Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Side 30
30 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008
Síðast en ekkisíst DV
SANDKORN
BÓKSTAFLega
í. . «r
HINN DAGINN
„Það var eitthvað
ljóðrænt við þessi úrslit,"
■ Dr. Gunni á blogginu. Lag
doktorsins og hljómsveitarinnar Dr.
Spock endaði í þriðja sæti I
kepninni um
Evróvisjónlag
(slands þetta
árið.
„Égvara
menn við að
gera sér allt
ofháar hug-
myndir í því
efni.
■ Geir H. Haarde forsetisráðherra á
visir.is um frumvarp um hugsanlegar
J bætur til vistamanna á Breiðavík.
„Við stóðum
tarna í hvítu
drtlunum í
n'fandi roki
yrir utan
drkjuna og
vorum að reykja."
■ Eiríkur Jónsson rifjar upp
fermingardaginn í DV.
,Hef ekki
haft neinn
sérstakan
áhuga á
því. Er líka
meinilla við
nálar."
■ Egill Gillzenegger hefur aldrel
fengið sér tattú og greinir frá þv( I
viðtali við DV.
„Þetta var heppilegt að
því leyti að slöKkviliðið
var í húsinu. Við þurftum
því ekki að hringja í það,"
■ Eyþór Leifsson, varðstjóri hjá
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Eldur kom upp í þurrkara á
slökkvistöðinni við Skógarhlíð á
föstudag, eins og greint er frá (
fréttum DV.
„Við sjáurri þetta hérna
svart á hvítu, þó þetta sé
ílit."
■ Heimir Karlsson
lýsir broti (
þættinum 4-4-2 á
Sýn 2.
„Við höfum
séð í vetur
að ríkisstjórnin er ekki
einhuga um neitt, nema
hve djúpt traust og
mikill kærleikur ríki milli
forystumanna ílokkanna.
Þeir eru ósammála um
eiginlega allt annað."
Hrafn Jökulsson lýsir
samstæðri
ríkisstjórn (
Viðskiptablaðinu
þann 22. febrúar.
„Vonskuveður
er enn á svæðinu en
ölduhæð þar er tíu
metrar á sekúndu".
■ Mælieiningar skoluðust til I
fréttaflutningi á visir.is (síðustu viku.
Ölduhæðin hefur væntanlega verið
600 metrar á mlnútu.
■ Skápurinn sem Annþór
Karlsson fannst í eftir að hafa
flúið úr gæsluvarðhaldi lög-
reglunnar um síðustu helgi
var staðsettur í Urðarholti í
Mosfellsbæ.
Þetta kem-
ur fr am í
Mosfellingi,
bæjarblaði
Mosfells-
bæjar. Þar
hafði Ann-
þór falið sig
inni í skáp
hjá félaga sínum en í Urðar-
holti eru tvær tveggja hæða
blokkir og var handrukkarinn
gripinn glóðvolgur í annarri
þeirra. Það er spurning hvort
afmælisveislan sem Annþór
ætlaði að halda hafi átt að fara
fram í skápnum góða.
■ Þursaflokkurinn hélt unaðs-
lega tónleika á Laugardalshöll
á laugar-
daginn. Þar
komu þeir
fram ásamt
kammer-
sveitinni
Caput og
var uppselt.
í síðasta lagi
Þursanna,
í gegnum holt og hæðir, kom
engin önnur en Ragnheiður
Gröndal með þeim á svið og
gerði mikla lukku. Ragnheiður
hefur verið á miklum þeytingi
það kvöldið, en hún tók einnig
þátt í úrslitakeppni Laugar-
dagslaganna senj haldin var í
Smáralind.
