Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Blaðsíða 7
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 7
Taxtabreytingar minnka
bilið Vilhjálmur Birgisson,
formaður Verkalýðsfélags
Akraness, segir nýgerða
kjarasamninga minnka
ávinning atvinnurekenda af
að ráða til sín starfsmenn á
lakari kjörum.
síðustu kjaraviðræðum. „Þá er
minni ávinningur fyrir atvinnu-
rekendur að ráða til sín starfs-
menn á lægri launum. Taxta-
hækkanir milda þessa þróun ef
til samdráttar kemur og minnk-
ar bilið milli þeirra tekjuháu og
þeirra tekjulágu. Þá ber að geta
þess að ef Helguvík kemur, eins
og allt bendir til að verði, verð-
ur það töluverð innspýting íyrir
okkur hér," segir Vilhjálmur.
Aðalsteinn Á. Baldursson,
formaður Verkalýðsfélags Húsa-
vfloir og nágrennis, efast um að
starfsmönnum í hærri tekju-
þrepum verði sagt upp í bygg-
ingariðnaði frekar en þeim lægri
ef kemur til samdráttar. Hann
segist frekar óttast að ráðning-
arkjörum sem menn hafi um-
fram gildandi kjarasamninga
verði sagt upp, sem muni leiða
af sér almenna launalækkun á
þenslusvæðum þar sem mik-
ið hefur verið um yfirborganir.
„Það er mikfl niðursveifla í at-
vinnulífinu og er full ástæða til
að hafa áhyggjur. Auk þess að
nú er að mestu lokið við stór-
framkvæmdir hefur niðurskurð-
ur í aflaheimildum verið mikill.
Eitt sem gæti virkað sem mót-
vægi við þessu er að menn taki
ákvörðun um að byggja álver á
Bakka við Húsavík í hvelli," segir
Aðalsteinn.
Ágústa Eir Gunnarsdóttir, varaformaður Blindrafélagsins, vonar að leiðsöguhundum
fyrir blinda fjölgi en nú eru aðeins tveir slíkir á landinu. Fjórar til fimm milljónir króna
kostar að þjálfa slíkan hund. Blindrafélagið vill að hundarnir verði flokkaðir sem hjálp-
artæki, svo Tryggingastofmm geti tekið þátt í kostnaði.
FYRIR LEIÐSOGUHUND
BALDURGUÐMUNDSSON
bladamadur skrifar:
„Það kostar fjórar eða fimm millj-
ónir að þjálfa leiðsöguhund. Ef þeir
verða flokkaðir sem hjálpartæid mun
Tryggingastofnun vonandi borga
hluta kostnaðarins tfl ffambúðar,"
segir Ágústa Eir Gunnarsdóttir, vara-
formaður Blindrafélagsins.
Dýrleif Skjóldal, varaþingmaður
vinstri-grænna, spurði heilbrigðis-
ráðherra á Aiþingi hvort til stæði að
leiðsöguhundar fýrir blinda og dauf-
blinda yrðu flokkaðir sem hjálpar-
tæki en ekld sem gæludýr.
Fjórir hundar í þjálfun
Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra segist í svari sínu
ætla að skoða málið af fullri alvöru í
samstarfi við Blindrafélagið. Þá segir
hann að samningur sem ráðuneytið
gerði við Blindrafélagið í fýrra geri
ráð fýrir því að fjórir leiðsöguhund-
ar séu væntanlegir til landsins í sum-
ar. Þeir eru nú í þjálfun í Noregi, þar
sem löng hefð er fýrir þjálfun slflo:a
hunda. Þar í landi séu þeir flokkaðir
sem hjálpartæki.
Hafa margsannað gildi sitt
Ágústa Eir fagnar svari ráðherra.
„Mér finnst frábært að ráðherra
ætli að skoða málið af fullri alvöru.
Það hefur ekki verið gert hingað til,
kannski vegna þess að hér hafa ein-
ungis verið tveir starfandi leiðsögu-
hundar. Þetta er skref í rétta átt," seg-
ir hún en bætir við að þessir hundar
hafi margsannað gildi sitt í öðrum
löndum. „Leiðsöguhundur er sér-
þjálfaður til að sneiða hjá hindrun-
um í umferðinni. Hann passar upp
á að eigandinn rekist eldd á hluti
umhverfinu, finnur bekki og lætur
vita ef tröppur eru í veginum. Þótt oft
myndist sterk tilfinningatengsl milli
hunds og manns veit hundurinn að
um leið og vinnubeislið hefur verið
sett á hann er hann í vinnu og það
þýðir ekkert að sm'kja aukaklapp eða
-bita," segir hún.
Fimm milljónirfyrir
leiðsöguhund
Fimm umsóknir bárust í íýrra
þegar hundamir, sem nú eru í Nor-
egi, stóðu blindum Islendingum til
boða. Þeir sem vilja fá hund þurfa að
standast ýmsar kröfur. „Sá sem sækir
um þarf að vera fær í því að komast
á milli staða með hvítan staf. Hund-
urinn ratar ekki heldur sneiðir hjá
hindrunum og varar við hættum. Þú
Friðgeir Jóhannesson ásamt leiðsögu-
hundi sínum, í maí í fyrra Við undirritun
samnings um styrk heilbrigðisráðuneytisins til
þjálfunarog kaupa áfimm leiðsöguhundum.
Þó að oft myndist sterk
tilfinningatengsl milli
hunds og manns veit
hundurinn að um leið og
vinnubeisiið hefur ver-
ið sett á hann er hann í
vinnu og það þýðir ekk-
ert að sníkja aukaklapp
getur ekld beðið hann að fara með
þig út í búð. Sá blindi þarf að rata og
geta spjarað sig einn. Þá eru heldur
ekki allir í aðstöðu til að fá hund, til
dæmis vegna húsreglna í fjölbýlis-
húsum," segir Ágústa.
Hundamir fjórir sem verið er að
þjálfa em væntanlegir til eigenda
sinna í byijun september. Ágústa
segir að vanþekldng hafi hingað til
staðið í vegi fýrir því að fleiri hund-
ar hafi fengist hingað til lands en að
fjölmargir blindir einstaklingar gætu
nýtt sér aðstoð þeirra.