Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 16.APR(L2008
BRÚÐKAUP DV
„Ég saumaði einn rauðan kjól og einn bleik-
an í fyrra," segir Anna Kristín Magnúsdóttir hjá
Brúðarkjólaleigu Dóru. Anna hefur mikið orðið
vör við að konur velji sér óhefðbundna kjóla til
að klæðast á brúðkaupsdaginn og þá er ffávikið
aðallega að finna í öðruvísi lit en hinum hefð-
bundna hvíta. „Það eru ekkert allar konur sem
bera að vera í alveg hvítu, sérstaklega ekki við
íslensku konurnar. Við verðum svolítið gráar.
Það er því kannski svolítið ástæðan fyrir þessari
breytingu."
Að sögn Önnu er miidari litur á kjólnum því
oft betri. „Þær sem ætla ekki að vera í hvítu velja
oft ivory- eða beige-litaðan kjól," segir Anna.
„Gyllti limrinn er líka rosa fallegur. Eg var að
klára einn slíkan núna og síðan er spuming
hvort einn verði gulur. Við erum ekki alveg búin
að negla það niður. Svo á ég til dæmis einn sem
er með gráu tjulli yfir. Hann er rosa skemmti-
legur og svolítið öðmvísi. Síðan verð ég með
einn með svörtu og hvítu skrauti. Svart og hvítt
var svolítið vinsælt í fyrra og heldur áfram í ár.
Annars velur fólk velur sér eiginlega allt og þess
vegna er svo gaman að vera með svolítið breiða
línu til að geta boðið öllum eitthvað."
Aðspurð segir Anna að engin kona sem hafi
komið til hennar hafi beðið um alveg svartan
kjól. Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir klædd-
ist einmitt kjól í þeim lit í sínu brúðkaupi fyrir
nokkmm mánuðum og komst í fréttimar fyr-
ir. „Islenskar konur em mikið í svörtu og þess
vegna mætti halda að það væri meira af því. En
kannski vilja konur breyta tfi í litavalinu þennan
eina dag," segir Anna.
Anna sér tilhneigingu hjá konum til að vilja
annan lit en hvítan þegar þær eru að giftast í
annað sinn og þegar þær verða eldri. „Stund-
um er það þannig að þeim finnst þær ekki
eiga að vera í hvítu þegar þær eru ekki leng-
ur tvítugar. Síðan hef ég fengið konur á fimm-
tugsaldri sem eru að gifta sig í annað sinn og
velja bara flottasta kjólinn. Ætla að gera þetta
almennilega því þær kannski gerðu það ekki
síðast, giftu sig til að mynda borgaralega.
Annars held ég að þetta sé mjög persónu-
bundið. Sumir halda rosalega í hefðirnar og
aðrir ekki."
Herrarnir eru famir að velja sér meira af
ljósum fötum til að klæðast á stóra deginum.
„Smókinginn og kjólfötin em alltaf vinsæl,"
segir Anna. „Svo er jacketinn breski nokkuð
vinsæll. Það er fatnaður sem þú ferð ekkert
í aftur nema þú verðir svaramaður eða farir í
enskt brúðkaup. Þetta er ekki beint eitthvað
sem þú ferð í á ball. Síðan em það ljós jakkaföt
eins og ljósgrá eða ljósbrún. Það kemur rosa-
lega skemmtfiega út á myndum ef hún er í ljós-
um kjól og hann í ljósum fötum."
Anna segir annars að eftirspumin eftir föt-
um sé svipuð í ár og síðustu ár, og um aukn-
ingu sé að ræða ef eitthvað sé. Síðasta ár skeri
sig hins vegar úr því svo margir hafi gift sig 7.
júlí vegna dagsetningarinnar 07.07.07.
kristjanh@dv.is
Það skiptir miklu máli að velja brúðartertuna vel: Finndu drauma brúðan ten tuna
Ef vel tekst til gleður hún bæði auga og maga sem skraut og eft-
irréttur. Möguleikarnir em endalausir, bæði hvað varðar útlit og
innihald. Því ættu brúðhjón alltaf að fá að sjá nokkur sýnishorn
og smakka á þeim áður en kakan er valin.
Hvítar brúðartertur verða vinsælli með hverju árinu, enda
er hvíti liturinn táknrænn fyrir brúðkaupið. Sumir kjósa þó að
skreyta hvítar kökur með skrauti í sterkum lit.
Súkkulaðikökur eru líka vinsælar en oft eru þær dulbúnar með
hvítu kremí.
Það er þó enginn sem segir að brúðartertur þurfi að vera
hefðbundnar. Yfirleitt sýnir það karakter og skapar skemmtilega
stemningu að gera eitthvað óvænt. Brúðartertur mega alveg vera
röndóttar. Eða í laginu eins og ferðatöskur.
Brúðartertur eru jafnvel gerðar úr stafla af litlum kökum,
ávaxtabökum eða múffum. Oft em þá hjörtu eða upphafsstafirnir
í nöfnum brúðhjónanna sett ofan á hverja köku. Sumir stafla jafn-
vel upp konfekti, hvítu og brúnu, og enn aðrir litlum kaffibollum
með gómsætum eftírréttum, til dæmis tíramísú - eða „skyram-
ísú".