Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1981, Síða 4
vestfirska I
FRETTABLASID
PÓLLINN HF.
Aðalstræti 9, ísafirði
TÖLVUÞJÓNUSTA
Getum afgreitt með stuttum fyrirvara
hin hraðvirku ABC-80 tölvukerfi með
forritum fyrir:
★ Fjárhags- og viðskipta-
mannabókhald
★ Launabókhald
★ Ýmis forrit fyrir fram-
leiðsiueftirlit, Iagerbók-
hald, verðlista, útskrift
reikninga o. fl.
Forritunar- og viðgerðarþjónusta
Sýningarkerfi á staðnum
Sjón er sögu ríkari.
Vestfirðingar
Á næstu sunnu-
dögum verða seld
merki Kristniboðshátíðarinnar til
styrktar þeim viðburðum, sem urðu á
þessu ári til að minnast 1000 ára
kristniboðs á íslandi.
Takið sölubörnum vel!
PRESTAFÉLAG
VESTFJARÐA
TIL SÖLU!
Ford Mustang
Mark I, árgerð
1972. Ný vetrar-
dekk og sumar-
dekk fylgja.
Upplýsingar í síma 3229 eða 4029.
— VIDEOKLÚBBUR VESTFJARÐA —
— SÍMAR 3239 OG 3306 —
QQH KRISTNIBOÐSHÁTÍÐ HQQH
yö 1 VESTFIRDINGA 1^0 I
VHS-Betamax
Úrval af filmum í VHS og Beta-
max.
Leigjum einnig út myndsegulbönd.
VIDEOKLUBBUR VESTFJARÐA
Hlíðarvegi 5 — Símar 3239-3306
Hvai
FERÐAi
Hvað er betra en
KMzbdfei
FERÐA SKRIFS TOFA VES TFJA RÐA
SÍMAR 3457 OG 3557
Ósk um frekari stuðning
—Frá Knattspyrnuráði ísafjarðar
Knattspyrnuráð ísafjarðar hef-
ur hafið undirbúning að starfi
næsta árs, enda ekki til setunnar
boðið þegar höfð eru í huga þau
miklu verkefni sem fyrir liggja.
Mönnum er eflaust í fersku minni
hinn frábæri árangur meistara-
flokks f.B.I. á s.l. sumri, þegar
liðið vann sér rétt til þátttöku í I.
deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu næsta keppnistímabil. f
þessu sambandi verður einnig að
minna á það, að liðið vann alla
sína heimaleiki (í sumar) og er
hér um fátítt afrek að ræða, sem
ekki hefur verið lofað sem skyldi.
Liðið brást því ekki stuðnings-
mönnum sínum, og mun ekki
heldur á næsta ári. Sá sem mestan
þátt átti í velgengni liðsins (að
leikmönnum ólöstuðum), var
þjálfari þess, Magnús Jónatans-
son. Því var það, að strax að
loknu keppnistímabilinu og að
höfðu samráði við leikmenn liðs-
ins, gekk stjórn K.R.I. til samn-
inga við Magnús, enda var vitað
að mörg félög höfðu áhuga á að
fá hann til liðs við sig. Samningar
tókust, og hafa haustæfingar nú
staðið í rúman mánuð. Mega fs-
firðingar vænta mikils af starfi
Magnúsar næsta ár, þegar mót-
herjar verða öll beztu knatt-
spyrnulið landsins.
Mörgum finnst e.t.v. að of mik-
il áherzla hafi verið lögð á starf
meistaraflokks Í.B.Í. á kostnað
annarra flokka síðastliðin ár. Það
er eflaust eitthvað til í þessari
athugasemd, en ástæðan liggur í
athugunarleysi fremur en ásetn-
ingi, svo og því, hvernig knatt-
spyrnustarfið hér er uppbyggt.
Það er samt staðreynd að góður
árangur meistaraflokks I.B.I. hef-
ur vakið athygli vítt um land og
kveikt eldmóð í brjóstum ungra
knattspyrnuiðkenda hér. Slíkt
gerir gjarna árangur afreksmanna
í íþróttum. Þennan geysilega á-
huga verður að virkja og hefur
stjórn K.R.f. einsett sér að vinna
ötullega að þeim málum á næsta
ári með þau tvö markmið í huga,
að skapa unglingum áhugaverðar
og uppbyggitegar tómstundir og
jafnframt að treysta þann grund-
völl sem knattspyrnustarf hér á
ísafirði mun byggja á í framtíð-
inni. Ekki verður tíundað hér
hvernig áformað er að vinna að
þessum málum, en um mikið starf
er að ræða og að mestu unnið í
sjálfboðavinnu, sem þó dugir ekki
til (því miður). fþróttastarfsemi
kostar peninga, sem menn þó geta
huggað sig við^að er vel varið.
Knattspyrnuráð ísafjarðar hef-
ur hleypt af stokkunum glæsilegu
happdrætti, þar sem aðalvinning-
ur er Mazda 626. Þetta happ-
drætti á að leggja grunninn að
traustri fjárhagsstöðu knatt-
spyrnuráðs næsta ár. Sendir hafa
verið miðar til all margra brott-
fluttra ísfirðinga og hafa þeir
brugðist vel við. Jafnframt hefur
verið gengið í hús hér á ísafirði en
undirtektir hafa ekki verið eftir
vonum. Fram til jóla, eða þar til
dregið verður, þann 19. desember
n.k., verða miðar seldir í Sport-
hlöðunni, Blómabúðinni, Penslin-
um, Gosa og síðan í aðalvinn-
ingnum þegar hann kemur til fsa-
fjarðar um mánaðamótin nóv.-
des.
Síðastliðið sumar treysti K.R.f.
á stuðning velunnara sinna og
varð ekki fyrir vonbrigðum. Enn
á ný leitar K.R.f. eftir stuðningi
ykkar, sem nú er bezt sýndur með
miðakaupum í þessu happdrætti.
Stöndum saman, — jafnt á
vellinum sem utan hans.
Stjórn K.R.Í.
Ó.H.Ó.
I vÉitiÍriÍti I
FRETTABLAEID
Sportvörudeild
SALOMOIM
ATOMIC SKI
Skíðavörur
í sérflokki
INNSBRUCK
skíðafatnaður
YOUNGSTER
skíðafatnaður
Tökum upp á næstu dögum
FISHER skíði
DACHSTEIN skíðaskó
£inarQuðfjinnszon h. ý
Bolungarvík — Sími 7200