Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2015, Page 28
28 Lífsstíll Vikublað 27.–29. janúar 2015
EinkEnni þung-
lyndis oft óljós
þ
unglyndi getur verið mjög
lævís sjúkdómur og fólk get-
ur þjáðst af honum án þess
að gera sér grein fyrir því.
Margir tengja sjúkdóminn
beint við sjálfsvígshugsanir eða mikla
depurð, en það eru ekki endilega
helstu einkenni hans, þó að vissu-
lega séu þau mjög alvarleg. Einkenn-
in eru svo mörg og mismunandi að
oft áttar fólk sig ekki á að þunglyndi
er orsakavaldurinn. Oft er það fólkið
í kringum þann þunglynda sem áttar
sig á að ekki er allt með felldu, en nær
ekki endilega að festa fingur á hvað
er að. Börn og maki þessi þunglynda
verða því gjarnan ráðvillt og vansæl
yfir aðstæðum og átta sig ekki á því
hvers vegna sá veiki breytir um ham.
Þetta getur orðið til þess að aðstand-
endur fara að draga sig í hlé frá hinum
þunglynda, en þó með kvíða og sekt-
arkennd yfir því að geta ekki hjálpað.
Stundum er erfitt að greina þung-
lyndi frá venjulegri óánægu, viðbrögð-
um við missi og sorg eða kreppu í
einkalífinu. Það getur því komið fólki í
opna skjöldu þegar það leitar til lækn-
is, til dæmis vegna viðvarandi þreytu,
minnisleysis eða athyglisskorts að
í ljós kemur að það þjáist af þung-
lyndi. En greiningin fæst yfirleitt eftir
að læknirinn hefur farið yfir ítarlegan
spurningalista með sjúklingnum.
Á Íslandi þjást tólf til fimmtán þús-
und manns af þunglyndi á hverjum
tíma. Þrátt fyrir að þunglyndi sé svo
algengt gerir fólk sér oft litla grein
fyrir eðli sjúkdómsins og þar gætir
oft misskilnings. Þunglyndi er ekki
merki um dugleysi eða vanmátt, það
er sjúkdómur sem nauðsynlegt er að
meðhöndla á réttan hátt. Rétt grein-
ing á sjúkdómnum er því mikilvæg.
Hér eru nokkur einkenni sem eru
lýsandi fyrir þunglyndi.
Depurð
Depurð er vissulega augljósasta ein-
kenni þunglyndis. Hún er oft verst á
morgnana og gerir það að verkum að
fólk á erfitt með að hafa sig fram úr
rúminu. Þunglyndir einstaklingar eru
gjarnan með lítið sjálfsálit og finnst þeir
einskis verðir. Einstaklingar sem þjást af
þunglyndi án þess að gera sér grein fyr-
ir því eru oft dómharðir í eigin garð og
gagnrýnir á verk sín. Þeim virðist mis-
takast allt sem þeir taka sér fyrir hendur
og kenna sjálfum sér alltaf um ef illa fer.
Áhugaleysi og skortur á gleði
Þetta er einnig algengt einkenni þung-
lyndis. Þegar einstaklingar hætta að
njóta þess að gera eitthvað sem þeir
hafa alltaf notið og haft gaman af. Það
getur jafnvel orðið kvöð að gera hluti
sem ættu að vera ánægjulegir. Einstak-
lingar sem þjást af þunglyndi finnst
heimurinn gjarnan litlaus og flatur og
hlakka ekki til að gera neitt. Þeir sækj-
ast lítið eftir félagsskap annarra og
halda sig gjarnan heima við.
Lítil matarlyst
Breytingar á matarlyst geta verið ein-
kenni þunglyndis. Sumir sem þjást
af þunglyndi fara að borða meira en
venjulega. Fara út í það sem á ensku
er kallað „comfort eating“. Þá borðar
fólk til að reyna að sefa sársauka eða
vanlíðan. Algengara er þó að þung-
lyndir einstaklingar hafi litla matar-
lyst. Þeir missa hálfpartinn löngun
til að borða og uppáhaldsmaturinn
hættir jafnvel að vera spennandi.
Minni kynhvöt
Þunglyndi getur dregið úr kynhvöt
og áhuga einstaklinga á samskiptum
við hitt kynið, jafnvel við maka
sinn. Það verður allt hálf tilgangs-
laust, kynlífið þar á meðal. Á þessu
getur þó einnig verið líffræðileg
skýring því þunglyndi tengist stund-
um hormónabreytingum, sem geta
dregið úr kynhvöt.
Svefnleysi og síþreyta
Margir sem þjást af þunglyndi kvarta
yfir breytingum á svefnmynstri. Sum-
ir detta í það að sofa mjög mikið og
nota það til að deyfa sársaukann sem
þeir upplifa í vöku. En mun algengara
er að þunglyndir einstaklingar þjá-
ist af svefnleysi. Þeir eiga erfitt með
að festa svefn, vakna gjarnan á nótt-
unni og eiga erfitt með að sofna aftur.
Slíkt ástand veldur óhjákvæmilega
síþreytu.
