Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Side 15
DV BRÚÐKAUP
MIÐVIKUDAGUR 16. APRlL 2008 15
Brúðkaupstímabilið lengist
Talið berst að sumrinu sem er tíminn sem flestir velja að gifta sig á. „Hvað
varðar tímasetningu á brúðkaupum tek ég eftir því í mínu starfi að það er
aukning á brúðkaupum í maí og september. Aður röðuðust brúðkaupin
mikið á júm', júlí og ágúst en mér finnst það allt vera að breytast. Það
er yndislegt að gifta sig í maí þegar náttúran er að vakna til lífsins eða í
haustlitum septembermánaðar. Það er nú oft þannig að íslendingar eru úti
um allt yfir hásumarið og það getur markað gestalistann verulega. Ég tek líka
eftir því að fólk leggur mikið í undirbúning að brúðkaupsathöfninni sjálfri í
samstarfi við prestinn og tónlistarfólkið. Það er einnig orðið mjög sjaldgæft
að brúðkaupsgestir komi bara í veisluna en ekki athöfnina sjálfa, það er mjög
jákvæð breyting. Einnig eru sálmar miklu oftar á topp tíu listanum við þessar
athafnir. Það þakka ég ekki síst tónlistarfólki dagsins í dag sem hefur verið að
færa sálmana með nýjum hætti til þjóðarinnar, eins og Gunnar Gunnarsson,
Sigurður Flosason, Ragnheiður Gröndal, Ellen Kristjáns, Egill Ólafsson og
fleiri góðir," segir Jóna Hrönn að lokum sem sjálf kemur til með að gifta mörg
Séra Jóna Hrönn Bolladóttir spjallaði við blaða-
mann DV um brúðkaup og breyttar hefðir.
„Þegar ég hittí brúðhjón til að undirbúa brúðkaupsathöfnina og umræðan
snýst um hefðir og siði, bendi ég alltaf á að það eru tengslin sem skipta fyrst
og fremst máli en ekki hefðirnar. Þetta kemur til dæmis oft upp þegar kemur
að því að velja sér svaramann. Hefðin er sú að feður hafi það hlutverk. Faðir
brúðarinnar leiðir dóttur sína upp að altarinu, en það er rjúfanlegt, auðvit-
að. Eðlilegast væri í mínum huga að brúðhjón leiddust inn," segir Jóna um
hefðirnar.
„Ákvörðun um sambúð og hjónaband er þeirra. Nú eru sem betur fer ekki
brúðir gefnar og greiddur heimamundur, heldur koma tveir jafningjar til
kirkjunnar til að bera fram heit sín ffammi fyrir Guði og mönnum. Núna er
það þannig að fólk þekkir ekki endilega til uppruna hefðanna og setur aðra
merkingu í hlutina."
Breyttar hefðir
Jóna Hrönn segir það æ algengara að brúðhjón velji góða vini sem
svaramenn frekar en foreldra eða systkin. „Það kemur líka fyrir að brúður
komi gangandi inn með börnum sínum sem hafa náð sjálfræðisaldri. Mín
skoðun er nú sú að fólk eigi ekki að bíða svo lengi með að gifta sig að börnin
þeirra séu orðin nánast fullorðin, en svo geta þetta auðvitað verið börn af
fyrra sambandi. Ef velja á foreldri sem svaramann er alveg jafneðlilegt að
mæðurnar gegni því hlutverki og feður. Það er líka alveg sjálfsagt ef það er
erfitt að gera upp á milli að báðir foreldrar séu svaramenn. Það hefur komið
fyrir í samsettum fjölskyldum að brúðurin hafi átt erfitt með að gera upp á
milli blóðföður og fósturföður. Þá hef ég lagt til að þeir séu báðir svaramenn,"
segir Jóna um breyttar hefðir.
Dómkirkjan er gríðarlega vinsæl yfir sumartímann og laugardagar þéttbókaðir:
;
Fimm
Dómkirkjan í Reykjavík
Er vinsæl vegna glæsileika og staðsetningar.
-
aráeinumde
„Það er mjög mikið bókað hjá okkur og nánast full
ir Ástbjörn Egilsson, kirkjuhaldari Dómkirkjunnar
„Það eru alltaf einhverjar tilfærslur og breytingar á dagsetningum
þannig að eitthvað losnar en það er ekki mikið." Dómkirkjan, sem
stendur í miðbæ Reykjavíkur við Austurvöll, hefur verið ein allra
vinsælasta kirkja landsins þegar kemur að giftingum og er ekkert
lát þar á. Þegar mest lætur eru fjórar til fimm giftingar á dag.
„Flestallir laugardagar eru uppbókaðir. Við erum jafnvel með
nokkra daga þar sem eru fjögur eða fimm brúðkaup á sama degi,"
segir Ástbjörn en þá byrjar dagskráin skömmu eftir hádegi. „Við
erum þá með eitt klukkan hálftvö, svo þrjú, hálffimm, sex og jafn-
vel hálfátta." Ástbjörn segir að lítið sé um brúðkaup á virkum dög-
um en föstudagar taki kipp yfir hásumartímann.
Aðspurður hvað kosti að leigja kirkjuna segir Ástbjörn það vera
á bilinu 30 til 35 þúsund krónur. „Presturinn tekur um 12.000,
organistinn eitthvað svipað og kirkjan kostar 6.000 krónur. Þetta
er svona lágmarkspakkinn." asgeir®dv.is