Fréttablaðið - 01.04.2016, Qupperneq 44
Það tíðkast víða um heim að halda
upp á fyrsta apríl með tilheyrandi
hrekkjum og gríni. Talið er að
uppruna þessa siðs megi rekja til
miðalda. Samkvæmt bókinni Saga
daganna eftir Árna Björnsson er
staðfest að hér á landi hafi gabbleik-
ir farið fram á 19. öld en siðurinn er
þó þekktur frá 17. öld þegar skrifuð
voru gabbbréf, eða svokölluð „apríl-
bréf“.
Í dag keppast fjölmiðlar við að
plata lesendur og áhorfendur sína
og hafa fjölmargir Íslendingar
látið gabbast í gegnum tíðina.
Fyrsta aprílgabbið sem vitað er
um í íslenskum fjölmiðli er frá
árinu 1957. Þá lét Ríkisútvarpið
sem fljótaskip sigldi á Ölfusá á leið
til Selfoss og sagði frá því í beinni
útsendingu. Fyrir ári tilkynntu
fjölmiðlar 365 lesendum sínum
að söngvarinn Friðrik Dór mundi
syngja Eurovision-lagið það árið í
stað Maríu Ólafs þar sem hann væri
sterkari söngvari. Undirskriftasöfn-
un til að mótmæla þessu var hent
af stað og yfir 200 manns skrifuðu
undir og hlupu því apríl.
Það er engin ein rétt leið til þess
að gabba fólk á 1. apríl en talað er
um að aprílgabb sé skilgreint sem
gabb þegar einhver fer erindisleysu
eða fer yfir þröskuld og þannig
hleypur fólk því apríl. Það virðist
þó ekki vera raunin erlendis en til
að mynda í Bretlandi tíðkast aðeins
að stríða og hrekkja vini sína og fólk
þarf ekki endilega að stíga yfir neinn
þröskuld. Aprílgabb getur oft verið
mjög frumlegt og skemmtilegt en
til eru þó nokkrir klassískir hrekkir
sem getur verið gott að grípa til ef
maður er hugmyndasnauður.
Hér fyrir neðan eru nokkrar hug-
myndir að einföldu og skemmti-
legu aprílgabbi.
Allt í plati!
Dagurinn í dag er eini dagur ársins sem þú
getur grillað vini þína grimmt án þess að fá
samviskubit. Nýttu daginn til hins ýtrasta.
Bíllinn dreginn
Farðu í vinnuna þína með andköfum og segðu félaga þínum
að Vaka sé að draga bílinn hans. Sniðugast væri að velja
einhvern sem er alltaf tæpur þegar kemur að því að leggja
í stæði, það er yfirleitt ein svoleiðis manneskja á hverjum
vinnustað.
Frí kaka, eða hvað?
Sendu póst á allan vinnustaðinn eða
á skólafélagana um að það sé verið að
gefa súkkulaðiköku eða annað hnoss-
gæti á kaffistofunni eða í mötuneytinu.
Þar sem það er föstudagur gæti líka
verið gaman að segja að það sé sælu-
stund (e. happy hour) klukkan fjögur.
Þrátt fyrir að vinirnir verði svekktir út í
þig yfir þessu þá er þetta vel þess virði.
Breyttu klukkunni
Eru einhverjir á heimilinu sem
þurfa að vakna á réttum tíma?
Flýttu klukkunni þeirra um nokkrar
klukkustundir svo að viðkomandi
vakni við vekjaraklukkuna sína fyrir
allar aldir. Þetta er meira en bara
aprílgabb, þú ert að hjálpa mann-
eskjunni að vakna snemma og hafa
nægan tíma um morguninn.
Límband yfir fjarstýringuna
Settu límband yfir skynjarann á
fjarstýringunni. Þegar viðkomandi
ætlar að reyna að skipta um stöð
virkar ekkert og það ætti að
gera alla pirraða í skapinu.
Líklega myndu sumir
reyna að finna ný batterí í
fjarstýringuna.
Feldu símann
Feldu síma vinar þíns og
hringdu í hann. Reyndu að
hafa staðinn sem erfiðast-
an svo að viðkomandi
leiti út um allt hús að
símanum. Mjög pirrandi
hrekkur en samt sem
áður einfalt og fyndið.
677 1337
Vandræðalegt í apótekinu
Sendu einhvern fyrir þig
í apótekið að kaupa lyf.
