Kópavogsblaðið - 01.06.2007, Side 23
15KópavogsblaðiðJÚNÍ 2007
Körfuknattleiksdeild Breiða-
bliks hefur ráðið Einar Árna
Jóhannsson sem þjálfara liðs
meistaraflokks karla hjá Breiða-
bliki. Einar Árni verður jafn-
framt yfirþjálfari unglingaflokka
hjá félaginu.
Einar Árni hefur getið sér gott
orð sem þjálfari í körfuknattleik.
Hann hefur þjálfað hjá Njarðvík
undanfarin ár og leiddi Njarðvík-
inga til úrslita gegn KR í Iceland
Express deild karla. Hann þjálfaði
einnig yngri flokka félagsins. Hann
hefur einnig starfað sem landsliðs-
þjálfari yngri landsliða hjá KKÍ.
Einar Árni var valinn þjálfari árs-
ins í Iceland Express deild karla
á keppnistímabilinu sem nú er
að ljúka. Hann býr því yfir mikilli
reynslu í þjálfun sem á eftir að
skila Breiðabliki áfram veginn.
Körfuknattleiksdeild Breiða-
bliks hefur verið vaxandi deild á
undanförnum árum og hefur iðk-
endum fjölgað jaft og þétt. Árang-
ur í yngri flokkum hefur verið
ágætur og eru flokkar félagsins
jafnan meðal 5 bestu liða landsins
í sínum aldursflokki. Það er því
ljóst að efniviðurinn er til stað-
ar og verður það meðal annars
hlutverk Einars Árna að vinna að
því að enn betri árangur náist,
bæði hvað varðar fjölda iðkenda
og bættan árangur.
Stjórn körfuknattleiksdeildar
Breiðabliks hefur lýst yfir mikilli
ánægju með að hafa fengð jafn
hæfan og kröftugan þjálfara til
liðs við sig og væntir mikils af
samstarfinu við Einar Árna. Ljóst
má vera af þessari ráðningu að
stefnan er tekin á sæti í Iceland
Express deild karla næsta ár.
Fyrir skömmu var dregið í
töfluröð í Iceland Express deild-
unum og 1. deild karla. Töfluröð-
in ákvarðar hvaða lið mætast í
hverri umferð. Í fyrstu deild karla
verða nokkrar áhugaverðar viður-
eignir strax í fyrstu umferð.
Töfluröðin í 1. deild karla er
þessi:
1. Höttur
2. Reynir S.
3. Haukar
4. Þór Þ.
5. Ármann/Þróttur
6. KFÍ
7. FSu
8. Valur
9. Breiðablik
10. Þróttur V.
Í fyrstu umferð deildarinnar
munu því verða eftirfarandi leikir:
* Höttur - Þróttur V.
* Haukar - Valur
* Ármann/Þróttur - KFÍ
* Reynir S. - Breiðablik
* Þór Þorl. - FSu
Blikar ráða einn hæfasta
körfuknattleiksþjálfara landsins
Knattspyrnudeild Breiðabliks
hefur samið við Casper Jacobsen
varmarkvörð AaB í Danmörku
að spila með Breiðabliksliðinu í
fjarveru Hjörvars Hafliðasonar
sem þarf að gangast undir aðgerð
á hné.
Casper er er 27 ára og hefur áður
spilað með Viborg, og AGF Hobro.
Casper lék einn leik með U-21 árs
landsliði Dana á sínum tíma.
Samningur Caspers við deildina
gildir til 30. ágúst nk.
Hjörvar Hafliðason markvörð-
ur liðsins hefur átt við meiðsli að
stríða í liðþófa að undanförnu og
þarf nú að fara undir hnífinn.
Varamarkvörður liðsins Vignir
Jóhannsson, er á 17 ári, afar efni-
legur markvörður og hefur m.a.
spilað með U17 ára liði Íslands.
Þjálfarar Breiðabliks mátu stöðuna
hinsvegar svo að ekki væri rétt
að svo stöddu að láta hann axla
ábyrgðina og því var ákveðið að
leita hófanna utan félagsins.
Næsti leikur Breiðabliks er
miðvikudaginn 20. júní gegn FH í
Kaplakrika.
