Vestfirska fréttablaðið - 08.12.1983, Blaðsíða 8
SÓL EG SÁ
síðara bindi sjálfsævisögu
Steindórs Steindórssonar frá
Hlöðum.
Út er komin hjá Erni og Ör-
lygi síðara bindi sjálfsævisögu
Steindórs Steindórssonar,
náttúrufræðings og fyrrverandi
skóiameistara frá Hlöðum.
Nefnist bókin SÓL ÉG SÁ sem
hin fyrri.
Þetta bindi fjallar um þaö
sem kalla má tómstundastörf
hans og hliöarhopp frá hinni
troönu braut embættismanna,
eins og hann kallar þaö sjálfur.
Hér segir Steindór frá afskipt-
um sínum af pólitík, bæöi bæjar-
pólitíkinni á Akureyri og lands-
málapólitík og baráttu fyrir Al-
þingiskosningarnar bæöi á Ak-
ureyri og ísafirði. Steindór segir
einnig frá stuttri setu sinni á
Alþingi og segir frá hinum um-
deildu Laxármálum sem hann
haföi töluverð afskipti af á sín-
um tíma.
í bókinni segir Steindór einn-
ig frá ferðalögum sínum, rit-
störfum og rannsóknum heima
og erlendis. Loks segir Stein-
dór frá því hvernig hann hefur
eytt síðustu árunum, eftir að
landslög skipuðu honum í rusla-
kompuna þegar náö var eftir-
launaaldri, en þarna í „rusla-
kompunni“ hefur hann unað
sér viö skrifborðió í samfélagi
viö innlenda og erlenda fræði-
menn og ferðalanga.
Eins og í fyrri hluta æviminn-
inga sinna fjallar Steindór hisp-
urslaust um menn og málefni
og dregur ekkert undan þegar
hann segir skoðun sína og
kynnir viðhorf sín. Að bókarlok-
um Iftur hann til baka, áttræður,
eftir langa og merkilega veg-
ferð og gerir upp reikningana
með orðunum ,,Sól ég sá“ og
eru þau kjarninn úr lífsskoðun-
um hans.
Bókin SÓL ÉG SÁ er sett,
umbrotin, filmuunnin, prentuð
og bundin hjá Prentsmiðjunni
Eddu hf. Kápu hannaði Sigur-
þór Jakobsson.
Spilabækur Arnar og Öríygs
BLÝANTA-, BLAÐA- OG
ORÐALEIKIR
í bókaflokknum “Spilabækur
Arnar og Örlygs."
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út bókina Blýanta,-
I vestfirska I
FRETTABLASID
blaða- og orðaleikir í bóka-
flokknum Spilabækur Arnar og
Örlygs. Áður voru komnar út
bækurnar Tveggja manna spil
og Hvernig á að leggja kapla.
Höfundur bókarinnar er Svend
Novrup, ritstjóri Politiken um
skák og bridge og höfundur
margra bóka um skák og spil,
en þýðandi er Trausti Björns-
son.
í þessari bók kynnumst við
nokkrum leikjum sem geta veitt
okkur mikla ánægju. Það eina
sem til þarf er blað og blýantur
og okkar eigin snilli til að lífga
upp á tilveruna.
Til eru margir leikir með strik-
um, reitum og orðum sem eru
bráðskemmtilegir og oft veita
leikirnir hugmyndaauðgi okkar
ríkulega umbun.
f þessari bók er nokkrum nýj-
um leikjum lýst, aðra könnumst
við við en sumum þeirra hefur
verið breytt annað hvort spila-
reglunni eða stigagjöfinni. Eins
og í tveim fyrri bókunum kapp-
kostar höfundurinn að skýra
allt í sambandi við leikina sem
best og oft með dæmum.
Bókin Blýanta- blaða- og
orðaleikir er filmusett og prent-
uð hjá Prentstofu G. Benedikts-
sonar en bundin hjá Arnarfelli
hf. Kápugerð annaðist Sigurþór
Jakobsson.
fram til 1962, auk þess sem ein
bókanna var helguð brautryðj-
endum á sviði slysavarna á Is-
landi.
í bókinni er getið margra
sögulegra atburða er urðu á
árunum sem bókin fjallar um.
Þar er m.a. fjallað um það er
togarinn Elliði frá Siglufirði
fórst út af Öndverðarnesi í febr-
úar 1962, strandi vélbátsins
Helga Hjálmarssonar við
Reykjanes, mannskaðaveðrinu
í apríl 1963, björgun þýska tog-
arans Trave við Vestmannaeyj-
ar, en káputeikning bókarinnar
er unnin út frá þeim atburði.
Allmargar Ijósmyndir eru í bók-
inni, m.a. af skipum og bátum
sem koma við sögu.
„Þrautgóðir á raunastund“
er sett, umbrotin, filmuunnin og
prentuð í Prentstofu G.
Benediktssonar, en bundin hjá
Arnarfelli hf. Kápu hannaði Sig-
urþór Jakobsson.
Jólagjöfina
færðu hjá okkur
rrm?|gi
VINNUVER
Mjallargötu 5 — Sími 3520
ÞRAUTGÓÐIR Á RAUNA-
STUND —15. BINDI BJÖRG-
UNAR- OG SJÓSLYSASLÖGU
ÍSLANDS
Bókaútfáfan Örn og Öriygur
hf hefur gefið út bókina „Þraut-
góðir á raunastund" eftir Stein-
ar J. Lúðvíksson. Bókin er 15.
bindið í þessum mikla bóka-
flokki um björgunar- og sjó-
slysasögu íslands og fjallar
hún um atburði áranna 1962 og
1963, en í fyrri bókum bóka-
flokksins hefur verið fjallað um
atburði frá aldamótum 1900
Sólhf.
Þverholti 19, sími 91 -26300
Gjöfin
sem gefur arð
Sodastream tækið er tilvalin
jólagjöf fyrir alla fjölskylduna
Gerið sjálf gosdrykkina og
sparið meira en helming.
Nú er einfalt að tvöfalda
Meö SIGNA-aöferöinni er nú mögulegt aö framleiöa
tvöfalt eöa margfalt einangrunargler á notkunarstaönum
• SIGNA-aöferöin stenst samanburö viö verksmiðjugler
• SIGNA-aöferöin er ódýr, einföld og örugg
• Gamla glerið nýtist áfram sem ysta byröi
A tímum orkusparnaðar er tímabært að kynna SIGNA-kerfið. Það samanstendur af állista, fylltum rakadrægu
efni og sérhönnuðu SIGNA-þéttiefni, sem tryggir fullkomna samlímingu milli áls og glers með rafhituðum
koparþræði. Vinnan fer fram innan dyra og því óháð árstíma og veðri. Þriggja ára reynsla er á SIGNA-aðferðinni
hérlendis. Við veitum 5 ára ábyrgð á efni og vinnu.
gamalt
gler —
nýtt
gler
„þetta er
SIGNA
állisti...
Með SIGNA-aðferðinni sparast: • Notkun
verkpalla og stigabíla. • Úrtaka gömlu rúð-
unnar. • Dýpkun á gluggafölsum og smíði
nýrra pósta. • Óþægindi af opnu gaphúsi.
efni“
... með
rakadrægu efni
NANARI UPPLYSINGAR VEITIR:
JAKOB ÓLASON
Hlíðarvegi 20, ísafirði
Símar: 3273 og 4306