Hafðu það samt eitthvert
lyf sem er ekki til eða
eitthvað mjög vandræða-
legt sem er ekki selt án
lyfseðils í apó-
tekinu, eins og til
dæmis HPV-lyf.
HPV
Djúskúr Nú er ein kollega minna
orðin svoleiðis öskrandi æst og
peppuð yfir komandi sumri. Í
hádegismat um daginn rakti hún
í löngu máli einhvern vikulangan
djúskúr sem hún sagði hafa breytt
lífi sínu fyrir nokkrum árum. Aðrir
kollegar og samferðamenn eru sem
stendur í ströngu nammibindindi
eftir páskahátíðina miklu enda einn
af fylgifiskum hennar sá að svitna
súkkulaði eftir ótæpilega neyslu
sælgætisins sem mótað er í kúlulaga
dýraafurð. Fullt hús matar ef þið
spyrjið mig.
Sjálf er ég orðin frekar peppuð yfir
sumrinu en þó laus við það að æsa
mig upp í einhverjar takmarkanir í
mataræði og ætla alveg að láta þær
vera. Ég held að mitt aðalmarkmið
í sumar verði bara að hafa gaman
sama í hvaða þyngd ég er. Ég er samt
að reyna að safna mér fyrir íbúð
þannig að ég hugsa að ég geri ekki
neitt sem kostar pening. Ég sleppi
sjálfsagt ferðalögum alfarið, innan-
lands sem utan. Þau eru alltof dýr.
Svo ætla ég að hola niður einhverjum
fræjum í ker úti á svölum og borða
bara uppskeruna. Þá slæ ég líka tvær
flugur í einu höggi. Spara og gerist
vegan. Það er víst ekki hægt að rækta
kjöt af fræi. Ekki enn að minnsta
kosti.
Ég fór nefnilega í matvöruverslun
um daginn og keypti í matinn.
Ég var nú ekkert að
tríta mig með
kavíar og foi gras en það var samt svo
dýrt að ég kastaði næstum því upp
þegar ég straujaði kortið.
Miðað við þær takmarkanir sem ég
hef sett mér undanfarið í lifnaðar-
háttum og sparnaði sé ég fram á
að eignast íbúð í ársbyrjun 2030. Ég
er auðvitað þrælspennt og búin að
búa til sér borð á Pinterest þar sem
ég vista skilmerkilega óraunhæfar
hugmyndir um ytra og innra
byrði íbúðarinnar en miðað
við kaupmátt minn þá sé ég
fram á að enda í niðurgraf-
inni íbúð í fjölbýlishúsi í
Breiðholtinu frekar heldur
en þakíbúð með óendan-
legri lofthæð og svölum.
lll
Facebook-leikir Annars hef
ég dáldið verið að uppgötva
sjálfa mig upp á síðkastið. Ég
er auðvitað sífellt að kynnast
sjálfri mér betur enda í nánum
samvistum við mig sjálfa
velflesta tíma sólarhringsins.
Síðast liðnar vikur hef ég komið
mér á óvart þar sem ég hef tvisvar
sinnum á jafn mörgum vikum tekið
þátt í leikjum á samskiptamiðlinum
Facebook. Þið kannist sjálfsagt við
þetta. Kvitta, deila og tagga einhvern
sem þú vilt njóta vinningsins með.
Mér finnst nefnilega full langt
síðan ég hef unnið nokkuð af viti.
Síðast þegar ég vann stóra vinn-
inginn var þegar endurvinnslu-
stöðin Sorpa fagnaði 10 ára
afmæli. Þá vann ég Pla-
ystation 2 tölvu og fullt
af nammi sérmerktu
fyrirtækinu. Svo birtist
þessi ægilega fína mynd
af mér í ársskýrslu fyrir-
tækisins og ef þið haldið að
ég sé að ljúga þá getið þið
bara slegið inn leitarorðin
Gyða Lóa og Sorpa inn á
Google. Ég var auðvitað ríg-
montin með þetta allt saman
og er handviss um að nú sé
minn tími kominn aftur.
Kastað upp í matvöruverslun
@gydaloa
gydaloa@frettabladid.is
APRÍL
1
1 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r32 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð
Lífið
0
1
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
E
C
-5
B
E
8
1
8
E
C
-5
A
A
C
1
8
E
C
-5
9
7
0
1
8
E
C
-5
8
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K