Vestfirska fréttablaðið - 12.06.1984, Page 3
„Það var vorhugur í ísfirð-
ingum eins og öðrum íslending-
um, þegar árið 1904 gekk í garð.
Stærsta sporið í sjálfstæðisbar-
áttu þjóðarinnar hafði fyrir
skömmu verið stigið, þó barátt-
unni væri hvergi nærri lokið. Við
vorum að fá stjórn landsins inn í
landið. Þáverandi ráðgjafi ís-
lands í Danmörku hafði með
skipunarbréfi dags. 13. nóv.
1903 gert það Ijóst öllum lýði, að
konungur vor, sem þá var Krist-
ján hinn 9. með því nafni, hefði
skipað Hannes Hafstein ráð-
herrra íslands, frá 1. febrúar
1904 að telja. Um það leyti sem
fregnin um þetta barst hingað til
bæjarins átti Hannes Hafstein
42 ára afmæli þ. 4. desember, og
gekk þá hornaflokkur ísafjarðar
heim að húsi hans og lék þar
nokkur lög.“
Þannig komst Jón Grímsson,
málaflutningsmaður á ísafirði
að orði í upphafi máls síns er
hann minntist 50 ára afmælis
útibús Landsbankans á ísafirði.
Nú, 30 árum síðar, eru þessi orð
Jóns dregin fram í sviðsljósið á
ný i tilefni 80 ára afmælis
bankans 15. maí s.l. Stofnun
útibúsins var tilkynnt í blaðinu
Vestra með svohljóðandi aug-
lýsingu 14. maí 1904:
„Landsbankinn hefur tekið
að sér Sparisjóðinn á ísafirði frá
1. janúar þ.á. og stofnar nú 15.
þ.m. útibú hér á Isafirði. Útibú
Landsbankans á ísafirði rekur
öll venjuleg bankastörf og
sparisjóðsstörf, kaupir og selur
víxla og ávísanir, innlendar og
útlendar, veitir lán gegn veði,
sjálfsskuldarábyrgð o.s.frv. og
tekur á móti fé til ávöxtunar
með sparisjóðskjörum o.s.frv.
(sbr. reglugjörð fyrir Útibú
Landsbankans á ísafirði, stað-
festa 20. febr. 1904 í Stjórnar-
tíðindum.)
Útibúið verður fyrst um sinn
opið til afgreiðslu kl. 12 — 1
hvern virkan dag.“
Landsbankinn hóf starfsemi
sína í húsi Sparisjóðsins, sem
hann byggði árið 1897. Var það
einnar hæðar hús, sem stendur
enn við Mánagötu en er nú tvi-
lyft. Árið 1918 flutti útibúið í
Hebron, nú Góðtemplarahúsið,
en 1926 var flutt í Stjörnuna í
Pólgötu. 1934 var svo flutt að
Aðalstræti 24 og þar hafði
bankinn samastað þar til í des.
1958 að flutt var í nýbyggingu
bankans að Pólgötu 2, þar sem
hann er enn til húsa. Á efri hæð
bankahússins var íbúð útibús-
stjóra þar til fyrir nokkrum ár-
um að bankinn tók hæðina
undir starfsemina og byggt var
íbúðarhús fyrir útibússtjórann
að Miðtúni 17.
Fyrstu starfsmenn útibúsins
voru þeir Þorvaldur Jónsson,
fyrrverandi héraðslæknir, sem
var útibússtjóri, og bókarinn
Sophus J. Nielsen. Hafði Þor-
valdur áður stjórnað Spari-
sjóðnum í full 28 ár eða frá
stofnun hans 19. apríl 1876, eða
10 árum fyrr en Landsbanki ís-
lands tók til starfa. Sparisjóður-
inn hafði dafnað vel og er yfir-
takan fór fram nam varasjóður
hans um 20 þús. kr., sem var
mikið fé á þeirra tíma mæli-
kvarða.
