guöni Valentínusarson 1.
N1 - DEILD KARLA
Afturelding - (BV 28-25
Mörk ÍBV: Sergiy Trotsenko 9, Sigurður
Bragason 7, Zilvinos Grieze 3, Leifur
Jóhannesson 2, Grétar Þór 2, Sindri Har-
aldsson 1, Nikolaj Kulikov 1
Varin skot: Kolbeinn Arnarsson 13, Friðrik
Sigmarsson 1
Mörk UMFA: Hilmar Stefánsson 8, Magnús
Einarsson 6, Einar Guðmundsson 4, Daníel
Jónsson 4, Hrafn Ingvarsson 2, Haukur
Sigurvinsson 2 og Davíð Ágústsson 2.
Varin skot: Oliver Kiss 14, Davlð Svanson
10
Fram - Haukar 32-37
Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 12,
Andri Stefan 10, Ellas Már Halldórsson 7,
Gunnar Berg Viktorsson 5, Kári Kristján
Kristjánsson 1, Jón Karl Björnsson 1, Freyr
Brynjarsson 1
Varin skot: Magnús Sigmundsson 5, Glsli
Guðmundsson 6
Mörk Fram: Andri Berg Haraldsson 8,
Haraldur Þorvarðarson 6, Jóhann Gunnar
Einarsson 4, Rúnar Kárason 4, Halldór
Jóhann Sigfússon 2, Stefán Baldvin Ste-
fánsson 2, Hjörtur Hinriksson 2, Guðjón
Finnur Drengsson 1, Björn Guðmundsson
1, Einar Ingi Hrafnsson 1, Jón Björgvin
Pétursson 1
Varin skot: Björgvin Gústafsson 8, Magnús
Erlendsson 3
Staðan
Lið L U J T M St
1. Haukar 18 12 4 2 522:462 28
2. Fram 18 11 2 5 515:487 24
3. Valur 18 10 3 5 497:450 23
4. Stjarnan 18 10 2 6 532:488 22
5.HK 18 10 2 6 498:454 22
6. Akureyri 18 4 4 10 485:496 12
7. UMFA 18 3 3 12 442:483 9
8. ÍBV 18 2 0 16 458:629 4
Fengu hrós Gunnar Jarl Jónsson og
Hörður Aðalsteinsson dæmdu vel.
Toppsætið tryggt Aron Kristjánsson
þjálfari Hauka var sáttur (leikslok.
Gefðu boltann, ég er frfr Ásgeir
Jónsson vill fá sendlngu inná Knu.
Snæfell varð í gær Lýsingarbikarmeistari karla í körfubolta þegar þeir lögðu Fjölnl í
Höllinni, 109-85. Leikurinn var skotsýning og þá sérstaklega hjá Snæfelli þar sem þrír
leikmenn skoruðu vel yfir tuttugu stig. Sigurður Þorvaldsson var sjóðandi heitur og
setti þrjátíu stig í leiknum. A A
L0KS ALV0RU
TITILL í HÓLMINN
„Þegar maður er heitur þá hætt-
ir maður ekki að skjóta," sagði Sig-
urður Þorvaldsson, leikmaður Snæ-
fells, við DV eftir leik. Það var líka
eins gott fyrir Sigurð að hann hætti
ekki að skjóta því hann skoraði 30
stig, þar af átta þriggja stiga körfur,
í 109-85 bikarsigri Snæfells á Fjölni í
gær. „Þetta er skemmtilegasti leikur
ársins. Hér er einfaldlega allt undir.
Annaðhvort geriru þetta almenni-
lega en ferð heim í fylu, þannig er
það bara," bætti Sigurður við áður
en hann hljóp til að láta mynda sig
með félögunum.
Fjölnir lítil mótstaða
Snæfell kom mun sterkari til
leiks með téðan Sigurð Þorvalds-
son svo heitan að það rauk úr hon-
um. Danski leikstjórnandinn, Justin
Shouse, var einnig gífurlega öflugur
og skoraði tuttugu og sjö stig en þeir
tveir hófu áhlaup Snæfells sem átti
ekki eftir að ljúka.
