Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Qupperneq 28
28 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 Fókus DV IQNV-SNVa e VlAISISVd 'Z n)8d3S!aVdD139 l :«OAS FOR LAUGHS MerkUegt með þau í Vesturporti; það er eins og þau hafi mun meiri áhuga á eldri kynslóðunum en sinni eigin. í fyrra sýndu þau á Nýja sviði Borg- aríeikhússins rómantíska söngva- sápu af elliheimili, sem sagt kynslóð afa og ömmu; þetta hefur runnið ljúflega ofan í liðið og gengur enn. Nú kemur næsta sápa og hún er um hippana og '68-kynslóðina, pabba og mömmu sem sé. Handritið er byggt á frægri kvikmynd Svíans Lu- kas Moodysson, Tillsammans, sem lýsir lífinu í sænskri kommúnu um miðjan áttunda áratuginn. Vandinn við að slá í gegn er að fylgja sígrinum eftir. Vesturport sló eftirminnilega í gegn með Rómeó og Júlíu og fýlgdi þeim sigri vel eft- ir með Woyzeck. Hamskiptin voru að mínum dómi mun síðra verk - og nú hefur virkilega slegið í bakseglin hjá þeim. Það er djarft tiltæki að gera leiksýningu eftir mynd eins og Till- sammans, mjög djarft - og, sannast sagna, frekar út í bláinn. Tillsamm- ans er í fyrsta lagi afar sænsk mynd sem náði því fr ábærlega vel að fanga hinn sérstaka anda tímabilsins. f öðru lagi tekst Moodysson að halda einstaklega góðu jafnvægi á milli þess broslega og aivarlega í sögunni - mestan hluta myndarinnar, hann . fer kannski soldið út af sporinu í lok- in. Auðvitað var þetta hreint gervi- líf sem hippamir og róttækiingamir lifðu í kommúnum sínum, þar sem allir áttu að eiga allt saman, allir að elska hver annnan, bæði andlega og líkamlega, og sjálfsagt mál að stunda alls kyns tilraunastarfsemi í þeim efhum. Svo áttu bömin að alast upp til algers frelsis, nema auðvitað varð að innræta þeim strax andúð á kapít- alismanum, uppsprettu alls Uls. Vart þarf að taka ff am að unga fólkinu var heilög alvara með þessari uppreisn, þó að menn væm misjafnlega „pól- itt'skt meðvitaðir", eins og gengur; sumir vildu framkvæma byltinguna með blómum, aðrir með byssum - og það undir eins. Allt þetta sýnir Moodysson á bæði háðskan og elskulegan hátt. Hann þekkir sitt heimafólk, sér í gegnum það um leið og hann hefur samúð með því. Þó að allir þykist vera og ímyndi sér að þeir séu „tillsammans", eru þeir í raun og vem einir og sam- bandslausir og heiti myndarinnar því fullkomlega írónískt. Undirtóni hennar verður eiginlega best lýst með sænska orðinu „tristess" ekki síst eftirminnilegum kynlífsatriðun- um sem em með því betra sem mað- ur hefur séð af því tagi í bíó: dapurleg og fyndin í senn. Og allt leikið á lágu nótunum, temprað, realistískt, ger- samléga laust við ýkjur. Það kunna nefnilega sænskir leikarar, af því þeir hafa leiklistarskóla sem kenna þeim það, skóla sem hafa aldrei misst sjónar á hinum realistíska þætti í þjálfun leikarans, þó menn hafi auð- vitað einnig tekið inn alls kyns önn- ur áhrif. Hér stöndum við á miklu veikari gmnni að þessu leyti og alltof algengt að leikarar missi sig út í yfir- borðsmennsku, göslist áffam nán- ast eins og þeir hafi aldrei heyrt tal- að um „undirtexta", svo ég noti þekkt hugtak úr fræðunum sem ekki verð- ur útskýrt hér. Og leikstjórarnir ann- að hvort ráða ekki við þetta eða - sem mann gmnar stundum - finnst það bara allt í lagi. Því miður er það eitthvað þess háttar sem virðist hafa gerst hér. Ólíkt kvikmyndinni er Kommúnan að miklu leyti einungis hrá kómedía, ÁN ÞESS ÞÓ að leikið sé