Dani í mark Breiðabliks
Lyf og Heilsa og knattspyrnu-
deild HK hafa gert með sér nýj-
an samstarfssamning til þriggja
ára. Með samningnum gerist
Lyf og Heilsa einn af aðalstyrkt-
araðilum meistaraflokks karla í
knattspyrnu hjá HK. Samningur-
inn gildir til 1. mars árið 2010.
Halldór Valdimarsson, formaður
knattspyrnudeildar HK, segir að
þessi samningur sé ómetanleg-
ur styrkur fyrir meistaraflokk
karla í knattspyrnu, sem í vor
hóf sitt fyrsta keppnistímabil í
úrvalsdeild karla, Landsbanka-
deildinni.
Lyf og Heilsa styrkir
knattspyrnudeild HK
Kári Steinn Karlsson Breiða-
bliki tók þátt í Norðurlanda-
meistaramótinu í 10.000 metra
hlaupi í Kerava í Finnlandi fyr-
ir skömmu. Kári Steinn hljóp
10.000 metrana á 30:30,06 mín-
útum og varð sjötti í hlaupinu.
Árangur Kára Steins er annar
besti árangur Íslendings frá upp-
hafi í 10.000 m. hlaupi og jafn-
framt Íslandsmet í flokki 21-22
ára ungkarla. Kári Steinn átti fyr-
ir 31:00,31 mín frá sömu keppni
á Kópavogsvelli í fyrra.
Tólf keppendur tóku þátt í land-
skeppninni, þrír Finnar, þrír Dan-
ir, Þrír Norðmenn og tveir Svíar,
auk Kára Steins. Jussi Utriainen
Finnlandi sigraði á 29:54,16 mín, í
öðru sæti varð Simo Wannas Finn-
landi á 29:56,55 mín, þriðji Henrik
Ahnström Svíþjóð á 30:19,40 mín,
fjórði Mårten Boström Svíþjóð á
30:20,31 mín og fimmti Jonas And-
ersson Svíþjóð á 30:28,52 mín.
Kári Steinn sigraði því alla Dan-
ina og Norðmennina í hlaupinu .
Aðstæður í Kerava voru ekki hent-
ugar fyrir langhlaup, því um 23-25
stiga hiti og sól var á vellinum og
var Kári Steinn sá eini sem bætti
sinn persónulega árangur í keppn-
inni.
Þeir Íslendingar sem hlaupið
hafa undir 31 mín. til þessa eru
Sigfús Jónsson ÍR, Sveinn Mar-
geirsson, UMSS, og Sigurður P.
Sigmundsson, FH.
Kári Steinn í 6. sæti
á NM í 10.000 metra hlaupi
Kári Steinn í keppni í nýju frjálsí-
þróttahöllinni í Laugardal
Við undirskrift samningsins, f.v.: Sigurður Ingi Hauksson ritari
körfuknattleikdeildar Breiðabliks, Einar Árni Jóhannsson þjálfari, Pét-
ur Hrafn Sigurðsson formaður og Stefán Jóhannsson stjórnarmaður.
Glæsilegu fimleikaári
lokið hjá Gerplu
Íþróttafélagið Gerpla hélt
fjórar glæsilegar vorsýningar í
lok maímánaðar fyrir troðfullu
húsi á hverri sýningu. Er þetta
í fyrsta skiptið sem skipta þurfti
Vorsýningu félagsins upp í fjóra
hluta til þess að allir iðkendur
félagsins gætu komið fram en
þeir voru orðnir 1.375 í reglu-
bundnum æfingum undir lok
vetrarstarfsins. Hver sýning var
rétt rúmlega klukkustund þar
sem blandað var saman yngri
og eldri iðkendum auk þess sem
atriði hjá hverjum hóp var mis-
munandi. Þegar upp var staðið
fengu áhorfendur fjölbreytta
skemmtun á hverri sýningu. Að
venju voru veittar viðurkenning-
ar á sýningunum. Þeir sem hlutu
viðurkenningar að þessu sinni
voru:
I. Fríða Rún Einarsdóttir hlaut
Afreksbikar Gerplu en hún hef-
ur staðið sig mjög vel á liðnu ári
og náði meðal annars þeim eftir-
tektarverða árangri að sigra sex
gullverðlaun á Norðurlandamóti
unglinga sem fram fór Danmörku
í apríl sl.
