Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1981, Page 1
Erum að
taka upp
jólavörur á hverjum degi. T.d. stórkostlegt úrval af
kertum, jólasælgæti, konfekti og leikföngum. Gull-
falleg rúmteppi með dýramyndum.
VERSLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER
Sinarffuðfjinnsson k
^ítni J2Ö0 - ^1$ Súlutnja’iOífi
Signý Rósantsdóttir
LÁTUM REYNA Á, EKKI TIL-
BÚIN IVERKFALL
Signý Rósantsdóttir var að
skera úr á fullu í Ishúsfélaginu,
þegar blaðamann bar að, henni
fannst samningarnir lélegir, það
sem hún hafði heyrt, annars vissi
hún ekki hvernig þeir voru í smá-
atriðum. „Mér finnst rétt að láta
reyna á, hvort A.S.V. nær ekki
einhverju meira en þeir eru búnir
að skrifa undir annars staðar,
kaupið þyrfti að hækka, dýrtíðin
er svo mikil, en hvort út í verkfall
á að fara á þessu stigi, það efast
ég um, þetta er erfiður tími til
þess, svona fyrir jólin."
SMÁNARSAMNINGAR, SEGIR
GRÉTAR HELGASON
Uppi á þriðju hæð í fshúsfélag-
inu var Grétar Helgason að skera
niður striga, en mannskapurinn
Framhald á bls. 2
Verður sameigin-
legt prófkjör
flokkanna í vor?
—Oddamenn spurðir álits
Læknisbústaðurinn á Þingeyri stendur auður
Neyðarástand í
læknaþjónustu
—Læknislaust í Dýrafirði síðan um mánaða-
mót september-október
Ennþá einu sinni er komin
upp sú staða á Þingeyri, að þar
er læknislaust. Þar með er um
600 manna byggðarlag, ott ein-
angrað, án þess öryggis að
hafa lækni og verða menn að
bjargast sem best þeir geta
þegar eitthvað ber upp á. Það
henti meðal annars um daginn,
að öldruð kona á elliheimilinu
á Þingeyri datt og lærbrotnaði,
og var á endanum flogið með
hana suður eftir fjögurra daga
aðgerðarleysi, en læknir fékkst
ekki á staðinn.
Um ástandið í læknamálum
Dýrafjarðar og þetta einstaka
mál fjallar bréf Vilborgar Guð-
mundsdóttur, Ijósmóður á
Þingeyri, inni í blaðinu í dag,
en Vilborg hefur með elliheim-
ilið að gera, sem er í hluta
Sjúkraskýlisins á Þingeyri.
f.
Þórólfur Egilsson
eins og er, því ekkert var ákveðið
á þessum fundi, en það stendur til
að ræða þessi mál á næstunni og
ég veit ekki hvort það verður fyrir
áramót, menn hafa svo mikið að
gera nú fyrir jólin. Það kom hug-
mynd um sameiginlegt prófkjör
hjá öllum flokkum, og það voru
eiginlega flestir sammála því.“
Þórólfur var spurður um sína
persónulegu skoðun.
„Ég myndi segja það í dag, að
ég myndi vera algjörlega fylgj-
andi sameiginlegu opnu próf-
kjöri, það ætti eiginlega að setja
lög um það, eða reglugerð réttara
sagt, þá er hægt að ganga að því
og ekkert þvarg um það hjá ein-
um eða neinum.“
Hvað um viðræður við hina
flokkana, hafa einhverjar þreif-
ingar farið fram?
„Nei, ekki af okkar hálfu, ekk-
ert slíkt hefur verið gert. Þetta er
að komast á dagskrá hjá okkur,
við erum að byrja vetrarstarfið,
það urðu formannaskipti í nóv-
ember og maður er ekki búinn að
leggja hlutina niður fyrir sér,“
sagði Þórólfur Egilsson að lokum.
Ekki er ráð nema í tíma sé
tekið, sagði kellingin, eða var
það kallinn? En það breytir því
ekki, að einhverjir eru farnir að
hugsa til væntanlegra bæjar-
og sveitarstjórnarkosninga að
vori, og eftir því sem fregnir
herma, hafa Akurnesingar þeg-
ar ákveðið sameiginlegt próf-
kjör flokkanna á Skipaskaga.
Vestfirska fréttablaðið hafði af
þessum sökum samband við
formenn eða stjórnarmenn
flokksfélaganna á fsafirði og
spurði þá hvort á góma hefði
borið í flokksfélögunum að við-
hafa prófkjör, og þá hugsan-
lega sameiginlegt með öllum
flokkum á sama tíma. Við höfð-
um fyrst samband við Þórólf
Egilsson, formann Sjálfstæðis-
félags Isafjarðar, og inntum
hann eftir því, hvort rætt hefði
verið um framboðsmál og þá
hugsanlega prófkjör.
