Kópavogsblaðið - 01.06.2007, Síða 18

Kópavogsblaðið - 01.06.2007, Síða 18
Smáraskóla var sagt upp í 13. sinn 5. júní sl. Í skólaslitaræðu Valgerðar Snæland Jónsdóttur, skólastjóra, þegar 10. bekking- ar útskrifuðust, kom fram að sá árgangur var að ná einna best- um árangri í allri sögu skólans. Fjöldi viðurkenninga var veitt- ur fyrir frammistöðu í einstök- um námsgreinum, en einnig var veitt viðurkenning fyrir einstaka ástundun sem Sigurþór Sigur- björnsson hlaut og einnig hlaut Hrannar Karl Guðmundsson viðurkenningu fyrir einstaka jákvæðni. Það er alveg frábært að verðlauna jákvæðni, ekki veit- ir af í nútíma þjóðfélagi. Mikil mannaskipti verða í Smáraskóla í sumar, skólastjórinn Valgerður Snæland Jónsdóttir fer í ársleyfi, aðstoðarskólastjórinn Baldur Pálsson hættir og hverfur til annara starfa og eins hættir húsvörðurinn, Örn Sævar Eyjólfs- son sem hefur fylgt þessum skóla frá upphafi. Talsvert rót verður einnig á kennaraliðinu, en um þriðjungur kennaraliðsins hverf- ur til annara starfa. Þess sem tek- ur við skólastjórastöðunni næsta skólaár bíður því ærið verkefni strax í sumar. Nýr skólasöngur Nýr skólasöngur var kynntur á útskriftinni. Fyrsta erindi hans er svohljóðandi: Ef gengi viljum góðu ná gagnast oss að næra. Virðingu’ einnig víðsýni og viljan til að læra. 10 Kópavogsblaðið JÚNÍ 2007 Arnar Pétursson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsár- angur og virkni. Hann er hér með Baldri Pálssyni aðstoðarskólastjóra, sem afhenti honum viðurkenninguna. Fyrir utan mjög góðan árang- ur í öllum greinum, bæði í skólaprófum og á samræmdum prófum, hefur Arnar einnig lokið fjórum stærðfræðiáföngum í MK með ein- kunnirnar 10,00, auk enskuáfanga með frábærum árangri, hlaupið til sigurs í Smárahlaupinu, og nýlega varð hann Norðurlandameistari í körfubolta með U-16 landsliði Íslands. Ruslaskrímslið heitir heitir umhverfisverkefni sem nemendur Hörðuvallaskóla í Kópavogi hafa unnið að í vetur og kynntu í vor á sal skólans, sem enn er í bygg- ingu, en stefnt er að taka í notkun á hausti komanda. Þetta var fyrsta samkoman á salnum. Auk afhjúp- unarinnar voru flutt frumsamin ljóð, sagðar sögur og sungið í við- eigandi búningum með frumstæð- um hljóðfærum sem börnin höfðu sjálf búið til. “Hörðuvallanaglarn- ir" skemmtu viðstöddum meðan hljóðfæri þeirra fengu rafmagn, en þeir félagar eru starfsmenn Baldurs Jónssonar verktaka sem er að smíða Hörðuvallaskóla. Þá fór fram skemmtileg kynn- ing á gróðri og gróðursetningu í pottum, en börnunum hefur verið kennt um gróðurinn og hvað þarf til þess að hann vaxi og dafni. Gerðar voru tilraunir á baunum og búnir til graskarlar úr gömlum sokkabuxum, tréspæni, grasfræi o.fl. Karlarnir voru vökvaðir mis- jafnlega mikið og og von bráðar fór gras að spretta úr hausum karl- anna, þó eðlilega mismikið, sumir eðlilega, aðrir voru að skrælna en sumir að drukkna. Skólastjóri Hörðuvallaskóla er Helgi Halldórs- son. Ruslaskrímsli nemenda Hörðuvallaskóla er frá- bært umhverfisverkefni Ruslaskrímsli nemenda Hörðuvallaskóla nærist á illri umgengni mann- anna. Ef þeir bæta umgengni sína veslast skrímslið upp og hverfur. Gerð skrímslisins er liður í umhverfisfræðslu nemenda skólans, en skólinn tók til starfa á liðnu hausti og eru í honum nemendur í 1.- 4. bekk. Skólahúsið er enn í byggingu en stefnt er að því að á næstu árum í skólanum verði kennt í 1.-10. bekk grunnskóla. Smáraskóli veitti margar “öðruvísi” viðurkenningar við brautskráningu 10. bekkinga Þau láta af störfum í Smáraskóla, Valgerður Snæland Jónsdóttir, skólastjóri, Örn Sævar Eyjólfsson, húsvörður og Baldur Pálsson, aðstoðarskólastjóri. Samstarfsmenn þeirra afhentu þeim gjafir að skilnaði.

x

Kópavogsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.