II. Stúlkurnar sem voru fulltrúar
Gerplu í unglingalandsliði stúlkna
í áhaldafimleikum sem sigruðu
í liðakeppni á Norðurlandamóti
unglinga sem fram fór í apríl sl.
fengu bikar og gullverðluan fyr-
ir þennan frábæra árnagur. Það
voru þær Thelma Rut Hermanns-
dóttir, Dóra Sigurbjörg Guðmunds-
dóttir, Fríða Rún Einarsdóttir og
Sigrún Dís Tryggvadóttir sem
voru fulltrúar Gerplu í landsliðinu
sem skipað var 5 keppendum.
III. Ása Inga Þorsteinsdótt-
ir, Björn Björnsson og Michel
Christensen fengu Hvatningar-
bikar Gerplu fyrir athygliverðan
árangur í starfi með P1 en stúlk-
urnar í hópnum urðu Norður-
landameistarar í hópfimeikum í
apríl sl. en var það í fyrsta skipti
sem hópur frá Íslandi komst í
verðlaunasæti í flokki fullorðina á
Norðurlandamóti. Auk þess hlaut
hópurinn silfurverlaun á Evrópu-
mótinu sem fram á miðjum vetri.
Öllum stúlkunum í P1 var einnig
veitt gullverðlaun fyrir þennan frá-
bæra árangur.
IV. Tanja Kristín Leifsdóttir
hlaut Garp að þessu sinni en hún
hefur með framgöngu sinni haft
mjög jákvæð áhrif innan félagsins
með störfum sínum sem þjálfari.
V. Jochum M. Ulriksson hlaut
Félagsmálaskjöld Gerplu en hann
hefur verið í stjórn félagsins frá
2003. Hefur hann verið sérlega
öflugur liðsmaður í stórum hópi
sjálfboðaliða sem starfar fyrir
félagið og klárað hvert verkefnið
með miklum sóma.
VI. Á sýningunni var veitt sér-
stök viðurkenning fyrir góð störf
í þágu áhaldafimleika kvenna til
margra ára. Á undanförnum árum
hefur verið unnið markmisst að
því að byggja upp öflugan hóp
stúlkna í áhaldafimleikum og hef-
ur tekist mjög vel til í þeim efnum.
Af þeirri ástæðu var fjórum þjálf-
urum veitt sérstök viðurkenning
fyrir góð störf. Viðurkenninguna
hlutu þau: Hlín Bjarnadóttir, Svetl-
ana Makaritseva, Irina Antonova
og Vladimir Antonov.
VII. Þá var öllum þátttakendum,
þjálfurum og dómurum félagsins
á Norðurlandamóti unglinga og
Evrópumótinu veitt viðurkenning
fyrir þeirra framlag á þessum mót-
um.
Skrifað undir samninginn. Undir hann rituðu Steingrímur
Wernersson f.h. Lyf og Heilsu og Halldór Valdimarsson, formaður
knattspyrnudeildar HK.
Verðlaunahafar Gerplu á NM og EM.
Í Iceland Express deild
kvenna í körfubolta verður
leikið með nýju fyrirkomulagi
á næsta keppnistímabili. Á
ársþingi KKÍ var samþykkt að
fjölga liðum í efstu deild kven-
na úr 6 í 8. Það þýðir að tvö
efstu liðin í 2. deild unnu sig
upp í Iceland Express deildina
og að ekkert lið féll úr Iceland
Express deildinni.
Breiðablik sleppur því við fall-
ið og Fjölnir og KR munu leika í
Iceland Express deild kvenna á
næsta tímabili.
Leikin verður tvöföld umferð
til þess að byrja með en eftir það
mun deildinni verða skipt í tvo
riðla þar sem að fjögur efstu lið-
in leika innbyrðis og fjögur neðs-
tu liðin leika sín á milli. Síðan
verður leikin 6 liða úrslitakeppni
næsta vor. Töfluröðin í Iceland
Express deild kvenna ákvarð-
ar því leikjaniðurröðun fyrri
umferða deildarinnar.
Töfluröðin í Iceland Express
deild kvenna:
1. ÍS
2. Haukar
3. Fjölnir
4. Breiðablik
5. Hamar
6. Keflavík
7. KR
8. UMFG
Breiðablik leikur áfram í úrvalsdeild kvenna í körfu