Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1981, Blaðsíða 8
©
PÓLLINN HF
Isafirði
Sími3792
! Kröfur A.S.V. í j
j athugun hjá I
j ríkisstjórninni j
„Ráðherra viðurkenndi að þetta væri mikið réttlætis-
mál sem við værum með og hann skildi það ósköp vel og
kvað þetta hafa verið í athugun í ráðuneytinu f nokkurn
tíma,“ sagði Pétur Slgurðsson forseti Alþýðusambands
Vestfjarða, þegar blaðið innti hann eftir fundi sendi-
nefndar Vestfirðinga til forsætisráðherra s.l. miðvikudag. I
| „Við settum engar fastar kröfur fram, en bentum honum
I á, að til þess að leysa málið núna, væri til dæmis hægt •
að flýta fyrir því með því að hækka olíustyrkinn, og
hvernig í það yrði tekið með því að kanna málið í botn.
Ráðherra gaf ekkert út á það. Okkur sýnist það vera leið,
því það er hægt með einu handtaki að hækka olíustyrk-
inn veruiega. Málið stendur þannig núna, að það er í
athugun hjá ríkisstjórninni og átti að ræða það í gær,
fimmtudag," sagði Pétur. „Mér finnst afar ótrúlegt, að
fólk sætti sig við þennan samning sem liggur fyrir hjá
| aðildarfélögum Alþýðusambands íslands, en ég get ekk-
ert sagt um framhald mála, ef við fáum enga úrlausn |
I þess sem við höfum farið fram á.“
■ f. I
Takmarkanir og stjórnunaraðgerðir
hafa minnkað hlutdeild
andi hlutdeild Vestfirðinga í
veiðunum.
Jón á Veðrará
Framsýni —
Ekki mol-
búahátt
Jón á Veðrará hafði sam-
band við blaðið og sagði farir
Önfirðinga ekki sléttar í sam-
bandi við sjónvarpið:
„Kvartað hefur verið yfir út-
sendingum sjónvarps hér á Flat-
eyri, en lítið hefur verið um svör
ráðamanna. Heyrst hefur, að
þetta eigi að batna í vor, en þá er
búið að greiða tvisvar sinnum
fyrir afnotagjald af sjónvarpi, sem
ekki hefur sést nema annan hvorn
dag að einhverju leyti. Tækin,
sem nú eru komin í flest hús eru
næmari fyrir utanaðkomandi
truflunum, það hefur til dæmis
komið fram á þeim, þegar raf-
magnshitatúpur kveikja á sér.
Hvers vegna er þetta svona? Jú,
skýringin er sú, að við hér erum
með alltof lítinn og aflóga sendi,
minnstu gerð, sem aldrei hefur
fullnægt því svæði sem honum
hefur verið ætlað. Þessi sendir er í
Holti. Kröfurnar eru meiri í dag
eftir að fólk hefur farið og séð
sjónvarp á þeim stöðum þar sem
kröfum hefur orðið að sinna. Hér
þarf að setja upp minnst tíu sinn-
um stærri sendi en fyrir er og
hækka mastrið til muna og eins
netið sem er í Holti. Hér þarf
framsýni, en ekkb áframhaldandi
molbúahátt og uppræta þann
Framhald á bls. 7
Jólin nálgast — Aðventa
hefst hæsta sunnudag
FYRSTA SENDINGIN AF
VINSÆLU SÆNSKU
AÐVENTULJÓSUNUM KOMIN
★ ★ ★
TRYGGIÐ YKKUR LJÓS í TÍMA.
í FYRRA SELDUST ÞAU UPP
LÖNGU FYRIR JÓL.
okkar í veiðunum
—segir Karvel Pálmason, formaður atvinnu-
málanefndar Bolungarvíkur
í kjölfar ályktunar atvinnu-
málanefndar Bolungarvíkur,
sem samþykkt var á fundi
nefndarinnar þann 7. nóvem-
ber og laut að alvarlegum af-
leiðingum minnkandi hlut-
deildar Vestfirðinga í þorsk-
veiðunum, hafði blaðið sam-
band við formann nefndarinnar
Karvel Pálmason. Karvel var
spurður hverja hann teldi
helstu ástæðuna fyrir minnk-
„Ég persónulega, tel ástæðuna
fyrst og fremst þá, að takmarkanir
og stjórnunaraðgerðir sem verið
hafa í þorskveiðunum undanfarin
tvö ár líklega og þar innifalið
skrapdagafyrirkomulagið hafi
haft þær afleiðingar að okkar
hlutur hefur skerst sem raun ber
vitni.“
Hvað með stórfjölgun togara í
öðrum landshlutum?