Hið nýja útibú hafði töluverð
áhrif á vöxt og viðgang bæjar-
félagsins og jókst starfsemi þess
jafnt og þétt í gegnum árin og
starfsmönnum fjölgaði. Þeir eru
nú 25 að tölu.
Sem fyrr segir var flutt í nú-
verandi húsakynni árið 1958. Er
það eina húsnæðið sem bank-
inn sjálfur hefur byggt yfir
starfsemina. Húsið er í hinum
klassíska Landsbankastíl og
með tilkomu þess varð bylting
hvað viðkemur allri starfsað-
stöðu. Það var Einar B. Ingv-
arsson, þáverandi útibússtjóri
sem var frumkvöðull að bygg-
ingunni og bar allan veg og
vanda af verkinu.
Frá upphafi hafa 10 menn
gegnt starfi útibússtjóra: Þor-
valdur Jónsson frá stofnun til
1914, Jón Auðunn Jónsson,
alþm. 1914 — 1923, Helgi
Guðmundsson 1923 — 26, Sig-
urjón Jónsson 1926 — 37, Guð-
jón E. Jónsson 1937 — 51, Einar
B. Ingvarsson 1951 — 68, Georg
Hansen 1968 — 72, Helgi Jóns-
son 1972 — 1977, Þór Guð-
mundsson 1977 — 79 og Har-
aldur Valsteinsson frá 1979.
í tilefni afmælisins færði
Landsbankinn Bræðratungu 80
þús. kr. að gjöf, en vígsla hennar
fór fram þremur dögum fyrir
afmæli bankans. Þeir banka-
menn báðu fyrir þakkir til allra
sem færðu þeim gjafir í tilefni
afmælisins.
Úr afgreiðslusal Landsbankans. Ljósm Leo Ijósmyndastofa
FATA-
SÖFNUN
Móttaka vegna fata-
söfnunar Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar
verður í safnaðar-
heimilinu í IOGT
húsinu við Sólgötu,
fimmtudag kl. 20:00
til 22:00 og laugar-
dag kl. 13:00 til
16:00.
Sóknarprestur
Verslunarstarf
Vantar starfsmann í leikfanga- og húsgagna-
deild. Hálft eða fullt starf. Reynsla af verslun-
arstörfum æskileg.
Upplýsingar gefur Einar Árnason.
Sería $.f.
Ljóninu — Skeiði — Sími 4070
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig
með gjöfum og heimsóknum á 85 ára afmælisdegi
mínum, hinn 28. maí s.l.
Sigríður Bogadóttir
Hlíðarstræti 6
Bolungarvík
Síminn
okkar er
4011
I viltiirii I
FRETTABLADID
ÍBÚÐ TIL SÖLU
4 herbergja íbúð að Sundstræti 31 ertil sölu.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Hermanns-
son, sími 3526.
o
‘l A pLEGGUR \ OG SKEL -J fatœerslun barnanna
Fyrir 17 júní:
Ódýrt — Ódýrt — Ódýrt
Jakkar — Buxur — Bolir
Leggur og skel
Ljóninu, Skeiði
Sími 4070
Námsstyrkur
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Minn-
ingarsjóði Gyðu Maríasdóttur. Styrkurinn
verður veittur til framhaldsnáms í heimilisf-
ræðum og skyldum greinum. Bent skal á, að
sjóðurinn er allstór, og getur styrkveiting orð-
ið mjög rífleg í krónutölu.
Umsómknarfrestur er til 5. júlí 1984. Um-
sóknir ásamt námsvottorðum og upplýsing-
um um fyrirhugað nám sendist til undirrit-
aðra, sem veita nánari upplýsingar.
Magdalena Sigurðardóttir
Seljalandsvegi 38
ísafirði — Sími 3398
Þorbjörg Bjarnadóttir
Húsmæðraskólanum Ósk
ísafirði — 3025