Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Page 29
DV Fólkið MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 29 t>JALFA HEILASTARFSEMINA Magnús Gröndal, söngvari We Made God, er í skýjunum eftir 4 stjörnu dóm í tónlistartímaritinu Q: 4 STJÖRNUR í Q „Við erum ekkert smá ánægðir með þetta," segir Magnús Bjöm Gröndal, söngvari We Made God, um frábæran plötudóm sem sveitin fékk í breska tón- listartímaritinu Q Magazine. Platan As We Sleep, sem er frumraun sveitarinn- ar, fékk fjórar stjörnur af fimm í þessu heimsþekkta og virta tónlistartímariti. „Platan er ekki einu sinni komin út en strax farin að fá svona dóma," seg- ir Magnús himinlifandi en þeir félag- ar eiga von á fyrsta upplagi plötunnar eftir tvær vikur. Að sögn Magnúsar var það ritstjóri rokkblaðsins Kerrang!, Paul Brannigan, sem skrifaði dóminn en hann sá hljómsveitina á Airwaves 2006 og gaf henni fjögur K af fimm. „Paul rit- stýrir Kerrang! en einu skrif hans eru tónlsitardómar í Q." f dómi sínum lýsir Paul sveitinni meðal annars sem blöndu af Sigur Rós og Deftones auk þess sem hann lofsamar söngrödd Magnúsar. We Made God vakti fýrst á sér at- hygli þegar sveitin lenti í þriðja sæti Músíktilrauna árið 2006 en þá var Magnús einnig valinn efnileg- asti söngvarinn. Fram undan seg- ir Magnús vera stíft tónleikahald hér heima sem og hugsanlega erlendis. „Það skýrist allt á næstu dögum hvort við erum að fara til Bretlands," segir Magnús að lokum. asgeir@dv.is We Made God Fyrsta plata sveitarinnar er væntanleg eftirtvær vikur. FRUM- Einn alharðasti Rolling Stones-aðdáandi á íslandi, Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi, útskrifaðist með fyrstu einkunn í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla íslands á laugardag. Ólafur er hæstánægður með námið og árangur- inn og segir að nauðsynlegt sé fyrir alla að þjálfa heilastarfsemina. Hann hóf námið árið 2004 og segir að vandasamast hafi verið að finna tíma til þess að klára ritgerðina. „Mér skilst að það hafi mátt sjá mig skælbrosandi í sjónvarpinu á út- skriftarathöfninni," segir Ólafur Halgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, sem á laugardag útskrifaðist með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla íslands. Ólafur útskrifaðist með fýrstu einkunn, en er tregur til þess að gefa upp nákvæmar tölur. „Það er ómögulegt að vera að monta sig," segir hann. Ólafur Helgi hóf námið fyrir fulla alvöru haustið 2004 og lauk svo allri setu á skólabekk vorið 2006. „Svo var þetta bara spurning um að finna sér tíma til þess að klára ritgerðina. Meiningin var náttúrulega að taka árið í þetta, en hún kláraðist þó að lokum," segir Ól- afur. „Svona nám á það óhjákvæmilega til að taka lengri tíma hjá fólki sem er í fullri vinnu, og ég hreinlega dáist að ungu fólki sem heldur úti fjöl- skyldu, er í mikilli vinnu og stundar framhaids- nám á sama tíma." , Ólafur er ánægður með námið og segir að það muni nýtast sér vel í starfinu. „Þetta er mjög gott nám fýrir þá sem starfa í stjórn- sýslunni. Ég hef starfað í þessum geira síð- ustu þrjátíu árin. Fyrst sem fulltrúi sýslu- mannsins á Selfossi. Þaðan lá leiðin vestur á firði, þar sem ég var skattstjóri í rúm sjö ár og svo sýslumaður í tíu ár til viðbótar." Eftir dvölina á Isafirði snéri Ólafur aftur á Suðuriandið og er nú sýslumaður í Ár- nessýslu, með umdæmi ffá Lidu kaffi- stofunni og austur að Þjórsá. Nám- ið sem Ólafur lauk á laugardaginn er svokallað MPA-nám. „Það er mikil- vægt að rugla þessu ekki saman við MBA-námið sem margir hafa sótt síðustu árin," segir Ólafur. Ólafur er himinlifandi með áfangann og segist eiga marg- ar góðar minningar úr náminu. Bæði kennarar og samnem- endur hafi verið til stakrar fyr- irmyndar. „Það er alveg nauð- synlegt fyrir alla að þjálfa heilastarfsemina og koma í veg fyrir stöðnun," segir sýslu- maðurinn, sem er kannski þekktastur fyrir brennandi áhuga á rokksveitinni Rolling Stones. sigtryggur@dv.is RAUNIN SÁ UÓTI Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir >- nú sínu fýrsta verki á fjölum Þjóð- leikhússins, leikriti sem heitir Sá ljóti, en hún hefur vakið athygli fyrir vandaðar og ffumlegar upp- setningar, meðal annars í Hafhar- fjarðarleikhúsinu. Nýlega hófust æfingar á verkinu, sem er eftir Þjóðverjann Marius von Mayen- burg, á Smíðaverkstæðinu en það verður ffumsýnt í apríl. Leikarar í sýningunni eru einnig ungir og upprennandi: Dóra Jóhannsdótt- ir, Jörundur Ragnarsson, Stefán Hallur Stefánsson og Vignir Rafn Valþórsson. Kvikmyndin Heiðin eftir Einar Þór Gunnlaugsson verður frumsýnd 14. mars. Einar skrifar bæði handrit myndarinnar og leikstýrir en þetta er hans fyrsta kvikmynd. Einar hefur lýst myndinni sem álíka íslenskri og Vamajökli þó svo að hugmynd hennar sé byggð á sögu Abrahams og fsalcs úr Gamla testamentinu. Aðalleikarar í myndinni eru Jóhann Sigurðarson, Gísli Pétur Hinriksson, Ólafur S.K. Thorvaldsson, Guðrún Gísladóttir og fsgerður E. Gunn- arsdóttir, sem hefur gert það gott í Stundinni okkar að undanförnu. SÝSLUMAÐUR Á SICÓLABEKK NAUÐSYNLEGT HEIÐIN ÍMARS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.