Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Qupperneq 29
DV Fólkið
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 29
MEISTARAKOKICUR GENGURTIL LIÐSVIÐ BANKA
Landsliðskokkurinn Alfreð
Ómar er metnaðargjarn í
mötuneytinu.
Alfreð Ómar, meðlimur í landsliði matreiðslumanna,
tók nýverið við stöðu yfirmanns mötuneyta og veislueld-
húsa Kaupþings. Á dögunum æfði landsliðið sig í þessu
glæsieldhúsi og eldaði kvöldverð fyrir fjörutíu og fimm
gesti Kaupþings sem voru að vonum himinlifandi með
matinn.
„Þessi atvinnuauglýsing hljómaði mjög spennandi.
Það sem Kaupþing ætlaði að fara að gera var að fara nýj-
ar leiðir í þessum mötuneytisgeira og nýtískuvæða mötu-
neytið hjá sér," segir matreiðslumeistarinn Alffeð Ómar
Alfreðsson. Alfreð er meðlimur í landsliði matreiðslu-
manna og hefúr síðustu árin starfað að mestu leyti á
Grillinu á Hótel Sögu. Nú hefur hann hins vegar tekið við
mötuneyti Kaupþings og fregnir DV herma að starfsfólk
bankans sé yfir sig ánægt með hádegisverðinn sinn þessa
dagana.
„Ég er yfirmaður mötuneyta og veislueldhúsa Kaup-
þings. Ég sé þannig ekki bara um hádegisverðinn held-
ur sjáum við núna sjálfir um veislurnar sem hingað til
hafa verið aðkeyptar inn í húsið. Við erum með gríðarleg-
an metnað þar og maturinn þarf auðvitað að vera bara í
samræmi við það sem gerist á markaðnum."
En hvað bauð Alfreð svo upp á í matinn í gær? „Við
vorum með pönnusteiktan karfa í salthnetu- og lime-
hjúp. Svo vorum við með hýðiskartöflur með karfan-
um. Eins og ég lít á þetta eru mötuneytisgestimir bara
viðskiptavinir og það vinnur mikið af ungu fólki hérna í
bankanum og gerir miklar kröfur. Ég reyni að halda mig
á þessum léttu nótum með hollan mat og innleiða í mat-
reiðsluna hérna þessi nýju krydd og brögð sem ég þekki
úr minni vinnu."
Eins og gefur að skilja er mikil kvöldvinna hjá mat-
reiðslumönnum sem starfa á veitingastöðum og því
hljótaþað að vera mikilviðbrigði fyrir Alfreð að verakom-
inn í dagvinnu og komast loksins í bíó á kvöldin. „Það er
talað um stöku kvöld- og helgarvinnu héma lfka en það er
nú bara svona eftir þörfum." Aðspurður hvort launin hjá
Kaupþingi hafi ekki heillað þegar Alfreð sótti um stöðuna
svarar hann hlæjandi: „Ja, launin em náttúrulega trúnað-
armál en ég er alveg sáttur. Það sem aðallega heillar mig er
hvað þetta er spennandi starfsvettvangur með skemmti-
legu samstarfsfólki og fyrsta flokks starfsumhverfi. Ég vil
meina að þetta sé flottasta eldhúsið á íslandi."
Þar sem Alfreð er eins og áður sagði meðlimur í lands-
liði matreiðslumanna var brugðið á það ráð á dögunum
að æfa landsliðið með því að elda kvöldverð fýrir fjömtíu
og fimm gesti Kaupþings í þessu flotta eldhúsi. „Við erum
að æfa okkur núna fyrir ólympíuleikana sem fram fara í
Þýskalandi í haust. Við tókum æfingu héma í mötuneyt-
inu í heitu réttunum og það heppnaðist gríðarlega vel og
það var mikil ánægja," segir mötuneytismeistarinn Alfr eð
að lokum. krista@dv.is
MÍNUS
LOFUÐÍ
ROCKSOUND
Fjórða breiðskífa íslensku rokk-
hljómsveitarinnar Mínuss, Great
Northern Whalekill, kemur út
í Evrópu á mánudaginn hjá út-
gáfúfýrirtækinu Little Indian.
Að svo búnu heldur hljómsveit-
in í tónleikaferð um England og
Skotland í lok mars. f apríl er
einnig fyrirhugað frekara tón-
leikahald í Evrópu og einnig hér
á landi.
Rokktímaritið Rocksound birti
mjög jákvæðan dóm um plötuna
og fær hún 8 af 10 mögulegum í
einkunn. f dómi ú'maritsins segir
meðal annars: „Mínus er mun
meira en hin hefðbundna há-
vaðahljómsveit. Að skapa tónlist
sem er aðgengileg en sem býr að
sama skapi yfir dýpt er ekki auð-
velt verk. En Mínus heldur áfr am
að takast það frábærlega."
SKÁKAR
ASTRÓPÍU
Brúðguminn, mynd Baltasars Kor-
máks, hefur skákað tekjuhæstu
mynd síðasta árs hér heima. Það
var ævintýragamanmyndin Astró-
pía eftir Gunnar B. Guðmundsson
en hún þénaði 45.582.020 krónur.
Brúðguminn hefur hins vegar þénað
48.609.540 krónur samkvæmt nýj-
ustu tölum frá Smáís og því líklegt að
myndin verði sú tekjuhæsta í lok árs
ef miðað er við árið í fýrra. Þrátt fýrir
hærri aðsóknartekjur hafa fleiri séð
Astrópíu eða 46.285 manns. 44.685
manns hafa séð Brúðgumann og
geta skýringarnar á tekjumismunin-
um verið ýmsar. Svo sem boðssýn- n
ingar, tveir fýrir einn tilboð og annað
í þeim dúr.
Einn þekktasti blaðasölumaöur íslands varð sjötugur í gær:
BLAÐASALIHEIÐRAÐUR
1991 Auðunn með DV þann
9. júlí árið 1991.
Einn þekktasti blaðasölumað-
ur fslands, Auðunn Gestsson, varð
sjötugur í gær og af því tilefni heim-
sótti hann ritstjómarskrifstofur DV.
Auðunn seldi DV um áratugaskeið,
meðal annars í miðborg Reykjavík-
ur, með framúrskarandi árangri.
Auðunn er án nokkurs vafa einn
allrabesti vinur blaðsins en hann
segist helst ekki geta byrjað daginn
án þess að glugga í blaðið yfir kaffi-
bolla. Auðunn fékk góðar móttökur
hjá starísfólki DV og færðu þeir
Reynir Traustason og Jón Trausti
Reynisson, ritstjórar blaðsins, hon-
um heiðursviðurkenningu fyrir vel
unnin störf í gegnum tíðina. Auð-
unn fékk einnig konfektkassa að
gjöf og sagði Reynir Traustason að
hann gæti notið hans með morg-
unkaffinu, á meðan hann gluggaði
í blaðið.
Auðunn hefúr staðið með blað-
inu í gegnum þykkt og þunnt og
staðið úti í öllum veðrum úl að selja
blaðið. Hann kveðst vera ánægður
með DV og segist ekld taka annað
í mál en að borga áskriftina sam-
viskusamlega um hver mánaða-
mót. Auðuni eru færðar þakkir frá
ritstjóm DV um leið og honum er
óskað innilega til hamingju með
sjötugsafmælið.