Fréttablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 41
Háskólakórinn, Kammerkór háskól- ans í Erfurt og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins frumflytja hér á landi Lofsöng Mendelssohns á tónleikum í Langholtskirkju kl. 20 í kvöld og tónleikarnir verða svo endurteknir á morgun, laugardag, kl. 17. Þetta er sinfónískt verk, stórt í sniðum, og frumflutningur þess því að sönnu talsverð tíðindi. Á tónleikunum verður einnig fluttur píanókons- ert nr. 21 eftir Wolfgang Amadeus Mozart, stundum kallaður „Elvira Madigan“, en einleikari er Guðrún Dalía Salómonsdóttir. Stjórnandi á tónleikunum er Gunnsteinn Ólafs- son og hann segir að það sé saga að segja frá því hvernig þetta viðamikla verkefni kom til. „Það er með ólíkindum hvernig þetta allt saman æxlaðist. Þannig var að við Pétur Már bróðir minn og fjölskyldur okkar og vinafólk fórum í gönguferð fyrir tveimur árum aust- ur í Víkur í grennd við Borgarfjörð eystri og þar um slóðir. Við komum í skála í Breiðuvík og komum okkur þar fyrir þegar að kemur þýskur hópur. Þau spyrja hvort þau geti fengið að gista í skálanum því gist- ingin þeirra á Borgarfirði hafi brugð- ist og það var auðvitað allt í góðu með það. Svo erum við að syngja þarna saman um kvöldið, syngja raddað reyndar, og þá kemur þarna Þjóðverji úr þessum hópi og spurði hvernig standi á því að við kynnum að syngja í röddum. Ég sagði honum að við værum nú kórfólk og að sjálf- ur væri ég kórstjóri Háskólakórsins. Hann sýndi þessu mikinn áhuga og sagði svo: „Ég syng í karlakór í Erfurt og mér finnst að við ættum að láta kórana hittast.“ Ég verð að játa að ég átti nú ekki von á að heyra frá honum aftur en hann var vart kominn til Þýskalands þegar hann skrifaði mér og sagði að hann væri kominn á fullt með að skipuleggja komu Háskólakórsins til Þýskalands en að karlakórinn hans hafi guggnað á verkefninu. Hann hafi því tekið til þess ráðs að fá háskólakórinn í Erfurt til liðs við sig. Þau fengu svo þýskan styrk fyrir okkur og úr varð að við fórum þang- að síðastliðið sumar og héldum tón- leika fyrir fullum sal og kórinn þar söng aðeins með okkur og nú eru þau að endurgjalda heimsóknina.“ Gunnsteinn segir að Lofsöngur Mend elssohns sé gríðarmikið verk, samið fyrir þrjá einsöngvara, kór og hljómsveit. „Málið er að það þarf helst mjög stór kór að syngja þetta og við erum um sjötíu til áttatíu manns sem syngjum þetta núna auk ein- söngvaranna sem eru þau Erla Björg Káradóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran og Egill Árni Pálsson tenór. Svo er Sin- fóníuhljómsveit unga fólksins með okkur en hún er reyndar tónlistar- hópur Reykjavíkur í ár og fékk veg- legan styrk frá borginni af því tilefni. Á tónleikunum verður einnig fluttur píanókonsertinn frægi Elvira Madig- an eftir Mozart og það gerir Guðrún Dalía Salómonsdóttir og gerir það alveg ótrúlega glæsilega. Það er svo- lítið síðan Guðrún Dalía lauk námi frá Þýskalandi og hún er að kenna hérna á Íslandi núna en hefur ekki leikið áður með hljómsveit sem er hreint út sagt með ólíkindum því hún er svo frábær píanóleikari. Einn af okkar allra bestu píanistum af yngri kynslóðinni. Þetta er gríðarlega gaman, mikil orka í öllu þessu unga tónlistarfólki og gaman fyrir mig sem stjórnanda að fá þennan hóp í hendurnar. Ég treysti því líka að tónleikagestir komi til með að njóta stundarinnar.