Fréttablaðið - 01.04.2016, Side 36

Fréttablaðið - 01.04.2016, Side 36
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Eyrún Hulda Marinósdóttir frá Hjálmholti, Vestmannaeyjum, Smárabarði 2b, Hafnarfirði, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 19. mars síðastliðinn, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 8. apríl kl. 13.00. Guðjón Ingi Ólafsson Hildur Hauksdóttir Birna Ólafsdóttir Viðar Ólafsson Halldóra Svava Sigvarðard. barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Örn Kristján Gústafsson lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 26. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum veittan stuðning og hlýhug. Lilja Björk Arnardóttir Bjarni Tómas Jónsson Ragna Björg Arnardóttir Tyrfingur Guðmundsson og barnabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, Bjarna Aðalsteinssonar fyrrum skólastjóra að Reykjum í Hrútafirði, Bólstaðarhlíð 62. Guðrún Kristjánsdóttir Guðlaug Bjarnadóttir Alda Bjarnadóttir Einar Sigtryggsson Steinunn K. Bjarnadóttir Aðalsteinn Þór Sigurðsson Eyrún Jenný Bjarnadóttir Kristján Pétur Hilmarsson og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Baldur Guðmundsson Snælandi 3, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut 21. mars síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 5. apríl næstkomandi kl. 15. Jenný Anna Baldursdóttir Einar Vilberg Hjartarson Greta Baldursdóttir Halldór Grönvold Ingibjörg Jóna Baldursdóttir Hannes Andrésson Guðlaug Björk Baldursdóttir Ingunn Baldursdóttir Ómar Ström Hilma Ösp Baldursdóttir Alfreð Karl Alfreðsson Guðmundur Baldursson Steinunn Baldursdóttir Jón Alvar Sævarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og vinur, Ragnhildur Þórunn Óskarsdóttir Lækjarkinn 20, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi á páskadag 27. mars. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 12. apríl kl. 13.00. Aðalheiður Sigurðardóttir Garðar Svavarsson Óskar Þór Sigurðsson Guðrún Guðmundsdóttir Rúnar Sigurðsson Kolbrún Hrund Víðisdóttir Sigurður M. Sigurðsson Birna Barkardóttir Snorri Leifsson Anne Berit Pedersen barnabörn og barnabarnabörn Vilhjálmur Skúlason ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996 Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 Kristín Ingólfsdóttir Hilmar Erlendsson Sverrir Einarsson Okkar ástkæra Unnur Ebenharðsdóttir Hamragerði 4, Akureyri, lést fimmtudaginn 17. mars síðastliðinn. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hennar. Þökkum starfsfólkinu á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Aðstandendur. „Vonandi get ég eitthvað nýtt mér gögn sem ég hef verið að safna undanfarin ár til að skilgreina vatnsföll víða um land og skilja þau betur,“ segir Eydís sem er að hefja störf hjá Veiðimálastofnun í dag. Fréttablaðið/VilhElm Ég var ekkert með það í huga að vinna að doktorsverkefni þegar ég byrjaði að vakta efnasamsetningu í íslenskum ám og vötnum árið 1998. Það varð bara mitt aðalstarf hjá jarðfræði- deild Háskóla Íslands,“ segir Hornfirð- ingurinn Eydís Salóme Eiríksdóttir sem varði nýlega doktorsritgerð við HÍ um veðrun og efnaframburð óraskaðra og miðlaðra vatnsfalla á Íslandi. Einkum studdist hún við rannsóknir sínar á vatnsföllum á Fljótsdalshéraði sem urðu fyrir áhrifum vegna Kárahnjúka- virkjunar.   „Ég tók vatnssýni í ám á Fljótsdals- héraði  í fimm ár áður en allt raskið hófst og efnagreindi þau. Sigurður Reynir Gíslason er vísindamaður hjá Jarðvísindastofnun og hann fékk mig til að keyra það verkefni áfram. Hlé varð á sýnatökum meðan á framkvæmdum stóð en svo hófust þær aftur. Einkum beindum við athyglinni að Jökulsá á Dal sem var stífluð og Lagarfljóti sem fékk alla gusuna úr Hálslóni yfir sig. Við tókum alltaf vatn á sömu stöðum bæði fyrir og eftir framkvæmdir, til að geta borið saman, og bættum útfallinu úr virkjuninni við.“ Ekki kom á óvart að áhrifin  urðu mikil á báðar þessar stóru ár, að sögn Eydísar. Jökulsá hefur breyst í dragá sem dregur vatn sitt af heiðunum í kring og er bara jökulá örfáar vikur á ári þegar Hálslón fyllist og fer á yfirfall. „Rennslið í Jökulsá á Dal er nú 1/3 að ársmeðaltali af því sem það var áður, eða um 50 rúm- metrar á sekúndu á ársgrundvelli en var um 150. Jökulvatninu sem safnast í Hálslón er veitt í Lagarfljót og í því er gríðarmikið grugg þó mest af því setjist til í lóninu, eða 85%, samkvæmt mínum útreikningum. Svo hittast þessi tvö fallvötn aftur við árósana út við Héraðssand. Það efni sem kemst til sjávar er mjög fínt en í því eru áburðarefni sem eru góð fyrir hafið. En þangað berst enginn sandur lengur og tíminn verður að leiða í ljós hvaða áhrif það hefur á fjöruna.“ Andmælendur við doktorsvörnina voru dr. Jérôme Gaillardet, prófessor í jarðefnafræði við Institut de Physique du Globe de Paris, Frakklandi, og Suz- anne Anderson, dósent við University of Colorado í Boulder, Bandaríkjunum. Eydís dáist að því hve vel þau hefðu náð að kynna sér efnið. Nú er hún að skipta um vinnustað, kveðja Jarðefnastofnun HÍ og færa sig til Veiðimálastofnunar. „Ég verð í ein- hverjum ferskvatnspælingum. Vonandi get ég eitthvað nýtt mér gögn sem ég hef verið að safna undanfarin ár til að skil- greina vatnsföll víða um land og skilja þau betur.“ gun@frettabladid.is Rannsakaði ár á Austur- landi fyrir og eftir virkjun Eydís Salóme Eiríksdóttir er nýbakaður doktor í jarðfræði. Hún hefur unnið hjá jarð- fræðideild HÍ frá 1998 þar til í dag að hún færir sig yfir til Veiðimálastofnunar. Það efni sem kemst til sjávar er mjög fínt en í því eru áburðarefni sem eru góð fyrir hafið. En þangað berst enginn sandur lengur og tíminn verður að leiða í ljós hvaða áhrif það hefur á fjöruna 1 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r24 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B l a ð i ð tímamót 0 1 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :0 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 E C -3 E 4 8 1 8 E C -3 D 0 C 1 8 E C -3 B D 0 1 8 E C -3 A 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.