Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1981, Síða 7
YEStlirgka
rRETTABLADIP
IP ísaijarðarkaupstaður
STARFSMENN
Starfsmenn vantar á leikskólann, Hlíðarvegi
13, frá og með 1. janúar 1982 eða síðar.
Umsóknir þurfa að berast sem fyrst, eigi síðar
en 10. des.
Upplýsingar veittar á Ieikskólanum og í síma
3185.
FORSTÖÐUMENN
FORSTÖÐUMAÐUR
Staða forstöðumanns í 1/2 eða 1/1 starf við
leikskólann í Hnífsdal, er auglýst til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. des. n.k. Æskilegt að
umsækjendur geti hafíð störf frá og með næstu
áramótum.
Uppiýsingar á bæjarskrifstofunni í síma 3722.
BÆJARSTJÓRINN Á ÍSAFIRÐI
F ramhaldsaðalfundur
í Vélsmiðjunni Þór hf. verður hald-
inn í fundarsal félagsins, laugardag-
inn 19. desember 1981, kl. 10:00 fyrir
hádegi.
DAGSKRÁ:
Lagabreytingar
STJÓRNIN
UPPSALIR ÍSAFIRÐI
DISKOTEK ÁRSHÁTÍÐ
föstudag Litla leik- klúbbsins laugardag
Með kvótakerfi...
Framhald a) bls. 3
eina tölu í sambandi við kvótakerfi eða
eitthvað annað. Hvað eigum við að
gera við þann umframþorsk sem kem-
ur í vörpuna eftir að kvótinn er fullur,
eigum við að kasta honum í sjóinn eða
eigum við að gefa ríkissjóði hann. Ef
við eigum að koma með hann í land,
þá er kvótakerfið ekki stjórnun á fisk-
veiðum og ekki verndunartæki. Mér
finnst skrapdagakerfið hafa skilað sínu,
það sína þær tölur sem við bárum
saman hér að framan, þær halda afla-
markinu nokkurn veginn innan þeirra
marka sem þeim er ætlað að gera.“
Ef við snúum okkur aftur að kvóta-
kerfinu, eða þeim hugmyndum sem
þar hafa komið fram og snertir örygg-
issjónarmið, menn sæki sinn þorsk þeg-
ar sæmilega viðrar en séu ekki að
þvælast á sjó í öllum veðrum og svo
framvegis. Spurning um meðferð á
mannskap?
„Ef til vill er það eini kosturinn, ef
hægt er að kalla það kost, að menn
mundu sækja minna. Ég ætla ekki að
setjast í það sæti, eða dæma um það,
hvort það er rétta leiðin að menn hætti
að hafa áhuga fyrir að sækja sjó, en
það getur vel verið að það megi taka af
þessu harðasta broddinn, af sókninni,
það verður bara aldrei hægt meðan
einstaklingur ræður fyrir einu skipi.
Það verður alltaf að vera mat þess sem
ræður fyrir skipinu, hvort hann vill
fara á sjó eða ekki.
Þá vil ég taka það fram, að ég er
óánægður með að bátamenn séu að
tala um kvóta á togaramenn og öfugt
og þegar búið er að skipta þorskaflan-
um eins og gert hefur verið 50/50.“
Nú ríkir mikil óánægja á Vestfjörð-
um um síminnkandi hlutdeild Vest-
firðinga í heildaraflanum, hvaða orsök
telur þú vera fyrir þessu?
FJÖLGUN SKIPA — LINKIND
STJÓRNVALDA
„Það er meðal annars fyrir aukn-
ingu skipa í öðrum landshlutum, en
hér hefur skipum raunverulega ekki
fjölgað, togararnir hafa þróast upp úr
vertíðarbátum, eða tekið við af þeim,
og þessi fjölgun skipa upp á síðkastið í
öðrum landshlutum kemur niður á
okkur. Þá hafa topparnir verið minnk-
aðir hjá okkur í júní og júlí en ekki
annars staðar, það eru engar hömlur
fyrir sunnan, þeir fá að hengja upp að
vild þegar hroturnar koma og þá má
spyrja að því, hvort að sá afli sem
Vestmannaeyingarnir og Grindvíking-
ar fá að moka upp, hvort hann sé
eitthvað í hlutfalli við fólksfjöldann, ef
við förum út í þá sálma. En þetta með
minnkandi hlutdeild í þorskinum er
mjög alvarlegt mál og varðar alla íbúa
hér á Vestfjörðum. Og þessi linkind
stjórnvalda með togarakaupin eru að
verða okkur dýr. Menn virðast skynja
það, að ef til vill séu einhverjar frekari
hömlur í bígerð og þess vegna fjölgar
skipum svona grimmt og þetta verður
kannski eins og í Noregi, að skip verði
við kantinn á hverri einustu vinnslu og
fari út örskamman tíma á hverju ári,
enda eru styrkir til útgerðarinnar þar
allt að því sem nemur öllu því verð-
mæti sem íslensk fiskiskip draga á
Kaupfélag Ísfirðínga
auglýsir
Hafið þið kynnt ykkur
okkar glæsilegu tilboðsverð
á jólamatnum?
