Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2015, Blaðsíða 20
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
20 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson
Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir • Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Vikublað 27.–29. janúar 2015
Mig langaði ekki
til að lifa einlífi
Það vildi enginn
snerta mig
Þetta er bara aumkunar-
verðir hræðsluáróður
Einu sinni var
Friðrik Ólafsson, stórmeistari í skák, vildi ekki einangrast sem skákmaður. – DV Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er ómyrkur í máli í garð Samtaka atvinnulífsins. – DV
E
inu sinni var Hanna Birna
Kristjánsdóttir stjórnmála-
maður sem naut trausts langt
út fyrir eigin flokksraðir. Hún
var talsmaður nýrra aðferða
í pólitík, boðaði samvinnu þvert
á flokksbönd, sýndist hafa ama af
pólitískum klækjabrögðum og vera
talsmaður heiðarleika. Sem stjórn-
málamaður virtist hún vera ansi góð
fyrirmynd. Hún var borgarstjóri, inn-
anríkisráðherra, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins og sinnti málum sín-
um svo vel að ýmsir vildu sjá hana
sem formann flokksins. Svo kom
lekamálið og um leið reyndi á allt
það sem Hanna Birna hafði boð-
að og staðið fyrir. En í stað þess að
sýna heiðarleika og hreinskilni greip
Hanna Birna til pólitískra klækja-
bragða, gerði sjálfa sig að píslar-
votti, sá óvini í hverju horni og sak-
aði þá um ýmislegt misjafnt. Hún
sagði margt, meðal annars að leka-
málið væri ljótur pólitískur leikur og
fullyrti að hún vissi ekkert um hluti
sem síðar kom í ljós að henni hefði
verið fullkunnugt um. Hún skipti
sér af lögreglurannsókn af málinu
og sagði við lögreglustjóra að rann-
saka þyrfti rannsókn lögreglu og
ríkis saksóknara. Svör hennar til um-
boðsmanns Alþingis voru villandi og
til þess fallin að gera lítið úr honum
og rannsókn hans. Svo að segja öll
viðbrögð Hönnu Birnu í lekamálinu
einkenndust af valdhroka og skorti á
auðmýkt.
Lekamálinu virðist loks lokið.
Annar aðstoðarmaður Hönnu Birnu
laug lengi vel af mikilli staðfestu,
en gafst loks upp. Hanna Birna
þrjóskaðist enn lengur við en eftir
að umboðsmaður skilaði áliti sínu er
staða hennar afar veik og ljóst að trú-
verðugleiki hennar er nánast enginn.
Pólitískt fall hennar er hátt en engum
er um að kenna nema henni sjálfri.
Hún brást kjósendum og flokki sín-
um og getur ekki lengur setið sem
varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Hvort hún situr áfram sem þingmað-
ur er undir henni sjálfri komið, en
ljóst er að erfitt verður fyrir hana að
endurheimta trúverðugleika sinn.
Meðan hún sýnir ekki að hún hafi
eitthvað lært af málinu verður það
nánast ómögulegt fyrir hana.
Lekamálið reyndi á marga og
ýmsir stóðust prófið, þar á meðal
Stefán Eiríksson, fyrrverandi lög-
reglustjóri, ríkissaksóknari og ekki
síst umboðsmaður Alþingis, Tryggvi
Gunnarsson, sem varð fyrir margs
konar aðkasti vegna rannsóknar
sinnar á málinu. Fjölmiðlar sinntu
sínu hlutverki en DV hafði forystu í
málinu sem hefði sennilega aldrei
ratað í fjölmiðla nema vegna rann-
sóknarvinnu blaðamanna blaðsins.
Margir geta lært af lekamálinu og
þá ekki síst stjórnmálamenn. Þeir
eru kjörnir fulltrúar þjóðarinnar og
eiga að koma fram af heiðarleika og
ekki gera tilraunir til að ljúga sig út
úr erfiðum málum. Lygin hefur til-
hneigingu til að hlaða utan á sig og er
ekki góður ferðafélagi. n
Hvað gera Ragnheiður
og Vilhjálmur?
