Fréttablaðið - 01.04.2016, Síða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Breski tónlistarmaðurinn James
Morrison heldur tónleika í Eld-
borgarsalnum í Hörpu sunnudaginn
17. júlí næstkomandi.
„Ég er alltaf að leita að skemmti-
legum og góðum listamönnum og
rakst á hann. Svo fór ég að endur-
nýja kynni mín við hann og ég verð
að segja að hann er frábær tónlistar-
maður. Hann er með alveg frábæra
rödd, þessa rámu og sálarskotnu
rödd og svo er hann líka að fá frá-
bæra dóma fyrir bæði nýju plötuna
sína og tónleikana sína. Ég er mjög
spenntur fyrir þessu og ég get lofað
flottum tónleikum,“ segir Guðbjart-
ur Finnbjörnsson, skipuleggjandi
tónleikanna.
James Morrison hefur verið einn
vinsælasti tónlistarmaður Bretlands
undanfarin ár og hefur meðal ann-
ars unnið fern Brit-verðlaun. Hann
hefur átt ótal lög í efstu sætum vin-
sældalista um heim allan síðustu ár.
„Hann kemur með hljómsveit
með sér, þetta eru átján manns sem
eru að koma til landsins, þannig að
þetta er alvöru dæmi,“ segir Guð-
bjartur spurður út í umfangið.
James Morrison hefur gefið út
fjórar plötur sem allar hafa notið
gífurlegra vinsælda og hvarvetna
fengið mikið lof gagnrýnenda en
James gaf út sína fyrstu plötu árið
2006, þá aðeins 21 árs. „Þetta er
frábær laga- og textahöfundur, tón-
listin hans er svo innileg og ég held
að hann sé að leggja allt í þetta.
Ég held að það sé ekki mikið feik í
þessu. Hann hefur lent í áföllum í
gegnum tíðina og missti til dæmis
pabba sinn þannig að ég held að
tónlistin komi alveg beint frá hjart-
anu. Hann virðist vera svo heill í
þessu,“ útskýrir Guðbjartur.
Það má því vænta þess að flott
stemning verði á tónleikunum í
Eldborg í sumar þegar þessi einstaki
listamaður stígur á svið, ásamt frá-
bærri hljómsveit sinni og tekur öll
sín bestu lög. „Það liggur ekkert fyrir
að svo stöddu,“ segir Guðbjartur,
spurður út í hvort það verði upp-
hitunaratriði á tónleikunum.
Miðasala á tónleikana hefst mið-
vikudaginn 6. apríl á harpa.is, tix.is.
gunnarleo@frettabladid.is
James Morrison
heldur tónleika
á Íslandi
Einn vinsælasti tónlistarmaður Bretlands undanfarin ár, James
Morrison, kemur fram á tónleikum í Eldborgarsal Hörpu í júlí.
You Give Me Something
I Won’t Let You Go
Please Don’t Stop the Rain
Wonderful World
Broken Strings
(með Nelly Furtado)
The Pieces Don’t Fit Anymore
Undiscovered
Demons
Þekktustu lög
JaMes Morrison:
Undiscovered - 2006
Songs for You,
Truths for Me - 2008
The Awakening - 2011
Higher Than Here - 2015
Plötur JaMes
Morrison
James Morrison kemur fram á tónleikum í Hörpu ásamt hljómsveit í sumar. MYND/GETTY
1 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r34 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
1
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
E
C
-4
8
2
8
1
8
E
C
-4
6
E
C
1
8
E
C
-4
5
B
0
1
8
E
C
-4
4
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K