Vestfirska fréttablaðið - 26.03.1980, Page 3
S5
vestfirska
TTABLADID
Bókasafn - Menningarmiðstöð
Þegar komið er inn á hæjar og
héraðsbókasafnið á ísafirði dettur
manni helst í hug orðið menning-
armiðstöð.
Út um allt sitja börn niður-
sokkin í lestur blaða eða bóka og
virðast búin að gleyma stund og
stað.
Að sögn Elínar Magnfreðsdótt-
ur starfsmanns safnsins mæta
krakkarnir kl. 2 þegar safnið er
opnað og sitja sum til kl. 4 en þá
fer rúta inn í Fjörð. önnur sitja til
5. fara þá í laugina og koma svo
aftur upp eftir það. Menntskæl-
ingar vinna að ritgerðum. leita
heimilda o.þ.h. og á fimmtudög
um kl. 10:30-11:30 mæta svo
yngstu börnin þau 3-6 ára í Sögu-
stundina en hún er í umsjá Sig-
rúnar Magnúsdóttur bókavarðar
sem vinnur á safninu.
Sigrún les sögur fyrir börnin og
sýnir myndir og stundum eru spil-
aðar plötur. Börnin teikna svo
atriði úr sögunum eða það sem
þeim dettur í hug og eru þessar
myndir til sýnis í anddyri safns-
ins. Að sögn Elínar eru þessar
stundir mjög vel sóttar og fara vel
fram.
Aðsókn að safninu í heild er
mjög mikil og hefur komið fyrir
að þar eru staddir 50 manns í
einu. þegar mest aðsókn er. Útlán
síðasta árs samsvaraði því að hver
bæjarbúi fengi 16.6 bækur lánað-
ar yfir árið. (Landsmeðaltal).
En það eru ekki bara bækur
sem lánaðar eru út. Fyrir blinda
og sjónskerta eru til svokallaðar
hljóðbækur þ.e. kasettur með sög-
um á og pantar safnið frá hljóð-
bókasafni í Rvk.eftir óskum fólks.
Grafíkmyndir eru einnig til út-
láns á bókasafnsskírteinin. Eru
það myndir sem fengnar eru frá
Norræna húsinu og getur fólk
hengt upp í stofum sínum myndir
sem það skilar svo þegar það er
orðið leitt á myndinni. í bígerð er
að koma upp hljómplötu og ka-
settusafni sem notað verður til
útlána.
Á bókasafninu er geymt
myndaplötusafn Björns Pálsson-
ar. M. Símsons og filmur Jóns A.
Bjarnasonar. Ef fólk langar að fá
gamlar myndir sem teknar voru
af þessurn mönnum getur það
fengið filmuna lánaða til koper-
ingar. Er þarna um mikinn fjár-
sjóð heimilda að ræða.
Skjalasafn héraðsins er til húsa
á bókasafninu. Þar er að finna
kirkjubækur (míkrófilmur) alls
landsins frá átjándu öld fram til
1950 svo og dónia og skiptabækur
sýslunnar. Ef fólk langar að for-
vitnast um ættir sínar er hægt að
feltta upp í þessum bókum og
forvitnast unt langalangafana og
ömmurnar.
Enn er ótalinn einn þáttur í
starfsemi bókasafnsins. en það er
starfræksla sýningarsalarins sem
bókavörður við útlán bóka
er inn af bókasalnum. Þar hafa
hangið á veggjum sýningar eftir
ýmsa listamenn. Þó salurinn sé
ekki stór rúmast ágætlega í hon-
um. Jóhann Hinrikssön bóka-
vörður. forstöðumaður safnsins
sagði að í lögum safnsins stæði að
það skuli sjá um slíka starfsemi.
Nokkrum sinnum hefur verið
höfð samvinna við M.I. um að fá
listamenn t.d. þegar Ólafur Kvar-
an listfræðingur kom með sýn-
ingu á verkum Gunnlaugs Sche-
vings s.l. haust. Eftir áramót voru
baháíarmeð kynningu á trú sinni í
myndum og máli í salnum en nú
stendur yfir sýning á verkum Sig-
rúnar Eldjárn.
Sigrún er 26 ára og lauk prófi
frá Myndlistar og Handiðaskóla
íslands. vorið 1977. Hún hefur
tekið þátt í samsýningum og hald-
ið eina einkasýningu. Á sýning-
unni eru 20 myndir og eru þær
allar til sölu.
Á eftir Sigrúnu er von á öðrurn
grafíklistamanni. Ingiberg
Magnússyni en hann er 36 ára
gamall og útskrifaðist úr M.H.f.
1970. Hann hefur haldið 2 einka-
sýningar og tekið þátt í fjölda
samsýninga. Hann starfar sem
menntaskólakennari.
í vor er svo væntaleg þriðji
grafíklistamaðurinn. Ingunn Ey-
dal 38 ára gömul. lauk prófi úr
grafíkdeild MHÍ 1976 og stundar
nú kennslu við santa skóla. Hún
hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga.
Aðsókn á sýningar hefur verið
ágæt. Safngestir líta gjarnan þar
við um leið og þeir fá sér bækur
og ekki spillir það að oft er spiluð
músík í salnum til að auka áhrif
myndanna.
