Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Síða 17
f FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 17 DV Sport EKKINÓCU GflTT Steven Gerrard, fyrirliði Liver- pool, segir félagið vera fast í sömu sporum og 1 fyrra. Þrátt fyrir að allar aðstæður innan liðsins séu eins og best verður á kosið telur Gerrard að hugarfarið þurfi að breytast svo liðið verði sig- ursælt á ný. Þó liðið vinni Meistara- deildina bjargi það ekki tímabilinu. VIÐARGUÐJONSSON blcidamadur skrifar: Steven Gerrard, helsta stjarna Liver- pool, er orðinn þreyttur á slæmu gengi liðsins og segir hann að jafrivel þó lið- ið sigri í meistaradeildinni dugi það ekki til þess að bjarga leiktímabilinu. Liverpool er sem stendur í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og á litla sem enga möguleika á því að vinna enska meistaratitilinn. „Þú vinnur enga bikara með því að lenda í öðru sætí. Hvað þá fjórða sæti," segir Gerrard. Ég held að áhorfendur liðsins verði alls ekki sáttir með fjórða sætið. Við þurfúm að bæta okkur mik- ið og jafnvel þó við náum fjórða sætinu bjargar það engu á leiktíðinni," segir Gerrard, en Liverpool er sem stendur í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum á eftir grönnum sínum í Everton. Sigur í meistaradeildinni bjargar ekki leiktíðinni Hann segir að jafnvel þó Liver- pool vinni meistaradeildina breyti það engu. „Ég ætla ekki að láta eins og sá titill breyti nokkru. Við hugsum h'tið um þann títil eins og er enda langt frá því að við séum komnir í úrslitaleik- ■ _ u mn. Hann horfir nú helst til ensku úr- valsdeildarinnar. „Ég er niðurbrotinn í hvert skipti sem ég horfi á töfluna og sé bilið á milli okkar og Arsenal auk lið- anna í öðru og þriðja sæti. Fyrir leiktíðina töldum við okkur vera með nægilega gott lið til þess að gera atlögu að meistaratitlinum. Við vildum í það minnsta einn af þeim títl- um sem eru í boði á Englandi. Ég hef enn trú á því að við höfum nægilega góðan hóp til þess að gera atlögu að títlinum en það er ekki nóg." Hann segist búinn að fá sig fúll- saddan af tali um að á næstu leiktíð muni hlutimir batna. Síðastí meist- aratitill kom í hús árið 1990 og Gerr- ard segir þörf á hugarfarsbreytingu hjá öllum á Anfield. „Ég er orðinn þreytt- ur á því að segja sömu hlutina aftur og aftur. Við getum ekki alltaf talað um næstu leiktíð. Við þurfum að láta verkin tala á vellinum og fyrr eða síð- ar þurfum við að vinna meistaratítil til þess að geta breytt Liverpool í sigur- sælt félag á ný. Nú er ég 27 ára og ég vil ekki enn að vera tala um næstu leiktíð þegar ég verð 32 ára. Við erum með völlinn, áhorfend- uma, leikmennina og þjálfarann til þess að keppa um meistaratítilinn. En það er erfitt að sannfæra alla um að við séum með nægilega gott lið til að vinna þegar þú ert úr baráttunni um meist- aratitílinn í byrjun janúar á hverju ári. Helsta verkefrii okkar eins og stendur er að ná fjórða sætinu í baráttunni við Villa, Everton og Manchester City." Væntingarnar eru forréttindi Gerrard segir leikmenn liðsins sannfærða um að þeir getír gert mun betur og ætli sér að enda leiktíðina vel. „Hlutirnir eru í okkar höndum og sem betur fer náðum við góðum úrslitum gegn Inter í meistaradeildinni. Okk- ur langar að ná fjórða sætínu og vinna meistaradeildina