Hólmarar leiddur með tíu stig-
um eftir fyrsta leikhluta, 30-20, en
Fjölnismenn sóttu í sig veðrið í öðr-
um leikhluta. Anthony Drejaj átti
stórleik og skoraði tuttugu og sex
stig en undir hans forystu virtust
Grafarvogspiltar líklegir til þess að
koma til baka. Þeir komust þó ekki
nær en tíu stig þökk sé Slobodan Su-
basic sem vildi vera með Sigurður
og Shouse í skotsýningunni. Snæfell
leiddi í hálfleik, 48-48.
Skotýning var þetta svo sann-
arlega en ekki var hægt að sjá fleiri
þriggja stiga körfur á einum velli
en á Parketinu í Laugardalshöll í
gær. Það væri þá helst í þriggja stiga
keppni stjörnuleiks NBA en spurn-
ingamerki þarf að setja við það. Því
miður fyrir Fjölni var það einun-
igs Drejaj sem tók þátt í keppninni
í gær á meðan Shouse, Sigurður og
Subasic sáu um sitaskorun Snæfells
og var það ójafn leikur.
Munurinn var orðinn sautján stig
fýrir lokafjórðunginn, 77-70, og að-
eins spurning um hversu stór sigur-
inn yrði. Listsýningu Snæfells lauk
svo á endanum með tuttugur og
fjögurra stiga sigri, 109-85, og voru
Hólmarar vel að titlinum komnir.
Davíð hafði betur gegn Golíat
Justin Sliouse vat frábær í liöi
Snæfells í gær.
I
Léttir og sigurtilfinning
Hlynur Bæringsson fór illa með
Fjölnispilta undir körfunni og reif
niður nánast hvert einasta frákast
sem í boði var. Hlynur er búinn
að bíða lengi eftir titli. „Þessi til-
finning er frábær. Það var ótrúlega
skemmtilegt að spila þennan leik
og frábær stuðningur sem við feng-
um að Vestan. Þetta fólk er búið að
bíða lengi eftir titli eins og við í lið-
inu. Þetta er bæði léttir og sigurtil-
finning fyrir mig, það smá segja að
þetta sé svona allur pakkinn," sagði
Hlynur við DV eftir leik.
„Leikurinn átti alltaf eftir að fara
eftir því hvernig við spiluðum. Við
hefðum getað gert þetta að jöfnum
leik ef við hefðum spilað illa en það
gerðist ekki. Fjölnir tróð líka öllum
mönnunum inn á teiginn og því
var mikið pláss fyrir skotmennina.
Shouse, Siggi og Slobodan hittu líka
öllu og það er oft vænlegt til árang-
urs í körfubolta," sagði Hlynur glað-
ur í bragði að lokum.
Þeir völtuðu yfir okkur
Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjöln-
is, var að taka þátt í sínum þriðja
bikaúrslitaleik en hann hefur nú
tapað þeim öllum. Báður var svekkt-
ur í leiks lok. „Snæfell var einfald-
lega miklu ákveðnari en við í öllu og
þeir jörðuðu okkur í fráköstunum.
Allan tímann vorum við að tala um
það að láta þá finna meira fyrir okk-
ur í vörninni og stíga þá betur út en
það gerðist ekkert af því.
Byrjunin á öðrum leikhluta var
góð og ég var að vona að við mynd-
um snúa þessu aðeins við. Þá var
þetta svo sem ekkert slæmt hjá okk-
ur því munurinn var ekki mikinn í
hálfleik og við upphaf þriðja leik-
hluta. Þá gat enn allt gerst. Snæfell
ætlaði sér allan tímann miklu meira
en við. Hlynur Bæringsson óð yfir
okkur allan leikinn og ef þú tekur
ekki á Snæfelli þá bara jarða þeir
þig," sagði Bárður við DV eftir leik.