■ Hinir svokölluðu FM-hnakk-
ar eru svo sannarlega ólík-
indatól. Sumir virka sem al-
gjörir naglar, aðrir virðast fara
fram úr rúminu á morgnana
til þess eins að fylgjast með lífi
Britney Spears og Paris Hilt-
on en svo eru líka dúnmjúkir
piltar þarna inni á milli. Hvað
sem skýrri flokkun á Heiðari
Austmann líður virðist hann
í það minnsta hafa sitthvað
fram að
færa í síð-
asta flokkn-
um. í pistli
á bloggsíðu
sinni segir
Heiðar frá
því þegar
mamma
hans signdi
hann alltaf þegar hann var
gutti. Svo gerir Heiðar óform-
lega könnun á því hverjir signa
sig eða börnin sín enn í dag,
nú eða fara bara almennt með
bænir. Að lokum lætur hann
„signunarbænina" fylgja með,
ef svo vildi til að einhver væri
búinn að gleyma henni.
ÞETTA ER SÆTASTI
SIGURINN TIL ÞESSA
Hvernig væri draumadagurinn í
lífi þínu?
„Draumadagurinn væri og er að vakna
á morgnana og vera heill heilsu. Það
er lykillinn að öllu."
Hæst glymur í tómri tunni, hvað
áttu við?
„Þau taka það til sín sem eiga."
Hvert er uppáhalds Eurovision-
lagið þitt?
„Ho, ho, ho, we say hey, hey, hey."
Hvenær var ákveðið að fá Pál
Óskar inn í dæmið?
„Við gerðum útgáfu á ensku, sem Ör-
lygur Smári samdi textann við, prufu-
texta sem var í raun demóið sem
komst inn í keppnina. Svo fórum við
að hlusta á það og vissum að þegar
við kæmum í þriðja skiþti yrðum við
Friðrik Ómar Hjörleifsson
vann sinn sætasta sigur til þessa á
laugardaginn. Hann undirbýr sig
nú fyrir ferðina til Serbíu.
Hver er maðurinn?
„Friðrik Ómar Hjörleifsson, Öxndæl-
ingur."
Áttu stóra fjölskyldu?
„Já, ég á þrjú systkini, sem eiga orðið
fullt af börnum. Ég er orðinn ömmu-
bróðir og ég veit ekki hvað."
X
Hefur þú búið erlendis?
„Ekki ennþá, en það styttist í það."
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„Öxnadalurinn."
Hvað er það besta sem þú
borðar?
„Ætli ég verði ekki bara að segja pylsa
með öllu á Bæjarins bestu."
Hver er eftirminnilegasta bókin?
„Einn dagur í einu, frá Al-anon."
Hver er besta gjöf sem þú hefur
fengið?
„öll atkvæðin sem Eurobandið fékk á
laugardagskvöldið."
Af hverju ertu stoltastur?
„Ég er stoltastur af því að hafa stofnað
Eurobandið. Ætlunarverk okkar tókst
og við höfum unnið að því hörðum
höndum."
Hvert er mesta prakkarastrikið?
„Þau eru svo mörg, maður, ég er fer-
lega stríðinn og hef það frá mömmu
minni."
að vera með nýtt. Palli vildi prófa að
semja texta sem við leyfðum honum
að gera. Okkur leist frábærlega á text-
ann og þetta tókst vel upp."
Bjóstu við því að sigra?
„Þessi síðasta vika var mjög erfið. Ég
var betur búinn undir það að vinna
ekki, enda hef ég aldrei sigrað í svona
keppni áður. Þetta er sætasti sigur
sem ég hef tekið þátt í."
Hvernig verður undirbúningur-
inn fyrir Serbíu?
„Við erum öll að fara út að borða í
kvöld á Domo og hittum svo forsvars-
menn RÚV. Þetta er frábær hópur af
fólki. Ég verð svo að heyra í Gillzen-
egger til að fá hann til að taka okkur
Regínu í gegn í ræktinni. Ég viður-
kenni að þeir voru andskoti flottir."
Hvað er fram undan?
„Er að klára núna George Michael-
sjóvið á Broadway, nokkrar sýningar
eftir, en það hefur gengið í allan vetur.
Svo er Eurobandið að gera plötu sem
kemur út áður en við förum út. Við
munum spila á klúbbum í Serbíu alla
vikuna áður en við keppum. Við erum
fyrsta hljómsveitin í sögu Eurovision
sem syngur bara Eurovision-lög."
Hver er draumurinn?
„Draumurinn væri að vera hamingju-
samur alltaf."