á ný. Það myndi ekki kallast frábær árangur, en það myndi bjarga heilmiklu úr þessu. Þetta em kröfumar sem þú þarft að lifa við sem Liverpool-leikmaður. Væntingamar eru forréttindi sem fylgja því að klæð- ast treyjunni. Við eigum mikilvæga leiki á næst- unni gegn Manchester United og Ars- enal. Þó við getum ekki unnið deild- ina viljum við vinna þessa leiki því það myndi senda út sterk skilaboð fyrir næstu leiktíð. Enginn gætí hunsað þau úrslit, þau myndu fylgja okkur áfram og veita mönnum sjálfstraust." Gerrard segir vonbrigði að svona hafi farið á leiktíðinni því sumir fjöl- miðlar, sem illa er við Liverpool, njóti þess að gagnrýna liðið. „Við emm auð- velt skotmark sem stendur. Allt tal um yfirtöku á félaginu auk slæmrar spila- mennsku hefur áhrif á allt umhverfi liðsins. Viðskipti eiga ekld erindi við almenning en engu að síður eru þau í fréttum á hverjum degi. Stíkt skaðar alla sem eru viðriðnir félagið, frá toppi til táar," segir Gerrard að lokum. Vonbrigði Gerrard segir ekki alltaf hægt að tala um næstu leiktfð. Liöið þurfi að láta verkin tala. Hugsanlega heföi þurft aö taka fótinn af Eduardo ef ekki heföi komið til Gary Lewin: BJARGAÐIFÆTIEDUARDOS Eduardo da Silva hefði hugsan- lega misst fótinn á laugardaginn hefði sjúkraþjálfari Arsenal, Gary Lewin, ekki áttað sig fljótt á aðstæðum. Þegar Lewin kom inn á völlinn áttaði hann sig á alvarleika málsins. Næstu 45 mín- útur yrðu mikilvægar leikmanninum því hann var í sjokki, umlaði á portú- gölsku og það var mikil sýkingarhætta því beinbrotið var opið. Eduardo útskrifaðist í gær af sjúkra- húsi en hann hélt upp á 25 ára afrnæli sitt þar á mánudaginn. Lewin var fljót- ur að biðja um sjúkrabíl þegar hann kom inn á völlinn og farið var með leikmanninn á Selly Oak-sjúkrahús- ið þar sem hann gekkst undir aðgerð. Sjúkrabílar eru eins og lög gera ráð fyr- ir á Englandi á vellinum og voru því at- vinnumenn komnir á staðinn á innan við mínútu. Lewin fór einnig í hlutverk sálfræð- ings því hann notaði Gilberto sem túlk og náði að róa Eduardo, allt fyrir augum almennings, því leikurinn var í beinni útsendingu. Þegar leikmenn meiðast alvarlega utan föðurlands síns kemur uppruninn yfirleitt fram og þeir tala einungis móðurmál sitt. Slíkt gerðist með Eduardo. Eitt af vandamálunum sem sjúkra- liðar og Lewin þurftu að eiga við var líkamsstelling Eduardos. Þegar svo al- varleg meiðsli eiga sér stað er best að leikmenn tíggi á bakinu. Eduardo lá á hliðinni og ekki var hægt að hreyfa hann vegna þess að hann stífiiaði all- ur upp. Lewin náði að styðja við möl- brotinn fót Eduardos með hægri fæti, koma honum upp á sjúkrabörur og koma í veg fyrir sýkingu þrátt fyrir að Eduardo lægi á hliðinni. Fjölmargar skrúfur og plömr voru settar í fót Ed- uardos í aðgerðinni og sólarhring eftír hana var tilkynnt á heimasíðu Arsenal að aðgerðin hefði heppnast vel. Lewin hefur fengið mikið hrós fyr- ir sinn þátt en raunum Eduardos er hvergi nærri lokið þótt hann sé kom- inn heim á ný. Eftir 10 daga verða saumarnir teknir úr og fómrinn sett í gifs í sex vikur. Þá fær hann hækjur og að þremur mánuðum liðnum ættí Eduardo að geta hafið endurhæfingu. Þremur mánuðum eftir það getur hann hugsanlega bytjað að hlaupa og m'u mánuðum eftir að hann brotnaði, eða