Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Síða 17
PV Sport
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 17
■
Fernando Torres fór á kostum í liði Liverpool þegar hann skoraði þrjú mörk
í skemmtilegum leik á Anfield. 1
Fagnað FernandoTorres
fagnaröðru marki sínu.
HÖRÐUR SNÆVAR JÓNSSON
bladamaður skrifar: borduttadv.is
Liverpool tók á móti Gareth South-
gate og lærisveinum hans í Middles-
brough á laugardag. Gengi Liverpool
í síðustu viku var ansi misjafnt, það
tapaði fyrir Bamsley í enska bikarn-
um en í miðri viku lagði liðið Inter á
heimavelli í Meistaradeildinni og er í
góðri stöðu fyrir síðari leikinn. Leik-
menn Middlesbrough fengu sann-
kallaða draumabyrjun, þegar átta
mínútur voru liðnar af leiknum tók
Stewart Downing aukaspymu úti á
hægri vængnum og gaf fyrir. Vamar-
menn Liverpool ætluðu sér að hlaupa
út og sldlja sóknarmenn Middles-
brough eftír rangstæða en það mis-
tókst og Tuncay Sanli var einn og
óvaldaður inni í teig og átti ekki í
vandræðum með að koma boltanum
framhjá hinum spænska Pepe Reina.
Tuttugu mínúmm eftír að Middles-
brough komst yfir jafnaði Femando
Torres. Julio Arca ætlaði sér að skalla
boltann til baka en Fernando Torres
komst inn á milli og náði boltanum,
hann lék á Mark Schwarzer og lagði
boltann í netið, snyrtílega gert hjá
Spánverjanum knáa sem hefur verið
frábær fyrir Liverpool á þessari leik-
tíð. Aðeins mínútu síðar náði Fem-
ando Torres að koma Liverpool yfir,
Fabio Aurelio sendi boltann á Torres
sem var fyrir utan teig. Spánverjinn
var ekkert að tvínóna við hlutína og lét
bara að vaða á markið og skoraði frá-
bært mark, óverjandi fyrir Schwarzer
í marki Boro.
Þegar rúmur klukkutími var liðinn
af leiknum kom löng sending frá vall-
arhelmingi Liverpool, Schwarzer fór í
skógarúthlaup en náði ekki til knatt-
arins, Torres náði hins vegar boltan-
um og lagði hann í netíð, þrennan
komin hjá Torres og þetta var hans
fyrsta frá því að hann kom til Liver-
pool í sumar. Stewart Downing náði
að laga stöðuna fyrir Middlesbrough
sj ö mínútum fyrir leikslok þegar hann
tók boltann snyrtilega framhjá vam-
armanni Liverpool og lagði boltann
á milli fóta Pepes Reina. Jeremie Al-
iadiere fékk svo að líta rauða spjald-
ið fimm mínútum fyrir leikslok þegar
hann slóg til Javiers Mascherano eftír
að Argentínumaðurinn hafði klappað
létt í andlit Aliadieres.
Benitez hrósaði Torres
Rafa Benitez hrósaði Spánverjan-
um eftír leikinn en Torres hefur nú
skorað 21 mark á sinni fyrstu leik-
tíð á Englandi. „Þeir gerðu tvö mis-
tök og Femando nýtt sér það, góður
framherji nýtír sér mistök. Miðað við
framherja og sérstaklega þann sem
er á fyrsta tímabili stendur hann sig
mjög vel og vonandi nær hann að
skora fleiri mörk. Það er ekki auðvelt
fyrir leikmenn frá öðmm löndum að
aðlagast strax aðstæðum. Hann hefur
verið alveg frábær, hann hefur hraða,
hann getur drepið varnarmenn með
hraða sínum. Hann hefur sannað
það að hann var ffábær kaup, síð-
.asta sumar vomm að íhuga tíu nöfn
og svo endaði það í þremur. Þegar
við vomm á eftir Torres heillaði það
okkur hversu hungraður hann var og
hann hefur sannað sig í ensku deild-
inni. Það er erfitt að skora 20 mörk á
fyrsta tímabili en honum hefur tekist
það löngu áður en tímabilið er búið.
Allt er mögulegt fyrir hann núna. Það
er mjög mikilvægt fyrir okkur að vera
í efstu fjórum sætunum, núna eigum
við þrjá leiki áður en við spilum aftur
við Inter og ef við verðum í fjórða sætí
verðum við fullir sjálfstrausts," sagði
Benitez.
