Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2015, Blaðsíða 38
Vikublað 27.–29. janúar 201538 Fólk
Hlustar ekki á
kjaftasögurnar
Klara hyggst snúa sér að tónlist sem höfðar til hennar sjálfar og hún nýtur að flytja
T
ónlistin mín er frekar ólík
því sem ég var að gera með
The Charlies. Enda er þetta
allt önnur pæling,“ seg-
ir Klara Ósk Elíasdóttir,
einnig þekkt sem Klara Elias, sem
stefnir á sólóplötu nú þegar The
Charlies hefur lagt upp laupana.
„Þetta er ekki lengur stelpuband
og ætlunin er ekki að höfða til ein-
hvers sérstaks markhóps áður en
tónlistin og lögin verða til. Ég ætla
ekkert að setja mig inn í neitt box
og hugsa eitthvað alltof mikið fyrir
hvern ég er að syngja en snúa mér
að tónlist sem höfðar til mín og ég
nýt að flytja. Vonandi hefur fólk
áhuga á að heyra hana og hlusta á.“
Erfið ákvörðun
Aðspurð segir Klara það hafa verið
erfiða ákvörðun að leggja niður
stelpnabandið. „En þessi ákvörðun
lá fyrir mun lengur en við kannski
áttuðum okkur á og þess vegna
eiginlega bara náttúruleg þróun á
löngum tíma,“ segir Klara sem ætl-
ar að búa áfram í Los Angeles. „Mig
langar til þess en ég nýt þess þó
í botn að koma heim um jólin og
knúsa alla mína nánustu en ég fæ
alltaf smá heimþrá til Los Angeles
í lok tímans sem ég eyði heima.
Eins og er þá er ég ekki á leiðinni
heim strax. En það er aldrei að vita.
Ég gæti alveg skipt um skoðun í
næsta mánuði þegar það verður
aðeins kaldara hérna í Los Angeles.
Ég sakna fólksins míns á hverjum
degi. Það er það erfiða. Svo finn ég
mikinn mun á því hvað það er mikil
mengun hérna. Landið okkar er
svo dásamlega ósnortið í saman-
burði við önnur lönd og stórborgir.
Annars er eiginlega alltaf sól hérna.
Ég fæ ekkert leið á því,“ segir hún.
Eyða ekki tíma í nöldurskjóður
Klara og vinkonur hennar í The
Charlies hafa verið áberandi á síð-
um blaðanna síðan þær stigu fram
á sjónarsviðið í hljómsveitinni
Nylon. Fyrir vikið hafa þær stöllur
reglulega lent á milli tannanna á
fólki. Klara segist fyrir löngu orðin
vön því að fólk hafi alls kyns skoð-
anir á því sem þær hafa verið að
gera. „Ég er búin að vera í þessu
síðan ég var 18 ára. Einar Bárðar
kenndi okkur snemma að hlusta
ekki á neikvæðni eða nöldur og
við værum mjög líklega ekki bún-
ar að ganga í gegnum allt sem við
höfum gengið í gengið í gegnum,
upplifað alla þessa stórkostlegu
hluti eða fengið öll þessi frábæru
tækifæri til að lifa lífinu og upplifa
draumana ef við værum að eyða
tíma í einhverjar nöldurskjóður
á netinu. Þetta er bara fylgifisk-
ur þess að gera hluti á opinberum
vettvangi.“
Ekki í fylgdarþjónustu
Ein af rosalegustu kjaftasögun-
um fjallar um að þær hafi unnið
við fylgdarþjónustu út í Los Ang-
eles. „Þetta hef ég aldrei heyrt og
get staðfest að þetta er kjaftasaga.
Ég heyri voðalega sjaldan kjafta-
sögurnar um mig. Það kom einhver
álíka kjánaleg sem tengdist eit-
urlyfjum þegar við vorum að byrja
sem Nylon. Annars er fólk hætt
að nenna að segja mér þegar það
heyrir lygasögur um okkur af því að
ég hef afar lítinn áhuga á slíku.“ n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Ekki á
leiðinni
heim
Þrátt fyrir að
Klara sakni
Íslands að
mörgu leyti,
þá kann hún
mjög vel
við sig í Los
Angeles.
„Annars er fólk
hætt að nenna að
segja mér það þegar það
heyrir lygasögur um okkur
af því að ég hef voðalega
lítinn áhuga á slíku.
