Fréttablaðið - 01.04.2016, Page 14
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Ríkisstjórnin er nú rúin trausti. Forsætisráð-herra hefur ekki upplýst um hagsmuni sína, sem máli gátu skipt við meðferð brýnna
þjóðarhagsmuna. Fjármálaráðherra er tvísaga um
eignir í erlendum skattaskjólum.
Á alþjóðavettvangi hafa vestræn ríki barist af
hörku gegn skattaskjólum og Ísland hefur tekið
þátt í þeirri baráttu.
Það er einsdæmi að forysta ríkisstjórnar vest-
ræns lýðræðisríkis eigi eignir í slíkum skjólum og
það verður þjóðinni ekki til vegsauka. Þar fyrir
utan er það birtingarmynd þeirrar staðreyndar að
forysta stjórnarflokkanna deilir ekki kjörum með
þjóðinni.
Fréttir sem birst hafa undanfarna daga sýna að
upplýsingum var leynt fyrir þjóðinni fyrir síðustu
kosningar.
Þegar þing hefst á ný í næstu viku munu þing-
menn stjórnarmeirihlutans þurfa að svara þeirri
spurningu hvort þeir treysti sér til að hitta kjós-
endur sína eða hvort þeir ætla að hreiðra um sig
með forystumönnunum í skjólinu.
Okkar ábyrgð er að tryggja að stjórnkerfið taki
þetta mál og rannsaki. Þess vegna hef ég fyrir
hönd okkar í stjórnarandstöðunni óskað eftir
fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis,
með umboðsmanni Alþingis, til að fara yfir hæfi
forsætisráðherra til að vinna að samningum við
kröfuhafa þegar hann sat beggja vegna borðsins.
Við þurfum líka að fá skýr svör frá fjármálaráð-
herra um af hverju í ósköpunum forsætisráðherra
landsins þurfti einn manna ekki að uppfylla
neinar trúnaðarskyldur vegna afnámsferlisins, eða
af hverju fjármálaráðherrann krafði hann og aðra
þá sem unnið hafa að afnámi hafta ekki um að þeir
gerðu grein fyrir hagsmunum sínum af niður-
stöðunni.
Við þurfum forystu sem treystir sér til að koma
hreint fram og hafa allt uppi á borðum. Forystu
sem deilir kjörum með þjóðinni. Ekki forystu sem
sífellt flækist úr einu skjóli í annað.
Að stíga út úr skjóli
Árni Páll
Árnason
formaður Sam-
fylkingarinnar
Það er eins-
dæmi að
forysta
ríkisstjórnar
vestræns
lýðræðisríkis
eigi eignir í
slíkum
skjólum.
Frá degi til dags
kvika.is
Stjórn Kviku banka hf. minnir á að framhaldsaðalfundur
félagsins verður haldinn á skrifstofu þess að Borgartúni 25,
105 Reykjavík, 8. hæð, þann 1. apríl nk. kl. 12.00.
Ítarlegt fundarboð var sent hluthöfum með tölvupósti þann
18. mars sl. í samræmi við ákvæði samþykkta félagsins.
Framhaldsaðalfundur Kviku banka hf. 2016
Snjall leikur
Umræðan um aðkomu stjórn-
málamanna að eignum á
aflandseyjum virðist stig-
magnast og mun væntanlega
ná hámarki þegar þing kemur
aftur saman eftir páskafrí. Þótt
engar vísbendingar hafi verið
birtar um það að ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar hafi brotið lög með
tengslum sínum við af landsfélög,
er spurt um pólitískan trú-
verðugleika viðkomandi ráð-
herra og hvort trúverðugleikinn
hafi raskast það mikið að þeim
sé sætt áfram í embætti. Það var
því sterkur pólitískur leikur hjá
gjaldkera Samfylkingarinnar að
segja skilið við þá stöðu. Þannig
setur hann enn meiri þrýsting á
ráðherrana. Og miðað við við-
brögð á samfélagsmiðlum virðist
sem það hafi heppnast prýðilega.
Evrópukratar fá vind í seglin
Barátta kratanna fyrir inngöngu
í Evrópusambandið virtist
vonlaus fyrir einungis fáeinum
vikum. Raunar var hún svo
glötuð að einn af helstu forvígis-
mönnum þeirrar baráttu, Jón
Baldvin Hannibalsson, hafði
gefið hana upp á bátinn. En með
Wintris-málinu hafa aðildarsinn-
ar fengið byr í seglin. Forsætis-
ráðherra hefur enn ekki getað
réttlætt andstöðu sína við aðild
Íslands að samevrópsku mynt-
svæði á sama tíma og eiginkona
hans á miklar eignir í erlendum
gjaldmiðlum. Ráðherrann þarf að
tala svo þjóðin skilji.
jonhakon@frettabladid.is
Kostnaðarþátttaka sjúklinga í heilbrigðis-kerfinu hefur nær tvöfaldast á síðustu 30 árum. Hlutur heimila í heildarútgjöldum til heilbrigðismála var í fyrra 18,2 prósent, sem er rúmlega einu prósenti minna en
árið 2010. Í nýrri skýrslu ASÍ kemur fram að í sumum
tilfellum sé ekkert þak á heildarkostnaði sjúklinga.
