Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 26.03.1980, Page 9

Vestfirska fréttablaðið - 26.03.1980, Page 9
vestfirska I rp.ETTABLADID Sigurdór Sigurdórsson, blaðamaður: Búum betur að björgunarsveitunum Nokkrir rækjusjómenn hafa komiö á máli viö Vest- firska fréttablaðið og vakið at- hygli á pistli Sigurdórs Sigur- dórssonar, blaðamanns, sem fluttur var í útvarpsþættinum í vikulokin fyrir nokkru. Þykir blaðinu full ástæða til að birta þennan pistil í heild. ..Fyrir nokkrum vikum síðan átti sér stað tvöfalt flugslys uppi á Mosfellsheiði. Björgunarsveitir brugðu við hart og framkvæmdu á stuttum tíma við erfiðar aðstæð- ur björgun fólksins. sem í slysinu lenti. Næstu daga eftir slysið kom fram hörð gagnrýni úr ýmsum áttum á störf björgunarsveitanna og kom þá í Ijós að tækjaskortur hverskonar er þeirra aðalvanda- mál og að björgunarsveitirnar eru ekki þannig búnar tækjum að sómasamlegt geti talist. í síðasta mánuði átti sér stað sjóslys á Vestfjörðum og Slysa- varnarfelag íslands sendi björg- unarsveitir á vettvang til leitar að þremur bátum. Aftur kom fram gagnrýni á störf björgunarsveit- anna og byggðist hún fyrst og fremst á skorti á viðunandi tækj- um til leitar við erfið skilyrði og eins á stjórn leitarinnar. Því kemur það upp í hugann hvernig á því stendur að björgun- arsveitir okkar eru svo illa búnar tækjum sem raun ber vitni. Svör- in. sem björgunarsveitirnar gefa eru þau að fé skorti til tækja- kaupa. Slysavarnarfélag tslands. Hjálparsveit skáta og Flugbjörg- unarsveitin eru allt sveitir áhuga- manna. sem leggja það á sig í frístundum að halda uppi ströng- um æfingum til þess að vera við- búnir þegar á þarf að halda. Sam- fara því að halda sérr i æfingu til þessara erfiðu starfa. þarf þetta fólk að standa í fjáraflastarfsemi svo hægt sé að reka sveitirnar. Og þá vaknar sú spurning hvernig á því stendur að skilningur ráða- manna þessarar þjóðar. —þá á ég við fjármálavaldið— er.svo lítill á því að efla björgunarsveitirnar sem frekast er kostur að jafnvel blánauðsynlegustu tæki eins og snjósleðar. svo dæmi séu nefnd. eru í lúxustollflokki. í sjálfu sér er það kannske aukaatriði hvort þetta tæki eða hitt er í háum eða lágum tollflokki. Aðalatriði máls- ins er að ríkisvaldið á að sjá til þess beinlínis að sveitirnar skorti ekki fé til nauðsynlegra tækja- kaupa og útbúnaðar þannig að ekki vanti upp á að sveitirnar séu eins vel búnar tækjum og tólum og frekast er kostur. Þá segir kannske einhver: ..Enn einn að biðja um fé úr hinum snauða ríkissjóði" Ég hygg að úr þeim ágæta sjóði sé miklu fé ver varið en ef það rynni til tækjakaupa fyrir björgunarsveitir landsins. Til gamans má nefna eitt lítið dæmi um hvernig peningum er eytt úr ríkissjóði. Fyrir nokkru var skipt uni ríkisstjórn a Islandi. Frá völdum fór starfsstjorn Alþýðu- flokksins og við tók ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen. Ráðherr- arnir úr starfssjórn Alþýðuflokks- ins fá ráðherralaun í þrjá mánuði Hópferðir Hópferðabflar, 48 manna, 25 manna og 21 manns. Leigubíll 5 farþega. Sendibílaþjónusta. Þórdís Guðmundsdóttir Ásgeir Sigurðsson Seljalandsvegi 76 Sími3666 eftir að þeir láta af störfum. sem er fullkomlega samkvæmt regl- um. og þetta fá ráðherrar allra ríkisstjórna eftir að þeir fara frá völdum. Þessir sex ráðherrar úr starfsstjórn Alþýðuflokksins fá Sigurdór