Óútskýrðir verkir
Þegar einstaklingar þjást af þunglyndi
getur það ýtt undir viðvarandi verki
hér og þar um líkamann sem eiga
sér engar ljósar skýringar og hverfa
ekki við meðhöndlun. En sálarástand
fólks hefur mikið um það að segja
hvernig það bregst við líkamlegum
sársauka.
Minnisleysi
Þunglyndi getur valdið því að einstak-
lingar fara að upplifa minnisleysi. Það
verður erfiðara fyrir þá að kalla fram
upplýsingar í huganum sem þeir ættu
að vera með á hreinu. Þeir hætta að
ná almennilega utan um hugsanir
sínar og því verður erfiðara að koma
þeim frá sér. Að leysa einföldustu ver-
kefni getur því orðið óyfirstíganlegt.
Ákvarðanafælni
Margir þunglyndir einstaklingar upplifa
það að eiga erfitt með að taka ákvarðan-
ir, jafnvel þó að þær séu einfaldar. Fólk
er sannfært um að ákvörðunin verði
röng og að það sjái eftir henni. n
n þjáist þú af óútskýrðum og viðvarandi líkamlegum einkennum? n taktu þunglyndisprófið
Vellíðunarkvarði
Undanfarnar
tvær vikur
Alltaf Oftast Rúmlega
helming
tímans
Tæplega
helming
tímans
Öðru
hvoru
Aldrei
1. Var ég glaður/glöð
og í góðu skapi.
5 4 3 2 1 0
2. Var ég róleg(ur) og
afslappaður/afslöppuð.
5 4 3 2 1 0
3. Var ég full(ur) af
orku og krafti.
5 4 3 2 1 0
4. Leið mér vel og var
úthvíld(ur) þegar ég
vaknaði.
5 4 3 2 1 0
5. Var margt áhugavert
að gerast á hverjum degi.
5 4 3 2 1 0
Eftirfarandi staðhæfingar snúast um andlega líðan þína síðustu tvær vikur. Merktu við
þá staðhæfingu sem þér finnst eiga best við um líðan þína undanfarnar tvær vikur.
Dæmi: Hafir þú verið í góðu skapi meira en helming tímans undanfarnar tvær vikur
þá setur þú hring utan um töluna í þriðja reit frá vinstri talið.
Leggðu saman tölurnar í þeim reitum sem þú merktir við. Gildin eru á bilinu 0–25. Því hærri sem stigatalan er því betri er
líðanin. Sé samanlagður stigafjöldi þinn undir 13 skaltu ræða við lækni þinn um það hvort þú kunnir að vera þunglynd(ur).
Heildarstigafjöldi:
KvARðinn (WHO - 5) eR gefinn úT Af ALþjÓðAHeiLbRigðiSSTOfnUninni
Nokkrar staðreyndir
um þunglyndi
n Þunglyndi er einn þyngsti og dýrasti sjúkdómurinn á
heimsvísu, jafnt í háþróuðum löndum sem í þróunarlöndum.
n Þunglyndi er algengur sjúkdómur; 15 til 25 prósent
einstaklinga geta búist við því að verða þunglyndir einhvern
tíma á ævinni.
n Þunglyndi byrjar snemma á ævinni, mjög oft á bilinu 18
til 30 ára.
n Þunglyndi tengist mjög oft kvíðaröskunum og áfengissýki.
n Þunglyndi fylgir oft langvinnum líkamlegum sjúkdómum.
n Þunglyndi birtist stundum sem safn líkamlegra einkenna.
n Þunglyndi er oft flókið í greiningu, ekki síst vegna þess að
einstaklingurinn sjálfur áttar sig oft ekki á því að vanlíðan
hans og andlegt og líkamlegt þróttleysi geti verið af völdum
þunglyndis.
n Þegar vandað er til greiningar og meðferðar er árangur
síst lakari en hvað aðra algenga sjúkdóma varðar.
UppLýSingAR fegnAR Af vef LAnDLæKniSeMbæTTiSinS: LAnDLAeKniR.iS
Fáðu hjálp
n Á heilsugæslustöðvum
n Á bráðamóttöku geðdeilda
n Hjá sérfræðingum um geðheilsu,
t.d. geðlæknum, sálfræðingum eða
geðhjúkrunarfræðingum
n Hjá námsráðgjöfum, prestum eða
félagsráðgjöfum
n Hjá Fjölskyldumiðstöð; þar er hægt að
fá viðtöl fyrir foreldra með börn í vanda
n Ekki má hér gleyma því að mikilvægt
er að ræða um vanlíðan sína við nána
ættingja og vini
UppLýSingAR fengnAR Af vef LAnDLæKniSeMbæTTiSinS
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Bara óhress?
- eða gæti það verið þunglyndi?
já nei*
2.
7.
svart.
8. Á morgnana er allt verst.
Stundum erfitt að
greina Einkenni þung-
lyndis eru svo mörg og
mismunandi að fólk gerir
sér ekki endilega grein
fyrir því að þunglyndi er
orsakavaldurinn.