Engin óskalög
á Kaffibarnum
DJ Margeir, sem dansþyrstir
dýrka og dá, er þekktur fyrir að
spila aldrei óskalög. Hann lýsti
yfir ánægju sinni
með nýtt skilti
á Kaffi-
barnum á
Facebook-
síðu sinni
nýlega.
Á skiltinu
stendur
„Engin óskalög“
þannig að skilaboðin eru skýr og
gestir verða hér eftir að gjöra svo
vel og hemja sig. Plötusnúðurinn
er ekki einn um að kunna illa
við óskalög, því flestir úr plötu-
snúðastétt sem eru yfir meðal-
lagi töff eru sammála honum um
að þessi skýrleiki sé til bóta.
Ugla skerpir á
kynþokkanum
Leikkonan Ugla Egilsdóttir
ku þessa dagana vera í
stífri kynþokkaþjálfun hjá
magadanskennaranum Þór-
dísi Nadiu Semichat. Markmið
Uglu er að komast á lista Kyn-
lífspressunnar yfir kynþokka-
fyllstu konur Íslands 2015, sem
birtur verður í árslok. Heyrst hef-
ur að Ugla hafi sett sér markmið-
ið eftir að Saga Garðarsdóttir, vin-
kona hennar og meðstjórnandi
í hinum vinsæla hlaðvarpsþætti
Ástin og leigumarkaðurinn,
komst á listann sem birtur var í
desember 2014.
Þarf vonandi ekki að gista í tjaldi
Gunnar Birgisson er enn ekki kominn með húsnæði í Fjallabyggð
Þ
etta leggst bara mjög vel í mig,“
segir Gunnar I. Birgisson, fyrr-
verandi bæjarstjóri í Kópa-
vogi og þingmaður, sem tekur
við starfi bæjarstjóra í Fjallabyggð í
næstu viku. En innan Fjallabyggðar
eru þéttbýliskjarnarnir Siglufjörður
og Ólafsfjörður.
Gunnar hefur búið í rúm 30 ár í
Kópavogi svo hann þarf hálfpartinn
að rífa sig upp með rótum þegar hann
heldur norður. Hann segir það þó
ekki erfitt, enda hafi hann búið víða,
bæði hérlendis og erlendis, og því
öllu vanur. Gunnar segir verkefnið
fyrir norðan einstaklega spennandi.
„Það er mikið að gerast í Fjalla-
byggð og hlutirnir á uppleið, það
verður ekkert atvinnuleysi hjá fram-
kvæmdastjóra sveitarfélagsins þarna,
það er nokkuð ljóst. Ég vil hafa nóg
að gera og þannig verður það,“ segir
Gunnar glaður í bragði.
Hann bendir á að margt áhuga-
vert sé að gerast í atvinnumálum,
sérstaklega á Siglufirði, sem komi til
með að hafa mjög jákvæð áhrif á af-
komu bæjarfélagsins. „Fjallabyggð
snýr vörn í sókn. Íbúum mun fjölga
og tekjur og velsæld mun aukast. Það
er ekki alls staðar sem svona hlutir
eru að gerast á landsbyggðinni,“ seg-
ir Gunnar sem er enn ekki kominn
með húsnæði í Fjallabyggð þrátt fyr-
ir að stutt sé í flutninga. Hann bindur
þó vonir við að þurfa ekki að gista á
tjaldstæðinu. „Það er verið að vinna
í þessu, en það er ekki auðhlaupið að
fá húsnæði Siglufjarðar megin. Það
er auðveldara Ólafsfjarðar megin.“
Hann segist ekki gera sérstakar kröf-
ur um að vera á Siglufirði þrátt fyrir
að bæjarstjórnarskrifstofurnar séu
þar. Hann verði einfaldlega að taka
það húsnæði sem býðst.
Gunnar hlær þegar blaðamaður
spyr hvort hann haldi að það verði jafn
gott að búa í Fjallabyggð og í Kópa-
vogi, en þessi fleygu orð: „Það er gott
að búa í Kópavogi,“ voru eitt sinn not-
uð í kosningabaráttu Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi. „Ég reikna með
því,“ segir hann kíminn. „Ég er búinn
að fara norður og heimsækja bæjar-
skrifstofurnar,“ bætir Gunnar við, en
honum leist vel á aðstöðuna og heldur
glaður til Fjallabyggðar í næstu viku. n
solrun@dv.is
Hefur búið víða Þó að Gunnari þyki
gott að búa í Kópavogi þá bindur hann
vonir við að búsetan í Fjallabyggð
verði ekki síðri. Mynd SIGtryGGur ArI