Sigurdórsson, blaða- maður. eitthvað I kringum 25 milljónir króna í laun þessa þrjá mánuði eftir að þeir hætta í ríkisstjórn. Fimm af þessurn sex hafa jafn- framt full þingmannslaun. þar sem þeir eru alþingismenn. Þarna er semsagt um 25 milljónir að ræða. en þær segja sjálfsagt ekki stórt varðandi tækjakaup til björgunarsveita. en kæmu þó sennilega að miklu gagni fyrir hinar vanbúnu björgunarsveitir. Ég nefni þetta aðeins sem dæmi um hvernig hægt væri að verja peningum úr ríkissjóði betur en gert er oft á tíðum. Einnig mætti spyrja hversvegna Slysavarnarfélag íslands. sem hef- ur sérhæft sig í björgun á sjó. er ekki hreinlega látið hafa ákveðna prósentu af óskiptum afla fiski- skipa ellegar þá af útflutnings- verömæti sjávarafurða Þeir menn. sem draga fisk úr sjó við íslandsstrendur eiga ekki svo lítið undir því að SVFI sé sem allra best í stakka búið. og hvað ætli þau séu orðin mörg mannslífin. sem félagar í SVÍ hafa bjargað um dagana? Viö vitum öll hve íslendingar eru háðir fluginu. Viö erum al- gjörlega háð því ef við ætlum til annarra landa og þáttur þess I samgöngum innanlands er gífur- lega mikill. Um eða yfir 90', af útflutningi okkar er fiskur eða fiskafurðir. Þetta sýnir okkur vel hve háð við erum sjónum og fiskveiðum. Hvernig getur þjóðin þá látiö það viðgangast að þeir aðilar. sem fórna bæði tíma og peningum af áhuga einum saman til að bjarga mannslífum úr sjáv- arháska eða eftir flugslys. og raunar í öllum tilfellum ef slys ber að höndum. séu svo vanbúnir tækjum. að þeir þurfi að sæta gagnrýni fyrir störf sín hvenær sem slys ber að höndum. Svari þessu nú liver fyrir sig. Starfsmenn óskast í eftirtalin störf 1. Tveir menn f rörasteypu 2. Tveir samhentir menn við steypustöð 3. Bílstjóri með meirapróf 4. Trésmiður, eða laghentur maður, til afgreiðslustarfa o.fl. ] Upplýsingar veitir Þórður Jónsson, sími 3472 og 3941 GRÆIMIGAROUIt HF. GRÆNAGARÐI - ISAFIRDI - SÍMI 3472 Datsuri 180 B 1978. Upplýsingar í síma 3557 Til sölu Volkswagen Passat LS árg. 1974. Ekinn 100 þús. km. GÓÐUR BlLL. Upplýsingar gefur Óskar Kárason Fjarðarstræti 21, isafirði. Til sölu AR-14 hátalarar, 2x100 wött Upplýsingar í síma 3203 Datsun diesel 220 C. Ár- gerð 1979, ekinn 20 þús. km. Upplýsingar í síma 4213. ATVINNA Vélvirkinn s/f óskar að ráða skrifstofu- mann. Þarf að geta unnið sjálfstætt. Viljum einnig ráða járniðnaðarmenn. Upplýsingar gefur Víðir í síma 7348 og 7272. Vélvirkinn s/f Bolungarvík Einbýlishús ásamt eignarlóð að Sundstræti 37, ísafirði er til sölu. Upplýsingar í síma 3726 og 3126. Svanbjörn Tryggvason Múrari getur bætt við sig verkefnum.Föst verð- tilboð — Vönduð vinna. Upplýsingar í síma 3888 Tilboð óskast í húseignina Seljalandsveg 30, ísafirði, sem er einbýlishús á þremur hæðum. Bílgeymsla er í húsinu. Réttur er áskilinn til þess að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Allar upplýsingar veitir Pétur Geir Helgason, í síma 96-52153 eða 96-52154 TIL SÖLU FORDBRONCO árgerð 1974. Topp klæddur, upphækkaður á breiðum dekkjum. GOTT VERÐ IIPPI VSINGAR í SÍMA 3929 Til sölu Moskwich árgerð 1972. Einnig Yamaha rafmagns- orgel með trommuheila og fótbassa. Upplýsingar gefur Samúel Einarsson í síma 3035. Til sölu Notað sófasett á mjög góðu verði. Vil kaupa rafmagnshitakút, 200 til 400 lítra. Upplýsingar í síma 3678

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.