í nóvember, er vonast til að hann snúi aftur til æfinga. Arsenal-menn eru sannfærðir um að Eduardo muni leika á ný. Félaginu hafa borist tug- ir þúsunda heillaskeyta víðs vegar að. Hægt er að senda Eduardo skeyti á heimasíðu félagsins. benni@dv.is ÍÞRÓTTAMOLAR FABREGASHEFURÞROSKAST (mánaðarlegu tímariti Arsenal er ungstirnið Cesc Fabregas (viðtali þar sem hann viðurkennirað hafa áðurspilað svolítið fyrir sjálfan sig. Eftir sjö mörk í fyrstu níu leikjum tímabilsins var ekki um annað rætt en hæfileika pilts í deildinni og segir Fabregas að honum hafi ekkert leiðst það.„Ég hef þroskast mikið, sérstaklega á þessu tímabili. Mér finnst ég vera að skila mun meiri vinnu í vörninni og er tilbúinn að vera partur af liðsheildinni. Ég var mikið í því að sýna hvað ég gæti til að sanna mig en nú er því lokið," segir Fabregas (viðtalinu. KEEGAN VILL PENING Fyrstu dagar Kevins Keegan hjá Newcastle hafa ekki gengið sem skyldi og (raun langt því frá. Búist er við mikilli tiltekt á leikmannahópi liðsins og er Keegan fullviss um að eigandi liðsins, Mike Ashley, eigi eftiraðveita honum þá fjármuni sem hannþarffsumar. Hann segir þó að það byggist mikið á því hvort honum takist að rífa liðið upp í töflunni og sýna að með peningum geti hann gert eitthvað við þetta lið.„Við höfum ekkert sest niður og rætt þetta eitthvað sérstaklega. Mér var lofað peningum til leikmannakaupa þegarég kom hingaö og ég býst ekki við neinu öðru en að við það verði staðið," segir Keegan. SAVAGE LÍKLEGA EKKI MEÐ UM HELGINA Svo virðist sem Robbie Savage verði ekki með Derby (mikilvægum leik liðsins gegn Sunderland um helgina. Paul Jewell leist ekki vel á Savage þegar hann kom inn á um slðustu helgi og hafa meiðsli sett stórt strikí reikninginn hjá miðjumanninum óvinsæla eftirað hann gekk í raöir Derby.„Savage er ekki búinn að gera mikið. Það er eins og hann sé að reyna of mikið en allavega kemur ekkert út úr því. Hann hefur verið að spila tæpur vegna meiðsla og ég held að þetta sé komið á það stig að hann spilar ekki afturfyrren hann eralheill," sagði Paul Jewell, stjóri Derby. DEFOE VILL VERÐA VlTASKYTTA Framherjinn Jermain Defoe sem gekk til liðs við Portsmouth frá Tottenham í janúarsegistvera tilbúinn að taka vltspyrnur liðsins. Portsmouth hefur klúðrað tveimur mikilvægum vítaspyrnum á leiktíðinni á ögurstundu gegn WestHamog Liverpool. Með því töpuðu þeir fjórum mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti. Defoe skoraði úr víti gegn Sunderland um síðustu helgi.„Ég var fullur sjálfstrausts og ákvað því að taka spyrnuna. Ég var búinn að æfa þær mikið og hef verið að gera það undanfarið," segir Defoe á heimasíðu Portsmouth. MELLBERG ÚTSKÝRIR FÉLAGASKIPTIN Olof Mellberg gerði í janúar samning við (talska stórliðið Juventus en á enn eftir hálft ár af samningislnum við AstonWlla. „Fyrr eða síðar kemur að því að tímabærtséfyrir hvern sem er að yfirgefa hvaða félag sem er og sá tími var núna fyrirmig/'sagði Mellberg um vistaskiptin. Svlinn knái sagðist ekki geta sleppt því að fara til Juventus.„Að spila fyrir svona stórt lið er náttúrulega draumur hvers knattspyrnumanns og möguleikinn á að spila (meistaradelldinni kórónaði þetta allt saman," segir Mellberg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.