Kjúklingarnir frá okkur
eru aldeilis billegir
Aðeins kr. 58,50 pr. kg.
Athugið Leyft verð Okkar verð Athugið Leyft verð Okkar verð
Hangilæri, úrb. 125,30 107,00 Svínahamborgarhr. 153,10 139,00
Hangiframp., úrb. 89,75 77,00 Lambahamborgarhr. 77,85 69,80
Hangilæri 68,00 63,00 Reykt svínalæri m/beini 98,20 88,00
Hangiframp. 41,80 38,00 Nýreyktur svínabógur,úrb. 115,20 103,00
Reyktur svínaknakki 99,95 88,80
London lamb 131,80 119,50
Þetta er aðeins smásýnishorn
af öllum þeim hátíðamat sem við
bjóðum nú. Góður matur á
frábæru verði.
Verslið þar sem úrvalið er
MIPFllAt ÍSFIRDINCA
ÍFASfÉÍGNA;
j VIÐSKIPTI j
j Sólgata 2, 87 ferm. 4ra J
j herb. einbýlishús. Laust !
■ fljótlega.
| Sólgata 8, 110 ferm. 4-5 |
| herb. íbúö á efri hæð í I
I mjög góöu standi. Einnig I
I fylgja tvö íveruherbergi í J
j kjallara, auk sameignar.
I Stigahlíð 4, Bolungarvík, |
| 2ja herb., 50 ferm. íbúö í |
I nýju fjöibýlishúsi.
| Fitjateigur 6,127 ferm. nýtt J
J einbýlishús, fullfrágengiö. !
I Laust með skömmum fyrir- .
I vara.
I Vitastígur 10, 2x90 ferm. ■
■ einbýlishús ásamt bíl- !
g geymslu. Afhending eftir |
I samkomulagi.
I Hrannargata 9, 3ja herb. |
I ca. 115 ferm. íbúö. Laus I
I fljótlega.
| Tryggvi J
i Guðmundsson, J
■ hdl.
I Hrannargötu 2, fsafirði
■ sími 3940
Takmarkanir
og stjórn-
unaraðgerðir
Framhald af bls. 8
fyrir þróuninni sem hefði orðið
og reyndu með öllum tiltækum
ráðum að fá því til leiðar komið
að það yrði snúið af þessari
braut.“
Hvað með það sem snýr að
fjórðungnum sjálfum, þá ef til vill
eflingu bátaútgerðar?
„Bátaútgerð hefur líklega
hnignað, að vísu hef ég engar
tölur þar um, hvernig sú breyting
hefur orðið, það er sjálfsagt rétt,
en þó helst líklega uppi mest
línuútgerð á landinu á Vestfjörð-
um.“
Nú er það atvinnumálanefndin
í Bolungarvík sem lætur þetta
mál til sín taka, sjá menn fram á
minnkandi atvinnu ef þessu held-
ur áfram sem horfir?
„Við erum uggandi um það,
haldi þessi þróun áfram, þá geti
þetta kannske verið spurningin
um það hversu langur tími líður
að þessi stóriðja sem ég tel nú
fiskvinnsluna á Vestfjörðum vera,
hvenær hún bara leggur upp
laupana, málið er orðið það al-
varlegt í mínum augum. Og ég er
þeirrar skoðunar, að hvað sem
menn segja, þá munum við
standa frammi fyrir því kannske
fyrr en seinna, verði ekkert að
gert, að þessi fyrirtæki upp til
hópa standi svo höllum fæti, að
það hljótist af vandræði. Það er
verið að vinna stóran hluta úr
árinu æ verðminni verðmæti sem
er úr skraptúrunum," sagði Karv-
el Pálmason a að lokum. f.
Framsýni —
ekki...
Framhald af bls. 8.
hugsunarhátt að þetta sé nógu
gott. Það besta er ekki of gott
fyrir makker, er sígild spilaregla
og ætti ætíð að standa," sagði Jón
á Veðrará að lokum og lagði
þunga á síðustu setninguna.
vBstfirska
FRETTABLASIIl