Þannig geti alvarlega veikir einstaklingar þurft að
greiða hundruð þúsunda úr eigin vasa á ári hverju.
Kvöldfréttir Stöðvar 2 ræddu á miðvikudag við Ing-
veldi Geirsdóttur sem greindist með brjóstakrabba-
mein árið 2014. Á rúmu ári greiddi hún 340 þúsund
krónur fyrir meðferð sína; læknisheimsóknir, rann-
sóknir og sjúkraþjálfun. „Maður er alinn upp við að
hér sé ókeypis heilbrigðisþjónusta, eða svona nánast,
en svo kemur í ljós að svo er ekki,“ sagði Ingveldur,
sem er þó langt í frá versta dæmið.
Heilbrigðisráðherra kynnti nýtt greiðsluþátttöku-
frumvarp í ríkisstjórn í vikunni. Þar verður þak sett
á kostnað sjúklinga. Samkvæmt frumvarpinu ætti
enginn að borga meira en 95 þúsund krónur á ári í
sjúkrakostnað og stórnotendur, það er að segja lang-
veikir, greiða mun minna. Í grófum dráttum verður
greiðslukerfi fyrir heilsugæslu, sjúkrahús, sjálfstætt
starfandi sérfræðinga, rannsóknir, geisla- og mynd-
greiningar og sjúkraþjálfun, sem áður voru með mis-
munandi afsláttarfyrirkomulagi, sett í eitt kerfi með
sameiginlegt hámark. Gjaldflokkarnir verða tveir,
almennur og annar fyrir öryrkja, aldraða og börn.
Kerfið gengur út á að jafna kostnað þeirra sem þurfa
á mikilli heilbrigðisþjónustu að halda og dreifa á þá
sem nota þjónustuna lítið.
„Það þýðir það að við erum að draga úr kostnaði um
tíu þúsund einstaklinga og fjölda barnafjölskyldna og
láta þá sem sjaldnar, sem betur fer, eiga viðskipti við
heilbrigðiskerfið bera örlítið þyngri kostað en þeir ella
hefðu gert,“ sagði Kristján Þór Júlíusson heil brigðis-
ráðherra í samtali við Kvöldfréttir Stöðvar 2 í gær.
Í skýrslu ASÍ kemur fram ákall eftir því að hámark
verði sett á kostnaðarþátttöku sjúklinga. Hins vegar er
þar lögð áhersla á að hámarkið verði ekki fjármagnað
með þeim hætti sem gert er, með tilfærslu á kostnaði
frá þeim sem greiða háan heilbrigðiskostnað til þeirra
sem þurfa sjaldan á þjónustunni að halda. Til lengri
tíma skuli líta til þess að þjónustan verði gjaldfrjáls.
Auðvitað er það göfugt markmið að öll heilbrigðis-
þjónusta sé ókeypis. Það er hins vegar óraunhæft.
Heilbrigðismál eru stærsti útgjaldaliður ríkisins og
stórar áskoranir eru fram undan í málaflokknum
vegna öldrunar þjóðarinnar. Spár gera ráð fyrir að
útgjöld til heilbrigðisþjónustu gætu vaxið ríflega
þrefalt hraðar á næstu 30 árum en síðastliðin 30 ár.
Ekkert er óeðlilegt við það að kostnaði sé dreift
þannig að þeir sem sjaldan þurfa á aðstoð heilbrigðis-
kerfisins greiði meira fyrir hvert skipti en stórnotendur.
Flest okkar sem erum þeirrar gæfu aðnjótandi að vera
nokkuð heil heilsu getum séð af örlítið hærri fjárhæð
fyrir þær stöku læknisheimsóknir sem við þurfum á
að halda sem nýtist þá þeim sem ekki eru svo heppnir.
Frumvarp heilbrigðisráðherra er því fagnaðarefni.
Dýr veikindi
Spár gera ráð
fyrir að
útgjöld til
heilbrigðis-
þjónustu
gætu vaxið
ríflega þrefalt
hraðar á
næstu 30
árum en
síðastliðin 30
ár.
1 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r14 S k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
SKOÐUN
0
1
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
C
-4
3
3
8
1
8
E
C
-4
1
F
C
1
8
E
C
-4
0
C
0
1
8
E
C
-3
F
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K