Leiðtogar ríkisstjórnarinnar hafa
boðað að lögð verði á ný fram til-
laga um slit á aðildarviðræðum
við Evrópusambandið. Fáum
dylst að sú vegferð gæti reynst
Sjálfstæðisflokknum erfiðari en
samstarfsflokki hans í ríkisstjórn
enda þótt ljóst sé að yfirgnæfandi
meirihluti flokksmanna sé því
andvígur að Íslandi gangi inn í
ESB.
Ragnheiður Ríkharðsdóttur,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins, og Vilhjálmur Bjarna-
son þingmaður voru því mjög
mótfallin þegar utanríkisráðherra
kom fram með tillögur um slit á
viðræðum við ESB fyrir um ári.
Telja ýmsir ekki útilokað – nái til-
lagan fram að ganga í þetta sinn
– að það geti valdið því að Ragn-
heiður og Vilhjálmur segi sig í
kjölfarið úr flokknum.
Spenna vegna Glamour
Spenna er nú á tímaritamark-
aðnum hér á landi því senn mun
fyrsta tölublað ís-
lensku útgáfunn-
ar af Glamour líta
dagsins ljós. Ís-
lenska útgáfan er
17. erlenda útgáfa
Glamour og verð-
ur gefin út í sam-
starfi við fjölmiðlafyrirtækið 365.
Glamour er eitt vinsælasta
lífsstílstímarit heims og má búast
við að það verði erfiður keppi-
nautur fyrir sambærileg tímarit
sem rekin eru hér á landi, enda
hefur það aðgang að mynda- og
efnisbönkum Condé Nast-útgáf-
unnar, einnar stærstu fjölmiðla-
samsteypu heims.
Skrifar Hanna
Birna bók?
Öll spjót standa enn á Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi
innanríkisráðherra. Hún hefur
lýst því yfir að hún ætli að vera í
leyfi frá þingstörfum fram í mars
eða jafnvel lengur.
Úr hennar herbúðum heyr-
ist að hún sé samt staðráðin í að
koma til baka fyrir þinglok. Einn
af hennar dyggustu stuðnings-
mönnum upplýsti Sandkorns-
ritara um að Hanna Birna sé af
mörgum hvött til að skrifa bók
um lekamálið og atburði síðasta
árs. Sami stuðningsmaður fullyrti
að í þeirri bók ætli hún að segja
söguna alla og upplýsa um þætti
sem ekki hafa áður litið dagsins
ljós. Hvað þetta þýðir nákvæm-
lega er ekki gott að segja en ljóst
er að bók frá henni um þetta mál
myndi vekja athygli.
Við borgum ekki
F
rumvarp atvinnuvegaráð-
herra um náttúrupassa er
líklega ein merkilegasta til-
raun til pólitísks harakiris
síðan Margrét Thatcher kom
fram með sínar tillögur um nefskatt.
Að minnsta kosti hefur stuðning-
ur við frumvarpið minnkað mikið á
skömmum tíma samkvæmt könnun
MMR. Rúmlega 47% aðspurðra
studdu frumvarpið í maí 2014 en
einungis 31% reyndust þeirrar
skoðunar sjö mánuðum síðar. Og
félagsmenn Samtaka ferðaþjón-
ustunnar telja náttúrupassa verstu
tekjuöflunarleiðina sem völ er á.
Það er í raun merkilegt að ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins skuli
leggja í þessa vegferð, enda felur
frumvarpið í sér skattahækkun, vöxt
hins opinbera og atlögu að frelsi
einstaklingsins. Passinn er hluti af
þróun sem almenningur þarf að
mótmæla, þ.e. tilraun stjórnmála-
manna til að sækja fé í vasa almenn-
ings með því að leggja sérstök gjöld
á hitt og þetta sem áður var greitt
með almennum sköttum. Dæmi
um þetta er útvarpsgjaldið og auk-
in kostnaðarþátttaka almennings í
heilbrigðiskerfinu og skólakerfinu.
Gjaldið sjálft er svo sem ekki
hátt til að byrja með, eða 500 kr. á
ári fyrir 18 ára og eldri. Aftur á móti
er gert ráð fyrir nokkuð hörðum
viðurlögum eða 15.000 króna sekt.
Þannig gæti það reynst dýrkeypt
fyrir fjögurra manna fjölskyldu að
gleyma að kaupa náttúrupassa áður
en hún fer með tvo erlenda vini í
bíltúr um sveitir Suðurlands. Reyn-
ist þessi fjölskylda svo óheppin að
vera við Gullfoss á sama tíma og
eftir litsmenn ríkisins þá situr hópur-
inn uppi með 90.000 króna sekt.