“ magnus@frettabladid.is Syngjandi bræður í Breiðuvík Tveir háskólakórar, sinfóníuhljómsveit, þrír einsöngvarar og einleikur á píanó á tónleikum í Langholtskirkju í kvöld. MáLið er að það þarf heLsT Mjög sTór kór að syngja þeTTa og við eruM uM sjöTíu TiL áTTaTíu Manns Gunnsteinn Ólafsson að stjórna æfingu tveggja háskólakóra og Sinfóniuhljómsveitar æskunnar. Bækur Einn af okkur – saga um samfélag HHHHH Åsne Seierstad Þýðing: Sveinn Guðmarsson Fjöldi síðna: 571 Útgefandi: Mál og menning Prentun: Ísafoldarprentsmiðja Hvernig verða skrímsli til? Hvaða ábyrgð berum við á og gagnvart hvert öðru? Hvað er að tilheyra sam- félagi? Bókin Einn af okkur snertir á þessum grundvallarspurningum um það hvað það þýðir að tilheyra samfélagi og hversu hættulegt það getur reynst að útiloka fólk frá þeim möguleika. Hún segir frá atburðum sem eru flestum í fersku minni, þegar Anders Behring Breivik drap sjötíu og sjö einstaklinga með köldu blóði, flesta undir tvítugu, fyrst með sprengjuárásum í Ósló og svo með skotvopnum á ungliðaþingi Verka- mannaflokksins á hjartalaga eyjunni Útey þann 22. júlí 2011. Bókin er unnin með aðferðum rannsóknarblaðamennskunnar og byggð á beinhörðum staðreyndum, lögregluskýrslum og yfirheyrslum og öllu því sem hægt var að komast yfir til að lýsa uppvexti og lífi Anders Bering Breivik frá fæðingu og nánast til dagsins í dag. Hún lýsir aðdrag- anda, undirbúningi og eftirköstum árásanna í smáatriðum, en líka þrá einstaklings eftir því að tilheyra einhverjum eða einhverju sem að lokum leiddi til örvæntingarfyllstu aðgerða til að vera, ef ekki elskaður og dáður, þá að minnsta kosti sýnilegur. Bókin segir líka sögu nokkurra þeirra sem létu lífið fyrir hendi Breiviks og saga þeirra er ekki síður mikilvæg fyrir okkur sem lesendur. Þau voru nefnilega líka ein af okkur, tilheyrðu sama samfélagi þó þau væru úr ólíkum áttum og þjóðernum. Lýsingar á atburðum í samtímasögu Noregs og þeim samfélagsbreytingum sem meðal annars hafa orðið eftir að þar varð fjölmenningarsamfélag eru áhugaverðar, sem og lýsingar á þeim vandamálum sem komu upp hjá yfirvöldum í Noregi þegar taka þurfti afstöðu til þess hvernig átti að lögsækja og dæma í máli sem átti sér engin fordæmi. Hvernig átti að lýsa morðunum við réttar- höldin þegar aðstandendur sátu í salnum? Hvar átti að draga línuna í ákærum þegar auk hinna sjötíu og sjö eru margir tugir sem munu bera líkamlega áverka það sem eftir er? Og síðast en ekki síst: hvernig átti að taka afstöðu til þess hvort Breivik er geðveikur eða ekki? Hvernig bregst samfélag við þegar nánast hið versta hefur gerst? Og þá má ekki gleyma nákvæmum lýsingum á atburða- rásinni 22. júlí 2011, lýsingum sem er nánast óbærilegt að lesa en þó svo nauðsynlegt að þekkja, bæði af virðingu fyrir þeim sem létu líf sitt en ekki síður til að setja verknaðinn í samhengi við einstaklinginn. Og það er gríðarlega mikilvægt að muna og gleyma aldrei að sá sem gerðist brotlegur við grundvallarmennskuna í Útey var ekki framandi, kom ekki að utan þó hann aðlagað- ist ekki samfélaginu. Hann var einn af okkur. Åsne Seierstadt hefur unnið þrekvirki við ritun þessarar bókar, þrekvirki sem á sér vart hliðstæðu. Bókin er spennandi, fræðandi og rígheldur í lesandann en samt svo óhugnanleg og sorgleg og hræðileg að lesturinn er á köflum mjög erfiður. Þýðing Sveins Guð- marssonar er vel unnin, hnökralaus og truflar aldrei flæðið í textanum sem er mikilvægt þegar um svona bók er að ræða. Þetta er bók sem breytir fólki, breytir því hvernig við hugsum um samferðafólk okkar. Vonandi gerir þessi frásögn okkur færari í því að búa til betra samfélag. Brynhildur Björnsdóttir NiðurStaða: Ótrúlega mögnuð og merkileg bók, sorgleg, óhugnanleg og hræðileg en samt ómögulegt að leggja hana frá sér. Bók sem breytir fólki. Skrímsli verður til M E N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 29F Ö S t u D a g u r 1 . a p r í L 2 0 1 6 0 1 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :0 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 E C -5 B E 8 1 8 E C -5 A A C 1 8 E C -5 9 7 0 1 8 E C -5 8 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.