Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. APR(L 2008
Fréttir DV
Óhrein torg og ófögur borg einkenna
Reykjavíkurborg um þessar mundir
eftir að snjó hefur tekið að leysa.
Blaðamaður og ljósmyndari DV
fóru á rúntinn og komust að því að
nánast sama hvar litið er finnst rusl
á götum, gagnstéttum, grasblettum,
runnum og tjörnum. Það var meira
aðsegjafljótandiruslvíðaíTjörninni
við sjálft Ráðhús Reykjavíkurborgar.
Undanfarið hefur farið fram á
vegum borgarinnar átak í hreinsun
veggjakrots í miðborginni. Að sögn
borgarstarfsmanna hefur hreinsun-
in gengið vel og íbúar og verslunar-
eigendur fagnað átakinu. Fjölmargir
hafa sjálflr málað og snyrt húsnæði
sitt og hefur borgin lagt til máln-
ingu handa hinum framtakssömu.
Tæpir 2000 fermetrar af veggjakroti
við Laugaveg hafa verið hreinsaðir
og reiknað með því að 500 vinnu-
stundir borgarstarfsmanna séu að
baki við hreinsunina.
f kjölfar þessa góða árangurs
sem náðst hefur gegn veggjakroti
í miðborginni bíður borgarstarfs-
manna mikið verk að tína upp rusl
því af vettvangsferð DV má sjá að
mikil þörf er á hreingerningu.
6. Hringbraut Á grænu svæði við Hringbrautina, nærri Meist-
aravöllum, var mikið um rusl á víðavangi og inni í runnum.
Vesturbærinn var hins vegar eina svæðið þar sem ekið var
fram á starfsmenn borgarinnar að tína rusl í bæjarhlutanum.
4. Baldursgata Á horni
Baldursgötu og Þórsgötu var
þennan subbulega trjágróður
að finna. Plastpokar og
bréfafrusl úti um allt og Ijóst
að ruslið hefur fengið að vera
þarna óhreyft um langt skeið.
Að minnsta kosti var ruslið
meira áberandi en fallegur
gróðurinn.
1. Ártúnsbrekka (Ártúnsbrekkunni var mikið drasl að finna,
einkum Ártúnshöfðamegin. Þar voru pappakassar, plastpokar,
bjórflöskur og sígerettustubbar á v(ö og dreif með fram
umferðargötunni og veitir ekki af því að hreinsa meðfram henni.
7. Grensásvegur Á horni Grensásvegar og Miklubrautar var
þennan glæsilega runna að finna. Þar hefur greinilega ekki
verið þrifið (nokkur ár og áragamalt drasl hefur safnast upp. Ef
horft er síðan eftir trjálengjunni upp með Miklubrautinni er
svipaða sögu að segja.
5. Ráðhúsið (Tjörninni við
sjálft Ráðhús Reykjavíkur-
borgar var allt fullt af drasli.
Pappaspjöld og plastpokar
flutu þar á víð og dreif þannig
aðTjörnin, sem allajafna er
mikil prýði, leit subbuiega út
og engum til sóma.
3. Hallgrímskirkja Umhverfis
Hallgrímskirkjuna var víða rusl að
finna í runnum og moldarsvæðum
svo og við nærliggjandi hús.
Blaðamaður hafði viku áður gengið
um þetta sama svæði og var þá að
finna mun meira rusl en að þessu
sinni. Engu að s(ður var af nógu að
taka að þessu sinni.
i.-t-
2. Snorrabraut Á gatnamótum Snorrabrautar og Egilsgötu var að
finna skrautlegan runna með ýmiss konar drasli. Þar voru plastpokar,
bréfmiðar og gamlar drykkjarumbúðir svo dæmi séu tekin.
8. Höfðabakki Á umferðareyjum og útisvæðum einkafyrir-
tækja við Höfðabakka vartöluvert drasl að finna í runnum og
á grænum svæðum. Það er ekki síður ábyrgð einkafýrirtækja
að gera hreint á lóðum sínum og borgarstarfsmenn þurfa að
huga að umferðareyjunum.
Allt í drasli Eins og sjá má er i
víða rusl að finna á götum
borgarinnar og borgarstjóra ’.þ
bíður mikið verk að hreinsa
borgina sína.DV-myndSigurður if:
Blaðamaður og ljós-
myndari DV fóru í öku-
ferð um höfuðborgina og
veittu athygli hversu
viða má finna rusl i
borginni. Eftir að snjó
tók að leysa kemur
ruslið berlega i ljós og
ljóst að Ólafur F. Magn-
ússon borgarstjóri á
mikið verk fram undan
við að hreinsa borgina
sína. Að minnsta kosti er
erfitt um þessar mundir
að notast við slagorðið
Hrein torg, fögur borg.
Nóg að gera Ólafur
borgarstjóri á mikið verk
fram undan við að
hreinsa borgina sína.
DV-mynd Asgeir
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadui ikrlfar.
tiamtk