Er það ekki eitthvað þessu líkt
sem kalla má menningarmiðstöð?
E.Þ.
Jóhann Hinriksson,
Styrktarfélag vangefinna:
Hyggst hefja byggingu
á þessu
Bæjarstjórn ísafjarðar úthlutaði
nýlega Styrktarfélagi vangefinna
á Vestfjörðum byggingarlóð inn-
an við Seljalandshverfi á ísafirði.
Jafnframt var fallið frá úthlutun
lóðar. sem áður hafði verið ætluð
félaginu austan Ulfsárá ísafirði.
Byrjað er að teikna mannvirki
á lóðina og eru arkítektar bræð-
urnir Vilhjálmur og Helgi Hjálm-
arssynir. Reykjavík. Það er ætlun
ári
stjórnar. að framkvæmdir á lóð-
inni verði hafnar á þessu ári og
skakkar þá einu ári frá því. sem
upphaflega var fyrirhugað að
hefja framkvæmdir 1979.
Hinn 1. janúar síðast liðinn
tóku gildi ný lög um aðstoð við
þroskahefta. Eru Vestfirðir eitt
átta starfssvæða á íslandi með
tilliti til aðstoðar við vangefna.
Skal starfa hér fimm manna
svæðisstjórn og er hún þannig
skipuð: Magnús Reynir Guð-
mundsson. bæjarritari á ísafirði
og Guðmundur Kristjánsson.
bæjarstjóri i Bolungarvík. til-
nefndir af Fjórðungssambandi
Vestfirðinga og skipaðir af ráð-
herra félagsmála. frú Evalía Sig-
urgeirsdóttir. húsfrú í Bolungar-
vík. tilnefnd af Styrktarfélagi van-
gefinna á Vestfjörðum. skipuð af
ráðherra. auk fræðslustjóra. séra
Sigurðar K.G. Sigurðssonar og
héraðslæknis. Þar með er það
komið i hendur ríksisins að koma
AI^IF=
SPORTBÁTAR
Nýtt á íslenskum markaði —
Þrautreynt merki á markaði
í Evrópu og Ameríku
Vélbátar og seglbátar
í öllum stærðum .
3
FASTEIGNA
VIÐSKIPTI
Bakkavegur 23, glæsilegt,
nýlegt einbýlishús úr
timbri. 147 fm. ásamt bíl-
skúr og frágenginni lóð.
Vitastígur 8, Bolungarvík,
mjög fallegt álklætt einbýl-
ishús á tveim hæðum.
Laust fljótlega.
Pólgata 4, falleg 2ja her-
bergja íbúð á 3. hæð. Laus
í lok maí.
Mjallargata 6, norðurendi,
2x45-50 fm. Á efri hæð
eru 3 svefnherbergi og
bað. Niðri er eldhús ostofa.
56 fm. hlaöinn bílskúr fylg-
ir. Eignin er laus um miðjan
júní.
Hafraholt 28, rúmlega fok-
helt raðhús.
Holtabrún 16, Bolungarvík,
4ra herbergja íbúð í nýlegu
fjölbýlishúsi.
Traðarland 4, Bolungarvík,
byggingarframkvæmdir að
143 fm. einbýlishúsi. Sökkl-
ar eru steyptir og grunnur
uppfylltur. Talsvert af timbri
fylgir. Einnig geta allar
teikningar fylgt.
ARNAR G.
HINRIKSSON
HDL.
Aðalstræti 13 ísafirði
Sími3214
Sr. Gunnar Björnsson, for-
maður Styrktarfél. vangefina.
á fót þeim stofnunum. sem
þroskaheftir þurfa á að halda. Af
kostnaði vegna reksturs þeirra
greiðir ríkissjóður 85'í. en sveitar-
sjóðir 15'f. Framkvæmdir eru
fjármagnaðar af sjóði. er nefnist
Framkvæmdasjóður. Tekjur hans
eru fyrst og fremst tillag ríkis-
sjóðs. a.m.k. I000 milljónir ár-
lega. og hækkar í hlutfalli við
verðlagsvísitölu.
Félaginu hafa borist margar
rausnarlegar gjafir að undan-
förnu. Á árinu I979 bárust þessar
gjafir: Lionshreyfingin á Vest-
fjörðum kr. ’ 3.659.721.00:
Kvennadeild Slysavarnafélagsins
Sæljóss á Flateyri kr. 100.000.00:
Kvenfélag Mosvallahrepps kr.
10.000.00: Kvénfélagið Vonin á
Þingeyri kr. 103.000.00: Ögur-
hreppur kr. 20.000.00: Ónefndur
kr. 100.000.00: Áheit kr.
15.000.00: Lionsklúbbur ísa-
fjarðar kr. 500.000.00 og frá Vig-
ursyskinum til minningar um for-
eldra þeirra. Björgu Björnsdóttur
og Bjarna Sigurðsson. skuldabréf
að innlausnarverði l. janúar kr.
1.020.217.00.
Það sem af er þessu ári hafa
eftirtaldar gjafir borist félaginu:
Kvenfélag ísafjarðarkirkju kr.
Framlwld á bl.s. 9