Southgate var ánægður
Gareth Southgate, stjóri Middles-
brough, var ánægður með sína menn
þrátt fyrir tapið. „Þetta sýnir bara hvað
við höfum bætt okkur mikið af því að
við emm svekktír yfir að hafa ekki
fengið neitt út úr leiknum. Við vinn-
um og töpum saman og það er þess
vegna sem okkur hefur gengið svo vel,
við gerðum stórliði grikk á heimavelli
Frábært mark Torres í þann mund að
skora annað mark sitt í leiknum.
þess, við trúðum því að gætum komið
hingað og fengið eitthvað og það gekk
næstum því eftír," sagði Southgate.
Tones28,29,61.
Sanli 9, Downing 83.
61% MEÐ BOLTANN 39%
16 SKOTAÐMARKI 7 Reina, Rnnan, Arbeloa, Hyypia,
Aurelio, Kuyt (Riise 73), Lucas,
6 SKOTAMARK 2 Mascherano, Babel (Benayoun
1 RANGSTÖÐUR 3 62), Gerrard, Torres (Croudi 90).
6 HORNSPYRNUR 2
11 AUKASPYRNUR 14
0 GULSPJÖLD 5
0 RAUÐ SPJÖLD 0
ÁHORFENDUR: 43,612
MIDDLESBROUGH
Schwarzer, Young, Wheater,
Grounds, Pogatetz, O'Neil (Mido
59),Rochemback,Arca,
Dowging, Aliadiere, Sanli (Alves
69).
H
MAÐURLEIKSINS
Fernando Torres, Liverpool
Wigan lagði Derby örugglega á heimavelli sínum:
JEWELLTAPAÐI í ENDURKOMUNNI
Kominn í þrot Paul Jewell stjóri Derby skammaði leikmenn sina eftir leik.
Wigan lagði Derby ömgglega, 2-
0, á JJB-vellinum. Sigurinn hefði vel
getað verið stærri ef Wigan hefði nýtt
færin betur. Paul Jewell, stjóri Derby,
segir frammistöðu sinna manna þá
verstu sem svokallað úrvalsdeildar-
lið hefur sýnt frá upphafi.
Með tapinu sló Derby félagsmet
með því að leika 21 leik í röð án sig-
urs.
Paul Scharner og Antonion Val-
encia skoruðu mörkin, bæði í síð-
ari hálfleik en fram að því sem Wig-
an opnaði markareikninginn höfðu
leikmenn liðsins fengið aragrúa tæki-
færa til þess að skora. Eini maðurinn
sem stóð fyrir sínu var Roy Carrol en
hann þurfti að verja 16 sinnum þar
sem Wigan átti 18 skot á mark Derby.
Það er ekki á hverjum degi sem Wig-
an getur boðið upp á jafnmörg skot á
markið og fengu þeir þar með nasa-
þefinn af því hvernig það er að vera
stórlið sem leggur andstæðinginn.
Wigan-menn þurfa væntanlega ekki
að hafa aftur jafnlítið fyrir sigri á
þessari leiktíð.
Paul Jewell dró ekkert úr, þegar
hann lýstí slakri frammistöðu sinna
manna. „Frá því upphafsflautið gall
vorum við verri. Það er langur veg-
ur frá því að við séum nægilega góð-
ir til þess að vera í úrvalsdeildinni.
Við töpuðum 1-4 fyrir Preston og
gegn Sheffield Wednsday vorum við
skelfilegir, en frammistaðan í dag var
eins og í þessum Ieikjum. Að spila
svona er hreinlega til skammar. Ekki
vegna þess að ég var að koma aft-
ur til Wigan heldur vegna þess að
áhorfendur Derby eiga betra skilið.
Fjöldi leikmanna minna á ekki skilið
að vera í deildinni. Venjulega ver ég
mína leikmenn, en það er ekki hægt í
þetta skiptið," segir Jewell.
Steve Bruce stjóri Wigan var kát-
ur í leikslok. „Við erum á réttri leið
og áttum sigurinn skilið í dag," segir
Bruce.
vidar@dv.is
Evrópukeppnin hjálpar þeim
á Englandi
Phil Jagielka leikmaður Everton segir
að gott gegni liðsins (Evrópukeppni
félagsliða hafi
hjálpað liðinu
heimafyriren
Everton hefur
spilaðvelá
þessari leiktíð.