„Það var stjórnarfundur hjá
deildum á fimmtudaginn var og
þar var þetta rætt, það er ekki
hægt að segja neitt um þessi mál
ÉG MYNDI MÆLA MEÐ OPNU
SAMEIGINLEGU PRÓFKJÖRI
ALLRA FLOKKA
Næst höfðum við samband við
Sturlu Halldórsson, fulltrúa lista
óháðra borgara í bæjarstjórninni
á Isafirði, og spurðum hann hvort
eitthvað hefði verið rætt um próf-
kjörsmál í hans herbúðum og þá
Sturla Halldórsson,
af lista óháðra
einkum sameiginlegt prófkjör
allra flokka.
„Nei, það hefur ekki verið rætt,
ekki verið rætt við mig,“ sagði
Sturla.
Framhald á bls. 5
Kjarabætur eða
pólitísk hrossa-
á ícíifirAi aA crwria fAIL
kaup
á ísafirði að spyrja fólk álits á
þeim samningum sem gerðir
höfðu verið annars staðar á land-
inu. Fyrst lögðum við leið okkar í
—V.f. kannar hug
manna til samninga-
mála
Eins og lesendum Vestfirska
fréttablaðsins er eflaust kunn-
ugt, þá hafa nú öll aðildarfélög
A.S.f. skrifað undir samninga
þá sem undirritaðir voru með
fyrirvara af heildarsamtökun-
um. Eftir því sem næst verður
komist fær fiskvinnslufólk í
bónus- eða premíuvinnu enga
launahækkun á lægstu laun
utan 3,25% að þessu sinni, en
eins og kom fram í síðasta
tölublaði Vestfirska, þá er
Vinnuveitendafélag Vestfjarða
aðilar að þessu samkomulagi,
sem deild í Vinnuveitendasam-
bandinu. Þetta eru líka þeir
samningar sem Vinnuveitenda-
félag Vestfjarða býður upp á, á
þeim eina raunverulega samn-
ingafundi sem haldinn hefur
verið.
ÞESSIR SAMNINGAR SKIPTA
EIGINLEGA ENGU MÁLI
Tíðindamaður blaðsins lagði
land undir fót á mánudaginn og
kom við á nokkrum vinnustöðum
Ingólfur Ingvarsson
Norðurtangann og hittum að máli
Ingólf Ingvarsson sem var að
kippa þorskhausa eða seila eins
og það er einnig kallað. Ingólfur
sagði, að þessir samningar skiptu
eiginlega engu máli, það væri svo
sáralítið sem næðist og obbinn af
fiskvinnslufólki ynni í bónus og
fengi þar af leiðandi litla hækk-
un. Ingólfur sagðist leggja áherslu
á það, að það þyrftu að vera
mannsæmandi laun fyrir 40 tím-
ana, það væri sú viðmiðun sem
hann hefði.
Afli
SÚÐAVÍK:
Bessi er á veiðum.
ÍSAFJÖRÐUR:
Guðbjartur er á veiðum,
línubátarnir komu með
rúm 50 tonn, Orri var með
25 tonn, og Víkingur 22
tonn eftir tvo daga, en
Guðný með tæp 8 tonn
eftir daginn.
Júlíus Geirmundsson
landaði 17. 11. rúmu 91
tonni. Guðbjörg landaði
18. 11. rúmlega 104 tonn-
um og 21.16 tonnum.
Páli Pálsson er á veið-
um.
BOLUNGARVlK:
Línubátar reru á laugar-
dag og öfluðu vel. Heiðrún
er úti, en Dagrún er vænt-
anleg úr slipp um helgina.
SÚGANDAFJÖRÐUR:
Þokkalegur afli á línuna,
þegar gefur. Elín Þorbjarn-
ardóttir landaði um 120
tonnum af skrapfiski fyrr í
vikunni.
FLATEYRI:
Gyllir er úti. Asgeir
Torfason fiskar vel og Sif
er á veiðum með munka-
línuna.
ÞINGEYRI:
Framnes er á veiðum,
línubáturinn er kominn
með um 150 tonn sem af er
mánuðinum.
BÍLDUDALUR:
Sölvi er úti.
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Tálknfirðingur er úti.
PATREKSFJÖRÐUR:
Sigurey var að landa úr
fyrsta túrnum 120 tonnum.
Dofri er kominn úr slipp og
fiskaði í sig, er farinn í
siglingu með aflann, um
70 tonn.
I Veður
Veðrið.
Guðmundur Hafsteins-
son veöurfræðingur gerir
ráð fyrir norðaustanátt og
frosti um helgina. Élja-
gangur verður væntanlega
á morgun og einhver él
nyrst á Vestfjörðum að,
minnsta kosti á laugardag.
Hugsanlega verður bjart-
ara veður á sunnudag.