Karvel Pálmason
„Það hangir auðvitað saman,
það er alveg Ijóst, en þetta, eins
og skrapdagakerfið hefur verið
sett upp, það hefur þýtt það, að á
toppunum sem í flestum tilfellum
hefur verið á sumrin undanfarið,
þá hefur þetta verið keyrt niður á
skrapdagakerfi, en á öðrum veiði-
svæðum hafa þeir haldið sínum
hlut á hávertíðinni.“
Til hverra er þessari ályktun
beint?
„Við höfum í sjálfu sér ekkert
ályktað, við töldum bara nauð-
synlegt í ljósi þessarar þróunar
sem hefur átt sér stað, að haldinn
yrði fundur þar sem heimaaðilar
ræddu þessi mál, gerðu sér grein
Framhald á bls. 7.
AÐVENTULJÓS
Það er æðislega gaman að keppa
Samkvæmt upplýsingum
Björns Helgasonar, íþróttafull-
trúa, þá er í ráði, að öllu for-
fallalausu, að opna skíðalyft-
urnar á Seljalandsdal í dag,
fimmtudag. Þær voru reyndar á
sunnudaginn var, og þá búið
að stilla, en formleg opnun
verður væntanlega í dag. Sagði
Björn, að fram að áramótum
yrðu lyfturnar opnar á þriðju-
dags- og fimmtudagskvöldum
og um helgar. Ekki væri alveg
Ijóst um annan rekstur, svo
sem veitingasölu og væru þau
mál í athugun. Þá væri ekki
búið að ganga frá því hvort
Guðmundur Marinósson yrði
áfram forstöðumaður við
skíðasvæðið í vetur eins og
undanfarið, að því er Björn
tjáði blaðinu.
f.
Jón Páll Halldórsson
þingi fiskideildanna. Sú tillaga
fékk þarna góðan hljómgrunn
og var samþykkt bæði á fiski-
þingi og aðalfundi L.f.Ú. Núna
þurfa skipstjórar að tilkynna,
tólf tímum eftir að þeir láta úr
höfn, hvernig veiðar þeir ætla
að stunda, en samkvæmt til-
lögu okkar sem ég ræddi um,
tilkynna þeir að lokinni veiði-
ferð, hvort þeir hafa verið á
þorskveiðum eða skrapi. Þá
hefur prósentan verið bundin,
hvað þeir mega hafa mikinn
þorsk í aflanum, 15%, en í
þessari tillögu er því breytt
þannig, að þeir megi vera með
5,15 eða 25% af afla.“
Varðandi önnur mál, þá voru
það tryggingamá! og svo við-
hald og endurnýjun skipastóls-
ins og hélt Bárður Hafsteins-
son, skipaverkfræðngur, fróð-
legt erindi um það efni, að
sögn Jóns Páls Halldórssonar.
f.
Skíðalyfturnar
opnaðar í dag
Tilbúið fyrir flugbrautarljós, en
ljósin vantar
f viðtali við Guðbjörn Charl-
esson hjá flugmálastjórn, feng-
ust þær upplýsingar, að allt
væri nú tilbúið varðandi flug-
brautarljós á tsafjarðarflugvelli
nema Ijósin sjálf. Eftir því sem
hann vissi best, hafði seinkað
afgreiðslu á þeim eða eitthvað
því um líkt, en uppsetning
þeirra er á framkvæmdaáætlun
þessa árs. Sagði Guðbjörn
bagalegt að fá ekki Ijósin, því í
rauninni væri myrkur í þessum
skáp sem fsafjarðarflugvöllur
væri, enda þótt að sólartaflan
segði vera bjart. Guðbjörn tók
það fram, að ekki væri pen-
ingaleysi um að kenna hvað
Ijósin snerti. Blaðið reyndi ár-
angurslaust að hafa samband
við Hauk Hauksson hjá flug-
málastjóra, en hann hefur með
þessi mál að gera hvað varðar
uppsetningu Ijósanna.
f.
! vestfirska
FRETTABLADI9
Kvótinn á ekki þann
hljómgrunn, sem
menn gætu haldið
.
.....
. ...
Frá fsafjarðarflugvelli
—segir Jón Páll Halldórsson
„Það er gert miklu meira úr
þessu kvótatali heldur en það
er í raun og sannleika," sagði
Jón Páll Halldórsson, þegar
blaðið innti hann eftir fréttum
af aðalfundi L.f.Ú. sem var í
fyrri viku. „Kvótinn á ekki þann
hljómgrunn, sem menn gætu
haldið af því að lesa blöð og
hlusta á útvarp. Sú ályktun sem
samþykkt var um stjórnun fisk-
veiða var í megindráttum sam-
hljóða þeirri ályktun sem gerð
var á Fiskiþingi. Það er um
endurbætur á skrapdagakerf-
inu, sem byggt er á tillögu sem
samþykkt var hér á fjórðungs-