Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 15.03.2016, Qupperneq 1
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 3. tbl. 24. árg. nr. 660 15. mars 2016
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Oddi
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
eða með tölvupósti til:
askrift@vegagerdin.is
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Listi yfir fyrirhuguð útboð er
birtur, greint er frá niðurstöðum útboða og einnig samningum.
Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem verður til hjá
stofn uninni og talið er að eigi erindi til verktaka og annarra
les enda . Blaðið kemur út einu sinni í mánuði að jafnaði.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur, fjöl miðlar og
áhugafólk. Áskrift er endurgjaldslaus.
3. tbl. /16
Vegagerðin auglýsir útboð sín á vefsíðunum Úboðsvefur.is
og vegagerdin.is en ekki í þessu blaði. Verktakar eru
minntir á að fylgjast vel með auglýsingum.
Reynir Örn Viggósson frá Tæknivélum og Brynjar Sigurjónsson verkstjóri athuga kvörðun saltdreifara á athafnasvæði Vegagerðarinnar
í Hafnarfirði. Rétt kvörðun er mikilvæg til þess að tryggja að dreifarinn skili tilætluðu saltmagni á flatareiningu vegar, í samræmi við
leiðbeiningar vaktstöðvar um saltþörf á hverjum tíma, með hliðsjón af aðstæðum og veðurspá. Ljósmynd: Jóhann Skúlason.
Frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar
Hér á eftir er gerð örstutt grein fyrir efni sjö rannsóknar-
skýrslna. Finna má skýrslurnar í heild á www.vegagerdin.is
undir „Upplýsingar og útgáfa / Rannsóknaskýrslur“
Skúfstyrkur sendinna jarðefna. Samanburður
CPT mælinga og tilraunastofuprófa
Ástgeir Rúnar Sigmarsson (meistaraprófsritgerð við HÍ), júní 2015
Sumir efniseiginleikar lausra jarðefna eru gjarnan mældir á
sýnum sem tekin eru og send á rannsóknastofu. Talað er um
að slík sýni séu „hreyfð“ þegar það þarf að endurbyggja þau
á rannsóknastofunni til að reyna að endurskapa það ástand
sem ríkir á upprunastaðnum í mörkinni. Slíkt er vandasamt
og ekki sjálfgefið að það takist. Mikill kostur er ef hægt er
að ákveða slíka efniseiginleika á staðnum, þar sem það er
þá gert við raunaðstæður sem þar ríkja.
CPT próf (Cone Penetration Test) er ein þeirra aðferða
sem hægt er að nota til að meta efniseiginleika við raun-
aðstæður. Í rannsóknaverkefninu voru niðurstöður mæl-
inga efniseiginleika á rannsóknastofu bornar saman við
nið ur stöður CPT mælinga á þremur stöðum, þar sem
jarð efni voru mismunandi. Meðal annars var metið hvort
reynslujöfnur, sem sýna samband CPT mælinga og við-
komandi efniseiginleika hentuðu fyrir íslensk jarðefni.
Í skýrslunni er farið yfir nokkra efniseiginleika (m.a.
skúfstyrk og viðnámshorn) og greint frá hvernig hægt
er að mæla þá á rannsóknastofu (m.a. með skúfprófi og