Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Side 18
18 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008
Sport PV
Hjálpa Gascoigne
BæðiTottenham og Newcastle ætla að
styðja Paul Gascoigne í veikindum
hans. Gascoigne var handtekinn og
færður í gæslu
lögreglu í
seinustu viku
samkvæmt
reglum sem
heimila
handtökur
geðsjúkra.„Paul
erhlutiafsögu
Tottenham
Hotspur og við
ætlum að hjálpa honum og fjölskyldu
hans á þessum erfiðu tímumsagði ■
Jonathan Adelman, formaður
hjálparsjóðsTottenham.„Hann var
frábær leikmaður, ekki bara fyrir Spurs
heldur líka landsliðið og sjóðnum var
komið á fót af félaginu til að syðja
leikmenn sem þurfa á því að halda.
Newcastle United hefur Ifka haft
samband við fjölskyldu Paul og við
erum í sambandi við það til að meta
hvernig við ætlum að styðja hann."
Zlatan tæpur
Zlatan Ibrahimovic leikmaður Inter
Milan á við meiðsli að strfða í hné.
Ibrahimovic hefur verið gagnrýndur af
ítölskum fjölmiölum að undanförnu
vegna slakrar frammistööu f fyrri
leiknum gegn Liverpool f 16 liða
úrslitum Meistaradeildarinnar á Anfield,
en Intertapaði leiknum eins og flestir
vita 2-0.„Zlatan hefur ekki verið f sfnu
besta formi uppá síökastið. Hann hefur
átt við hné meiðsli að strfða upp á
sfðkastið en hefur bitið á jaxlinn
undanfarnar vikur. Þess vegna er ég
ákaflega ósáttur við alla þá gagnrýni
sem ég hef lesið síðustu daga."segir
Roberto Mancini þjálfari Inter. Þátttaka
Ibrahimovic f seinni leiknum gegn
Liverþool 11. mars er langt frá þvf að
vera örugg.„Viö höfum lagt leikinn við
Liverpool til hliðar því við höfum ekki
efni á að hugsa um þann leik núna."
segir Mancini.„Ég spilaði fýrir
Sampdoria í 15 ár, og það voru 15
mikilvæg ár. Þeir
eru á góðri
siglingu og eru
mjög sterkir á
heimavelli
þannig að þetta
verður mjög
erfiðurleikur
fyrirokkur. Ég
held líka að
völlurinnséekki
f góðu ásigkomulagi og svo hafa þeir
Cassano sem hefur verið að spila
virkilega vel,“segir Mancini að lokum.
Woodgate sáttur
Jonathan Woodgate, sem var hetja
Tottenham f úrslitum deildarbikarsins
segir að Juande Ramos, knattspyrnu-
stjóri félagsins eigi stóran þátt í
velgengni liðsins. Woodgate skoraði
úrslitamarkið í dag á fjórðu mfnútu
framlengingar.„Hann erfrábær þjálfari.
Hann hefur unnið til verðlauna á Spáni
og hefur nú unnið til verðlauna með
Tottenham," sagði Jonathan Woodgate.
Woodgate gekk til liðs við Tottenham
frá Middlesbrough í síðasta mánuði.
Þetta var hans fýrsta mark fyrir félagið.
„Ég get ekki lýst því hvaö það var
frábært að skora þetta mark. Þetta var
ein besta tilfinning sem ég hef fundið."
Gus Poyet, aðstoðarþjálfariTottenham
sagði að sjálfstraustið í hópiTottenham
manna væri frábært um þessar mundir.
„Við þurftum að gera betur en Chelsea
og mér fannst við vera örlítið betri auk
þess höfðum við aðeins meiri trú á
þessu. Þetta lið (Tottenham) er ótrúlegt.
Ég vona að þetta sé bara byrjunin á því
sem koma skal," sagði Poyet.
Jonathan Woodgate hefur aðeins verið í herbúðum Tottenham í rúman mánuð en
skráði sig á spjöld sögunnar með sigurmarki í uppbótartima í úrslitaleik deildarbik-
arsins.
W00DGATE VAR
HETJANÁWEMBLEY
skýjunum eftir leikinn. „Mér fannst
við vera betra liðið, ég held að allir
geta verið sammála því að við höf-
um sýnt um hvað Tottenham snýst.
Chelsea eru mjög erfiðir að spila
vel, þeir voru meistararnir og sýndu
það í dag að þeir eru með gríðarlega
sterkt lið en mættu bara ofjörlum
sínum í dag. Ég er ekki vanur því að
fara fram í fríspörkum en ákvað að
fara og ég náði að stinga höfðinu í
hann," sagði Woodgate hinn glaðasti
eftir að hafa tryggt Tottenham fyrsta
titilinn í níu ár.
Stoltir að komast í úrslit
Avram Grant stjóri Chelsea var
gríðarlega svekktur í leikslok en
var stoltur af því að komast í úrslit-
in. „Þú átt aldrei skilið að sigra í úr-
slitaleik, annaðhvort sigrarðu eða
tapar. Mér fannst Tottenham ekki
vera inni í leiknum í síðari hálfleik
fyrr en að þeir skoruðu markið. Þeir
voru ekki að skapa færi og við vorum
með boltann og vorum alltaflíklegir.
