Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2008, Page 32
Litlar samlokur 399 kr. + litið gosgias 100 kr. = 499 FRETTASKOT 51 2 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 ■ DAGBLAÐIÐ ViSIR STOFNAÐ 1910 Haf ró leitar að loðnu „Árni Friðriksson er að fara á slóðina sunnan- og suðaustanmeg- in við landið þar sem loðnan er að þéttast. Bjarni Sæmundsson fer síð- an vestur fyrir landið," segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrann- & sóknarstofnunar. Ástæða þess að hafrannsóknarskipin fara í þessa leit er loðnuveiðibannið sem sett var á í síðustu viku. Auk þess hefur Haf- rannsóknarstofnun mátt þola nokkra gagnrýni vegna bannsins. Talið er að hrygningargangan sé nú farin að þétta sig úti fyrir Vestmannaeyjum. Á föstudaginn var haldinn stór fundur -* með fulltrúum Hafrannsóknarstofn- unarinnar, loðnuútgerðarmönnum og skipsstjómarmönnum. „Menn em missáttir við þetta en ég held að menn geri sér grein fyrir því að við viljum ekki stefna stofninum í hættu." Svefnlítil nótt * á Suðurnesjum Þeir áttu margir hverjir erfitt með svefn, íbúarnir í nágrenni Akurskóla í Reykjanesbæ í fyrrinótt. Ástæðan er sú að bmnaviðvömnarkerfi skóf- ans fór í gang í tíma og ótíma nánast alla nóttina. Lögreglan f Reykjanes- bæ fékk fjölmargar kvartanir frá íbúum sem kvörtuðu sáran undan hávaðanum ffá skólanum. Þrátt fyrir hávaðann var ekki laus eldur í bygg- ingunni því einungis var um að ræða bilun í kerfinu. Nokkuð erfitt reynd- ist að komast fyrir bilunina en það hafðist áður en nóttin var úti. Búið að kæra Brynjólf BrynjólfurÁrnason, fyrrverandi sveitarstjóri Grímseyjarhrepps, hefur verið kærður fyrir fjárdrátt og bók- haldssvik. Öll gögn málsins voru send til sýslumannsins á Akureyri í síðustu viku sem rannsakar málið. I kjölfarið verður ákveðið hvort Brynj- ólfur verði ákærður fyrir meint brot. Sveitarstjórnarmenn í Grímseyjar- hreppi fóru að rannsaka bókhald hreppsins í kjölfar fréttar DV um þjófnað Brynjólfs á 12.900 lítmm af olíu. Samkvæmt heimildum DV kom margt mis- jafnt í ljós við þá rannsókn og hafa öll gögn máls- ins því verið færð til opinberrar rannsóknar. Guðni sterki sigraður! Níu systkin tapa dómsmáli um arf eftir Magnús H. Magnússon heitinn ráöherra: FA EKKIF0DURARFINN EINAR ÞÓR SIGURÐSSON blaðamaður skrifar Páll Magnússon sjónvarpsstjóri og systkin hans töpuðu dómsmáli sem þau höfðuðu til að erfa hús föður síns. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað fyrir helgi upp dóm í máli sem börn Magn- úsar H. Magnússonar heitins ráð- herra höfðuðu á hendur seinni eigin- konu hans, Guðbjörgu Jónsdóttur. Deilan snerist um fasteign þeirra í Reykjavík og gildi viðbótarkaupmála sem Magnús gerði við seinni konu sína, Guðbjörgu, árið 2001. Magnús lést í ágúst 2006. Reykjavík. Fengu börn hennar hvert um sig 8,25 prósenta hlut en Magnús 67 prósenta filut. í skiptalýsingunni kom einnig ff am að ef Magnús gengi aftur í hjónaband yrði gerður kaupmáli um eignarhluta hans í fasteigninni og hann skyldi telj- ast séreign hans. Magnús gekk síðan í hjónaband með Guðbjörgu árið 2000. Skömmu áður gerðu þau með sér kaupmála. Þar sagði meðal annars að allar eign- ir væru séreignir á meðan þau væru á h'fi og þó að annað þeirra félli frá. Því myndi það koma í hlut barna Magn- úsar að skipta með sér eigninni kæmi til þess að hann félli frá. eignir sem heimilt væri að ráðstafa samkvæmt erfðalögum. Magnús lést síðan þann 23. ágúst árið 2006 og var dánarbú hans tek- ið til opinberra skipta að kröfu Guðbjargar. Ágreiningur kom þá upp um gildi viðbótarkaup- málans, sem gerður var árið 2001. Gerðu kaupmála Magnús, sem var meðal annars bæjarstjóri í Vestmannaeyjum frá ár- unum 1966 til 1975, var giftur Mörtu Guðrúnu Björnsdóttur allt þar til hún lést árið 1989. Við skipti á dán- arbúi hennar fengu erfingjar hennar eignarhluta hennar í fasteign þeirra í Viðbótarkaupmáli Rétt rúmu ári síðar gerðu þau Magnús og Guðbjörg með sér við- bótarkaupmála. í honum var kveðið á um að kaupmálinn sem gerður var árið á undan yrði felldur úr gildi. Þann 13. júh 2002 gerðu þau með sér erfðaskrá þar sem þau ákváðu að það sem lifði lengur skyldi erfa þær Tapað rhál Ekki var ágrein ingur um gildi erfðaskrárinn- ar en hins veg- ar var ekki sátt milli barna Magnúsar