meðvitað og markvisst á kómíldna. Sýningin bara reikar einhvern veginn stefnulaust á milli realisma og gamanleiks, eins og enginn hafi gert upp við sig hvorum megin ætti að lenda. Þarna er ein- valalið leikara sem fæstir sýna neitt nýtt og flestir geta gert mildu betur. Árni Pétur og Atli Rafn vom raunar áberandi betri en Ólafur Darri eða Nína Dögg sem náði ekki að sýna neitt annað en fýlu og frekju lesbí- unnar sjálfskipuðu. Langbestur og sá eini sem nær að draga fram eitt- hvað sorglegt og sárt af einlægni og hófstillingu er Rúnar Freyr í túlkun sinni á drykkfellda eiginmanninum sem sér á eftir konu sinni og böm- um inn í kommúnuna. Rúnar Freyr er vaxandi leikari; hann getur stolið senu með látbragði og svipbrigðum einum saman og gerði það þama á meðan aðrir voru á fullu í einhveiju öðm. Því hér em menn, sýnilega með fullri velþóknun leikstjórans, langoftast „playing for laughs" eins og það heitir á því tungumáli sem leikendur em að bögglast við að taia mikinn hluta sýningarinnar sam- hliða móðurmálinu. Er það svona túristaenska sem Vesturport ætlar að fara með til útlanda sem ffam- lag íslendinga til heimsleiklistar- innar? Ekki er að efa að íslenskum áhorfendum finnst spennandi að sjá heimsffæga filmstjömu á íslensku KOMMÚNAN ★★ LEIKSTJÓRI: Gísli Örn Garðarsson LEIKMYND: Börkur Jónsson BÚNINGAR: Ríkey Kristjánsdóttir & Vesturport i samstarfi við L.R. á Nýja sviði Borgarleikhússins LEIKHUSDOMUR sviði og Gael Garcia Bemal er aug- ljóslega einnig fi'nn sviðsleikari og alveg trúverðugur í því sem hann. gerði. Reyndar er þetta ekki í fyrsta skipti, ég má til með að skjóta því að ef einhver skyldi halda það, sem frægar stjömur gista íslensk leiksvið; hingað komu á árum áður merkir norrænir stórleikarar og léku á móti okkar fólki í Iðnó og Þjóðleikhús- inu: Adam Poulsen, Poul Reumert, Gerd Grieg og Tora Seglecke - ef þau nöfn segja nokkrum nokkuð í dag. En þessir miklu norrænu listamenn gáfu íslensku leikhúsi innspýtingu sem við eigum kannski enn í dag meira að þakka en við gemm okkur grein fyrir. Ég sagði hér í upphafi að mér fyndist út í bláinn að gera íslenska leiksýningu upp úr Tillsammans. Kvikmyndin er öllum tiltæk á víd- eói og DVD og Gísli Öm reynist engu hafa við hana að bæta; þær breyt- ingar sem hann gerir - eins og að fella burt nágrannafjölskylduna sem gegnir stóm hlutverki í myndinni - em síst til bóta og virðast ffem- ur knúnar fram af ytri aðstæðum en sjálfstæðri listrænni sýn á efni- viðinn. Ef mönnum fannst þetta efhi svona áhugavert, af hveiju var þá ekki íslenskur höfundur feng- inn til að skrifa leikrit út frá íslenskri reynslu? Jón Atli hefði til dæmis get- að spreytt sig; er hann ekki alltaf að vinna eitthvað með grúppunni? Hér vom líka kommúnur og hippar - sá ekki betur en gömlum fulltrú- um þeirra brygði fýrir bæði á svið- inu og í salnum síðastliðinn fimmtu- dag, þegar leikurinn var opinberlega ffumsýndur. Hann hafði þá reynd- ar verið „forsýndur" nokkrum sinn- um, að mér skilst, án þess það hefði sldlað nokkm umfram það sem hér gengur og gerist, svo séð yrði. Það hefur verið gleðilegt og spennandi að fylgjast með Vest- urportsliðinu undanfarin ár. Þau hafa yfirleitt verðskuldað þær við- tökur, sem þau hafa fengið bæði hér heima og erlendis, og það var sérlega ánægjulegt hvað Gísli örn stóð sig vel sem leikari á sviði breska þjóðleikhússins í sumar, þó að breskir kollegar mínir væru ekk- ert að hampa