Fyrra mark þeirra kom úr vítaspymu
og það seinna eftir fast leikatriði,
þetta er gríðarlega svekkjandi. Leik-
mennirnir eru mjög svekktir af því
að þeir hafa lagt mikið á sig til að
komast í úrslitin og við erum stoltir
af því að vera héma. Við eigum samt
ennþá möguleika í deildinni, Meist-
aradeildinni og í bikamum og verð-
um að einbeita okkur að því,"sagði
Avram Grant.
ast linnulaust en náðu ekki að koma
boltanum framhjá Paul Robinson
sem varði vel á ögurstundum.
Sýndu hvaðTottenham snýst
um
Jonathan Woodgate sem skor-
aði sigurmarkið í framlenginu var í
HÖRÐURJÓNSSON
blaöamcidurskrifar: sport(g>dv.is
Tottenham og Chelsea mættust í
fyrsta úrslitaleiknum í deildarbik-
arnum sem fór framm á nýja Wem-
ley. Avram Grant stjóri Chelsea og
Juande Ramos stjóri Tottenham
eiga það sameiginlegt að hafa tekið
við liðinu nú á þessari leiktíð og var
þetta því fyrsti titílinn sem þeir gátu
skilað í hús. Leikmenn Tottenham
byrjuðu leikinn af miklum krafti og
átti Robbie Keane gott skot að marki
Chelsea en fyrirliðin, John Terry náði
að henda sér fyrir boltann og bjarga
í horn. Fyrsta mark leiksins leit hins-
vegar dagsins ljós þegar sex mínútur
voru til leiksloka, leikmenn Chelsea
fengu þá aukaspyrnu fyrir utan teig
og Didier Drogba tók spymuna og
gerði engin mistök og setti boltann
yfir vegginn og í markið og staðan 1-
0 fyrir Chelsea í hálfleik.
Fátt markvert átti sér stað fram-
an af síðari hálfleiknum en þegar 28
mínútur voru eftir af leiknum setti
Juande Ramos bakvörðinn Pacal
Chimbonda útaf og setti Tom Hudd-
lestone inná, Chimbonda var ekki
parsáttur með skiptinguna og rauk
beint inn í búningsklefa og huns-
aði liðsstjóra Tottenham. Ramos
vissi nákvæmlega hvað hann var að
gera því aðeins átta mínútum síð-
ar jafnaði Dimitar Berbatov leikinn.
Aðstoðardómari leiksins dæmdi
spyrnuna þegar hann tók eftir því
að Wayne Bridge hefði fengið bolt-
ann í höndina, Búlgarinn knái steig
á punktinn og gerði engin mistök,
hann setti Petr Cech í vitlaust hom
og setti boltann laust í hitt hom-
ið, frábært víti frá frábæmm leik-
manni. Niðurstaðan var jafntefli
þegar venjulegum leiktíma lauk og
því þurfti að grípa tíl framlengingar
á Wembley.
Þegar fjórar mínútur voru búnar
af framlengingunni tók Jermain Jen-
as aukaspyrnu úti á hægri vængn-
um, spyman var hin þokkalegasta en
Petr Cech ætlaði sér að slá boltann í
burtu en sló hann í höfuðið á Jonat-
han Woodgate sem var ekki í vand-
ræðum með stýra knettinum í netið.
Það sem eftir var af framlenging-
unni sóttu leikmenn Chelsea nán-
Norberto Solano tryggði West Ham sigur á Fulham.
ÓLÖGLEGT SIGURMARK SOLANO
West Ham lagði Fulham verð-
skuldað á Craven Cottage 0-1. Þetta
var sjötti útisigur liðsins á leiktíðinni
og verður það að teljast býsna gott.
Heimavallarform liðsins hefur kom-
ið í veg fyrir að West Ham sé í barátt-
unni um Evrópusæti.
Hamrarnir höfðu undirtökin í
leiknum framan af. Boa Morte og
Carlton Cole gerðu sig lfklga til þess
að skora en allt kom fyrir ekki. Fabio
Capello var á áhorfendabekkjunum
en fátt var í boði til að gleðja auga
knattspyrnuunnandans.
í síðari hálfleik batnaði leikur
liðanna. Martin Bullard leikmaður
Fulham sem nýlega hóf að leika eft-
ir alvarleg meiðsli, stýrði miðjunni
af röggsemi, án þess að Fulham hafi
náði að skapa sér nægilega góð færi.
Sigurmark West Ham, orkaði tví-
mælis. Boltinn barst til Norberto
Solano inni í teig. Anti Niemi fór á
móti og náði tíl boltans, en Solano
tæklaði knöttinn úr höndum hans. f
kjölfarið barst knötturinn í höndina
á Solano og í netíð.
Lokatölur urðu 1-0 og Roy Hod-
gon framkvæmdastjóri Fulham var
virkilega vonsvikin eftir ólöglegt sig-
urmark West Ham. „Ég er búinn að
sjá atvikið í sjónvarpinu og þetta var
klárt brot og markið hefði átt að vera
dæmt af. Þú átt ekki að segja skoð-
un þína þessa dagana, en ég get ekki
orða bundist. Þetta var slæm leið til
þess að tapa stigi en við áttum stíg-
ið skilið að mínu mati. Ef þú mót-
mælir ekki slíku marki hefur þú eng-
an áhuga á því að vinna leild," segir
Hodgon
Alan Curbishley sagðist ekki hafa
séð atvikið nægilega vel þegar sigur-
markið var skorað. „Þar sem ég sat
virtist þetta vera í lagi. Ég er samt
ekki viss. Liðin voru svipuð að getu
og það var lítið um færi. Því breytti
ég um taktík og við náðum sigrinum.
Það er frábært fyrir okkur," segir Cur-
bishley. vidar@dv.is