og ekkjunnar um viðbótarkaup- málann og hélt lögmaður þeirra systk- ina, Sigurður Sigurjónsson, því fram að hann væri í andstöðu við þinglýsta eignarheimild föðurins á fasteign þeirra í Reykjavík. Ekki tókst að leysa ágrein- inginn og var því ákveðið að vísa málinu til Héraðsdóms Reykjavíkur. Dómur héraðsdóms taldi að viðbótarkaupmáh þeirra Magnúsar og Guð- bjargar frá árinu 2001 væri í fullu gildi. Því verður hann lagð- ur til grundvallar j þegar dánarbúi I Magnúsar verður n skipt. Ekki hef- B ur verið tekin ■ ákvörðun hvort ■ málinu verður ■ áfrýjað. „Ég kýs að ■ tjá mig ekki um þetta mál," sagði Páll n Magnússon útvarps- stjóri. Fjölmenni á stefnumóti Hátt í hundrað manns mættu á stefnumót DV við Sunnlendinga í Hvíta húsinu á Selfossi síðasta föstudagskvöld. Þar kynntu forsvarsmenn DV blaðið og svöruðu spurningum heimamanna. Þar kepptu einnig tvö lið í spurninga- keppni, lið Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra vann lið Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins, og ánafnaði 100 þúsund króna verðlaunafénu til kaupa og þjálfunará fíkniefnahundi. DV-MYNDSigtryggur Tveir menn voru handteknir á veitingastaðnum Vegamótum: Reyndu að byrla stúlkum ólyfjan „Ég get staðfest það að við tókum tvo menn um þijúleytið aðfaranótt sunnudagsins. Við fengum upplýs- ingar um að þeir væru að setja töfl- ur í glösin hjá stúlkum á staðnum og brugðumst því skjótt við," segir Fannar Alexander Arason, vaktstjóri á skemmtistaðnum Vegamótum. Tveir Brasilíumenn voru hand- teknir í miðbæ Reykjavíkur aðfara- nótt sunnudagsins. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að byrla stúlkum á staðnum svefnlyf í þeim tilgangi að nauðga þeim. Glöggir gestir á staðnum vöktu athygli dyra- varða á athæfi mannanna og voru þeir umsvifalaust teknir úr umferð. í kjölfarið var hringt á lögregluna sem handtók mennina og færði í fanga- geymslur. Að sögn varðstjóra lög- Vegamót Umsjónarmenn Vegamóta líta málið mjög alvarlegum augum. reglunnar á höfuðborgarsvæðinu fundust töflur sem grunur leikur á að séu svefnlyf. Það verði þó ekki stað- fest fyrr en niðurstöður rannsóknar á töflunum liggi fyrir. „Við lítum þetta að sjálfsögðu mjög alvarlegum augum," segir Fannar. Hann segist ekki vita til þess að neinum hafi orðið meint af athæfi mannanna og því hafi þeir ekld náð fyrirætluðum árangri. Hann segir að dyraverðir staðarins hafi umsvifa- laust haft samband við lögregluna sem brást skjótt við. „Lögreglan kom um hæl og handtók mennina." Aðspurður hvort hann hafi áður orðið var við að menn reyni að byrla stúlkum ólyfjan í refsiverðum til- gangi segir Fannar að hann hafi ekki áður orðið var við það. „Maður heyrir af þessu og maður veit að þetta er til staðar. Okkur finnst þetta mjög alvar- legt en erum að sama skapi ánægðir með að mönnunum tókst ekki ætl- unarverk sitt." einar@dv.is Sarkozy bölvar Nicolas Sarkozy Frakklands- forseti er enn einu sinni kominn í fréttirnar fyrir uppátæki sem hann vildi sennilegast óska sér að hefði ekki farið hátt. Sarkozy bölvaði gesti á land- búnaðarráðstefnu í París sem neitaði að taka í höndina á forset- anum. Sarkozy bauð fram hönd- ina en maðurinn vék sér undan og sagði: „Ó, nei, ekki snerta mig, þú saurgar mig." Forsetinn brást ókvæða við þessu og sagði: „Drull- aðu þér þá burt, bjáninn þinn, drullaðu þér bara burt." Það sem Sarkozy vissi ekki var að samskiptin voru tekin upp á myndband og hafa þau nú ratað á netið. Vinsældir hans eru þegar í sögulegu lágmarki og er talið að þessi síðasta uppákoma verði síð- ur en svo til að styrkja stöðu hans. Símarnir hleraðir Odour Rameses Paul, stjórnmál- fræðingi frá Kenía sem búsettur er hér á landi, hefur verið ráðlagt að hringja ekki heim til fjölskyldunn- ar vegna þess að símarnir þar gætu verið hleraðir. Hann bíður enn eftir raunverulegum tillögum frá ríkis- stjórn landsins í friðarviðræðunum þar. Hann segir ríkisstjórn lands- ins ekki hafa sýnt neinn vilja til að koma til móts við stjórnarandstöðu landsins. Paul sagði frá því í viðtali við DV í byrjun mánaðarins hvernig hann og félagar hans voru handteknir, þeim hótað og þeir svo neyddir til að frysta illa farin lík í Kenía fyrir nokkru. / / / / / / / / / / / / / / / / í /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.