honum um of. En nú er, sem fýrr segir, komið að því sem örðugast er: að missa ekki damp- inn, slá ekki af kröfunum, standa undir væntingunum, halda fram á við, halda áfram að segja okkur eitt- hvað nýtt, snerta tilfinningar okkar (líka þær sem við viljum stundum helst ekki vita af), sýna okkur eitt- hvað sem hefur víðtæka mannlega skírskotun, kafa dýpra, stækka svið- ið, verða betri og öflugri listamenn. Svona leikhúsfroðu er að finna úti um allt, það veistu eins vel og ég, Gísli örn. Og þú mátt líka vita að það er annað og meira sem við ætl- umst til af þér og þínu fólki. Jón Viðar Jónsson HVAÐ VEISTU? 1. Hvar verður lokakeppni EUROVISION-söngvakeppninnar haldin í vor? 2. f þágu baráttunnar gegn hverju voru tónleikarnir sem BUBBIMORTHENS stóð fyrir á dögunum? 3. Hvað kallast febrúarsýning fSLENSKA DANSFLOKKSINS sem frumsýnd var um helgina? Framsetning síðarnefhdu þáttanna var til fyrirmyndar; snaggaraleg frá- sögn af lffi og störfum Faulkners sem reglulega var brotin upp, til dæmis með áliti annarra á höfimdinum eða hljóðupptökum með Faulkner sjálf- um. Framsetningin og stíllinn á þætti Gunnars var alltof uppskrúfuð og stirð fyrir minn smekk. Frásögn Gunn- ars var eins og löng andlátstilkynn- ing og uppbrotin, til dæmis lestur jjrota úr bókum Hamsuns, alltof löng. Eftír hlustunina hef ég ekki nokkurn áhuga á að heyra fyrri þáttinn og segir það meira en mörg orð. Gunnar gæti ■Vafalítið lært margt af því að fá lán- aðar upptökumar af þáttum kollega síns. Þó er ég aðeins fróðari en áður um Hamsun og fyrir það fær Gunnar þessa einu stjömu. Kristján Hrafn Guðmundsson STERKASTA KEPPNIN Það er ljóst að úrslitakvöldið í Laugardagslögunum sem fór fram um helgina er eflaust eitt það sterk- asta frá upphafi. Öllu var til tjaldað og mér fannst það heppnast nokkuð vel. Allir flytjendurnir gerðu sitt allra besta og það var í raun enginn sem olli mér neinum vonbrigðum. Þvert á móti gat ég eiginlega séð öll lögin sem tóku þátt fyrir mér á sviðinu í Belgrad. LAUGARDAGSLÖGIN ★★★★ SJONVARPSDOMUR Fyrir úrslitin hafði ég spáð This is my life sigri. Einfaldlega vegna þess að eftir að Palli komst með puttana í lagið gjörbylti hann því og gaf því allt sem það vantaði áður. Þá var lagið líka óaðfinnanlega sungið hjá Reg- ínu og Friðriki. Það var hins vegar Dr. Spock sem vann hug minn allan. Ég kaus lagið þó nokkmm sinnum og hefði virldlega viljað sjá það fara áfr am. Sviðið var algjörlega þeirra og dýrslegur kraftur sveitarinnar sldlaði sér ótrúelga vel. Mikið hefur verið talað um hvort eyða eigi öllum þessum peningum í forkeppnina en eftir að hafa séð úr- slitin og fylgst vel með í vetur finnst mér það hið besta mál. Þegar upp er staðið hafa Laugardagslögin hleypt lífi í skammdegið og sameinað þjóð- ina við skjáinn. Það hefði samt mátt sleppa undanúrslitunum, stytta þetta aðeins og nota þá peninga í eina leikna þáttaröð eða svo. Ásgeir Jónsson STIRÐUR HAMSUN Þáttaröð Eiríks Guðmundssonar um bandaríska rithöfundinn Willi- am Faulkner á Rás 1 á dögunum var afbragðsgóð. Þar teiknaði hann upp athyglisverða og glögga mynd af þessum margbroma höfundi. í gær hlustaði ég á síðari þátt Gunnars Stefánssonar um norska rithöfund- inn Knut Hamsun á sömu rás. Það er skemmst frá því að segja að ég gat vart haldið mér vakandi yfir þætti Gunn- ars á meðan þættir Eiríks ríghéldu. KNUTHAMSUN ★ ★★★ UTVARPSDOMUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.