Annar stór galli á frumvarpi at-
vinnuvegaráðherra er að það heim-
ilar landeigendum að rukka al-
menning um gjald fyrir að virða
fyrir sér náttúruna. Þannig að ef áð-
urnefnd fjölskylda ákveður að fara
gullna hringinn með gestina þá
þarf hún að standa eftirlitsmönn-
um ríkisins skil á náttúrpassa við
Þingvelli, greiða fólki í kraftgöllum
aðgangseyri að Geysi, standa aft-
ur skil á náttúrupassa við Gullfoss
og greiða svo gjald í skúrnum við
Kerið. Frumvarp atvinnuvegaráð-
herra mun því gera ferðalög um
landið bæði flóknari og dýrari.
Auk þess virðist frumvarp at-
vinnuvegaráðherra byggja á afar
hæpnum forsendum. Þannig hafa
samtök ferðaþjónustunnar birt lög-
fræðiálit þar sem efast er um full-
yrðingar ráðuneytisins um að
komugjöld á flug- og skipafarþega
brjóti í bága við EES-samninginn.
Í Bretlandi hefur einnig verið við
lýði sérstakur flugfarþegaskattur og
Þjóðverjar og Írar rukka líka sérstakt
brottfarargjald. Þá má benda á að
þýska ríkisstjórnin samþykkti ný-
verið að leggja sérstaka vegatolla á
erlenda ökumenn. Það er æði sér-
kennilegt ef ríkisstjórn undir stjórn
framsóknarmanna ætlar að vera
heilagri í framkvæmd Evrópureglu-
gerða en þýsk stjórnvöld.
Að mínu mati ætti að greiða
fyrir uppbyggingu innviða á ferða-
mannastöðum með almennum
sköttum. Fullyrt er að tekjur af ferða-
mönnum hér á landi hafi numið 130
milljörðum árið 2013 og þær hafa
sennilega aukist á nýliðnu ári þegar
ferðamönnum hélt áfram að fjölga.
Framlag ferðamanna til skatttekna
er því talsvert nú þegar og einfald-
ast er að nýta hluta þeirra tekna
til nauðsynlegrar uppbyggingar á
innviðum um leið og reynt yrði að
draga úr skattalagabrotum í ferða-
þjónustunni. Það er einföld lausn á
einföldu vandamáli.
Við sem aðhyllumst einstak-
lingsfrelsið og viljum koma í veg
fyrir að almenningur sé gerður að
nytjastofni í vildarskömmtunarkerfi
ríkisstjórnarinnar verðum að mót-
mæla þessum nýja náttúruskatti af
krafti. Henry David Thoreua fjallaði
um óréttlát lög í ritgerð sinni „Borg-
araleg óhlýðni“ og spurði: ,,Eigum
við að láta okkur nægja að fara eft-
ir þeim eða eigum við að leitast við
að bæta þau og fara eftir þeim þang-
að til, eða eigum við að brjóta þau
strax?“ Í þessu tilfelli er ég þeirrar
skoðunar að best sé að brjóta lög-
in strax og mun því ekki borga fyr-
ir náttúrupassa fari svo að frumvarp
atvinnuvegaráðherra verði að lög-
um. n
Guðmundur Hörður
Guðmundsson
formaður Landverndar
Kjallari
Mynd RöGnValduR MáR„Við sem aðhyll-
umst einstaklings-
frelsið og viljum koma í
veg fyrir að almenningur
sé gerður að nytjastofni
í vildarskömmtunarkerfi
ríkisstjórnarinnar verð-
um að mótmæla þess-
um nýja náttúruskatti af
krafti.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Leiðari „Margir geta lært af
lekamálinu og þá
ekki síst stjórnmálamenn.
Þeir eru kjörnir fulltrú-
ar þjóðarinnar og eiga að
koma fram af heiðarleika
og ekki gera tilraunir til
að ljúga sig út úr erfiðum
málum. Mynd SKjáSKot aF VeF RÚV
Bergvin oddsson var illa farinn af exemi í æsku og sætti einelti fyrir vikið. – DV