„Sjálfstraustið
eykst þegar þú
vinnurleiki eins
og við.Við
höfum skorað
átta mörk i síðustu tveimur Evrópuleikj-
um og förum glaðir heim og hlökkum
til að fara á æfingar. Sjálfstraustið er
mjög mikið núna, ef við höldum áfram
að hala inn stig í deildinni og gengið
verður gott í Evrópu verður þetta
frábærttímabil. Efþér gengurvel í
Evrópu mun þér ganga vel heima fyrir,
dæmin sanna það. Við virðumst höndla
þetta sem er þara frábært," sagði
Jagielka.
United vill fá Fabiano
Njósnararfrá Manchester United voru í
Barcelona um síðustu helgi til að horfa
á Espanyol taka á
móti Sevilla.
Njósnararfrá
Manchester
Untied voru að
fylgjast með Luis
Fabiano en talið r
eraðSir Alex
Ferguson stjóri
Manchester
United vilji fá
Fabiano í sumar. Fabiano hefur skorað
yfir 30 mörk frá því í ágúst og hefur
hreinlega farið á kostum. Hann hefur
verið lykilmaður í liði Sevilla sem hefur
unnið fimm titla frá því í mai árið 2008.
Klásúla í samningi Fabianos segir að
hægt sé að kaupa hann fyrir 8 milljónir
punda.
Chelsea vilja halda Lampard
og Drogba
Peter Kenyor stjórnarformaður *•
Chelsea segir að liðið vilji halda þeim
Frank Lampard og Didier Drogba í
röðum félagsins. Lampard hefur verið
orðaður við Barcelona og Juventus en
Drogba hefur verið orðaður við
Barcelona og AC Milan að undanförnu.
„Frank hefur sagt að hann vilji vera
áfram, báðir aðilar hafa ákveðið að
ræða ekki um þetta fyrr en tímabilið
klárast. Hann á eitt ár eftir af samningi
sínum, hann erfrábær leikmaður sem
við viljum hafa í okkar röðum. Drogba
hefur sagt að það hafi verið mistúlkað
þegar hann sagðist vilja fara, Drogba á
tvö ár eftir af samningi sínum og það er
engin ástæða til þess að hann ætti að
fara frá Chelsea. Við viljum halda áfram
að vera sigursælir og þú sérð okkkur
áfram á félagaskiptamarkaðinum en við
viljum að unglingastarf okkarfari að
skila, árið 2009 og 2010 munu fyrstu
leikmennirnir koma og sanna sig," sagði
Kenyon.
Corluka grét næstum því
Vedran Corluka leikmaður Manchester
City og Króatíu segist hafa verið nálægt
því að fara að gráta þegar samlandi
hans Eduardo da Silva fótbrotnaði í
leiknum gegn Birmingham.„Ég var
mjög svekktur af því að Eduardo er
vinur minn, þegar ég sá hvað gerðist
langaði mig að fara að gráta af því að
hann er frábær drengur og á þetta ekki
skilið. Ég vil ekki tala um tæklinguna af
því að leikmaðurinn gerði þetta ekki
viljandi, þetta gerðist bara. Ég er bara
svekktur af þvf að Eduardo átti þetta
ekki skilið, leikmaðurinn fór í tækling-
una en ég held að hann hafi ekki viljað
að þetta gerðist," sagði Corluka.
60% MEÐ BOLTANN 40%
13 SKOTAÐMARKI 10
6 SKOTÁMARK 2
2 RANGSTOÐUR 0
10 HORNSPYRNUR 2
8 AUKASPYRNUR 16
0 GULSPJOLD 1
0 RAUÐSPJÖLD 0
ÁHORFENDUR: 20,176
WIGAN
Kirkland, Melchiot, Boyce,
Schamer, Edman (Koumas 90),
Valencia, Brown, Palacios,
Kilbane, Heskey (Bent 90), King
(Sibierski 85).
DERBY
Carroll, Leacock (Todd 46),
Stubbs, Moore, McEveley, Fagan,
Ghaly (Sterjovski 62), Savage,
Pearson (Villa 57), Bames, Miller.
MADUR LEIKSINS
Kenny Miller, Derby